Tölvumál - 01.09.1988, Qupperneq 9
einhvers konar "tölvuaðstoð" að halda? Ef markhópurinn er "önnur
fyrirtæki", þá virðist sem stofnunin sé í beinni samkeppni við
hugbúnaðarhúsin, þ.e. þá aðila sem stofnuninni er ætlað að aðstoða.
Sé markhópurinn hugbúnaðarhús, þá verður að teljast hæpið að þau
muni leita til stofnunarinnar, a.m.k. í þeim mæli sem gert er ráð
fyrir í nefndarálitinu.
í skýrslunni segir á einum stað, að æskilegt sé að "... sameina krafta
HÍ í tölvunarfræðum og við þróun hugbúnaðar..." Hvað er æskilegt við
þetta? Á HÍ að fara að þróa hugbúnað? Er ekki markmið HÍ að
stunda og efla rannsóknir? Prófessorar og aðrir fastráðnir kennarar
HÍ þiggja sín laun fyrir kennslu og rannsóknir. Er ekki hætta á
því að ef þessir menn fara að "þróa hugbúnað" í beinni samkeppni við
hugbúnaðarhús, væntanlega gegn aukagreiðslum, að rannsóknarþáttur
þeirra verði útundan?
Niðurgreiddur kostnaður
Stofnun sem þessi gæti orðið nokkuð fjárfrek. í skýrslu nefndar-
innar er fjallað um hvernig unnt væri að fjármagna starfsemina.
"...sértekjur af þjónustu, ráðgjöf og sölu tækninýjunga...". Síðar er
sagt að það beri að "... selja þjónustu á markaðsverði...", Fái
stofnunin inni í niðurgreiddu húsnæði Tæknigarðs, eða nýti sér aðstöðu
Háskólans að einhverju leyti, verður fastur rekstrarkostnaður stofnun-
arinnar mun lægri en samkeppnisaðila hennar. Þetta leiðir aftur af
sér talsverðan aðstöðumun. Við erum mjög hlynntir frjálsri sam-
keppni, í hugbúnaðariðnaði sem annars staðar, en þá eiga líka
samkeppnisaðilarnir að sitja við sama borð.
Þegar starfshópurinn fjallar um hlutverk stofnunarinnar, eru fyrst
talin upp ýmis verkefni sem Reiknistofnun Háskóla íslands hefur
unnið að (til að gefa hugmynd um væntanleg verkefni Upplýsinga-
tæknistofnunar). Ekki verður betur séð en flest þessara verka hafi
verið unnin í beinni samkeppni við hugbúnaðarhús. T.d. eru tínd til
verkefni s.s. ritvinnsluforrit og samskiptaforrit, en nokkur hugbún-
aðarhús hafa einmitt skrifað slík forrit og markaðssett hér innan-
lands. Auk þessa hefur RHÍ tekið að sér ýmis verkefni fyrir aðila
utan Háskólans, verkefni sem eins hefði mátt vinna að utan stofnun-
arinnar. Gjaldskrá Reiknistofnunar hefur iðulega verið mun lægri en
hugbúnaðarhúsa og annar aðstöðumunur verulegur, þannig að hugbún-
aðarhúsin hafa oft átt í erfiðleikum í þeirri samkeppni. Því virðist
sem niðurgreiðslur tíðkist í fleiri geirum en landbúnaði.
TÖLVUMÁL 9