Tölvumál - 01.03.1988, Qupperneq 17
starfsaðferðum áður en ný tæki eða vinnslukerfi eru tekin í notkun.
Reynsla margra framleiðslufyrirtækja bendir í sömu átt.
Bandarísku Ford bifreiðaverksmiðjurnar hafa bætt mjög rekstur sinn
undanfarin misseri. Margir hafa talið að árangur Ford mætti rekja
til aukinnar sjálfvirkni og notkunar tölvustýrða véla, sem nefndar
hafa verið því óheppilega heiti vélmenni á íslensku. í viðtali við
tímaritið Business Week fyrr á þessu ári hélt stjórnarformaður og
aðalforstjóri Ford, D.E. Peterson, því hins vegar fram, að 80% árang-
ursins væri til kominn vegna skipulagsbreytinga. Þær hefðu síðan
gert mögulegt að ná fram hinum 20% með að beita sjálfvirkni og tölvu-
notkun.
Ýmsir íslenskir rekstrarráðgjafar, sem ritað hafa um tölvunotkun og
tölvuvæðingu, hafa undirstrikað nauðsyn þess, að fyrirtæki láti gera
rekstrarúttekt á fyrirtækinu öllu eða að minnsta kosti því verkefni,
sem leysa á með tölvum áður en tölvuvæðing á sér stað. Þessum ábend-
ingum hafa forráðamenn fyrirtækja hér á landi ekki fylgt svo að orð
sé á gerandi.
Fækkun yfirmanna
Tölvuvæðingin skapar möguleika á því að breyta stjórnskipulagi fyrir-
tækja. Með því að nota tölvutækni má stytta boðleiðir. Einnig má
bæta möguleika stjórnenda á því að fylgjast með fjármálum, framleiðslu,
sölumálum og öðrum þáttum, sem máli skipta í rekstrinum. Þetta
jafngildir því að nú er unnt að fækka yfirmönnum frá því sem verið
hefur.
Enn hefur þó orðið óverulegur árangur hvað það varðar að draga úr
yfirbyggingu fyrirtækja á vesturlöndum. Sérfræðingar telja, að 20%-
30% af stjórnendum bandarískra fyrirtækja sé ofaukið. Máli sínu til
stuðnings vitna þeir til japanskra fyrirtækja, en þau hafa mun færri
stjórnendur en gerist í Bandaríkjunum.
Ekkert bendir til þess að hér á landi hafi orðið betri árangur en í
Bandaríkjunum hvað það varðar að einfalda stjórnfyrirkomulag fyrirtækja
með tölvunotkun.
Þá skapar tölvutæknin fyrirtækjum möguleika á því að byggja upp
liprara stjórnfyrirkomulag en gerist nú. Endurskipulagning fyrirtækja
getur orðið mun auðveldari en verið hefur.
17 -