Tölvumál - 01.03.1988, Page 19
Frá því eru þó að sjálfsögðu undantekningar og nokkur fyrirtæki
standa mjög faglega að verki.
Menntun tölvumanna er almennt lélegri hér en í Bandaríkjunum. Þar
í landi hafa meira en 80% þeirra starfsmanna, sem vinna við tölvur
háskólamenntun. Verðlagning ýmissa hugbúnaðarfyrirtækja hér á landi,
sem selja vinnu forritara með fárra ára starfsreynslu og litla sem
enga sérmenntun er oft með ólíkindum. Mörg þeirra krefjast þóknunar
fyrir selda forritunarvinnu, sem er mun hærri en greitt er fyrir þjón-
ustu verkfræðinga með sex ára háskólanám og áratuga starfsreynslu.
Setja verður spurningarmerki við hæfni þeirra stjórnenda, sem koma
sér í þá aðstöðu að þurfa að kaupa þessa þjónustu fyrir svo hátt verð.
Ekki ástæða til sjálfumgleði
Á undanförnum árum hefur tölvuvæðing hér á landi gengið yfir eins
og um tískufyrirbæri væri að ræða. Umræða um tölvur, tölvutækni
og upplýsingar hefur verið afar einhliða. Hún hefur einskorðast við
lofsöng um hina nýju tækni og þá ótæmandi möguleika, sem menn
telja blasa við okkur á þessu sviði.
Það er löngu tímabært að breyta umræðunni og horfast í augu við
raunveruleikann. Ástæða er til að ætla, að fjárfesting okkar í tölvum
hafi ekki skilað meiri árangri en gerst hefur í Bandaríkjunum og hér
hefur verið lýst.
Á síðustu misserum hafa mörg fyrirtæki hér á landi orðið gjaldþrota.
Flest þeirra hafa þó verið sæmilega tölvuvædd á okkar mælikvarða.
Mörg önnur hafa lent í hinum mestu erfiðleikum með að laga rekstur
sinn að breyttum efnahagsforsendum.
Hröð og góð upplýsingamiðlun, stuttar boðleiðir og sveigjanleg stjórnun
eru kostir tölvutækninnar eins og fyrr segir. Þeir hefðu átt að auðvelda
fyrirtækjunum þá aðlögun, sem var nauðsynleg, þegar rekstrarforsendur
breyttust. Einhver misbrestur hefur þó orðið á því.
Allur dýrðaróður um dásemdir tölvutækninnar hefur því falskan tón,
þar til menn hafa lært að nota hana á réttan hátt. Tölvan er í raun
oft einungis notuð eins og um nýmóðins leikfang sé að ræða, sem
forráðamenn fyrirtækja stilla upp á skrifstofum sínum, meira til skrauts
en gagns.
19 -
Stefán Ingólfsson