Tölvumál - 01.09.1988, Blaðsíða 16
vill segja um einmenningstölvuna. Árið 1982 keypti Jón Jónsson,
fulltrúi, einmenningstölvu sem reyndist mikill happagripur. Fjórum
árum síðar var bætt í hana 20 MB seguldiski. Árið eftir var minnið
stækkað og skipt um lykilborð. í fyrra var skipt um örgjörva og
gamla svart-hvíta skjánum kastað en litaskjár keyptur í staðinn. Árið
1988 er gamla tölvan glansandi fín með skírum litaskjá og nýtísku-
legu lykilborði á skrifborði eftirmanns Jóns. Þessi sveigjanleiki skilur
einmenningstölvurnar frá eldri gerðum.
Reynsla Bandaríkjamanna
Markaður fyrir notaðar einmenningstölvur fer stöðugt vaxandi
erlendis. Bandaríkin standa fremst í sölu og notkun einmenningstölva.
í tímaritinu Business Week kom nýlega fram að talið er að notaðar
einmenningstölvur verði seldar fyrir 2 milljarða dollara á þessu ári
þar i landi. Markaðurinn fer ört vaxandi. Talið er að veltan muni
jafnvel tvöfaldast á fáum árum. í Bandaríkjunum er talið að 40
milljónir ET tölva séu í notkun á skrifstofum. Árlega eru 8 milljónir
nýrra keyptar. Fjöldi gamalla tækja er tekinn úr notkun. Velta
markaðarins bendir til þess að 3% til 5% af ET tölvum séu árlega
seldar á endursölumarkaði. Mest seldu ET tölvurnar vestanhafs eru
IBM, Compaq og Apple. Endursöluverð þeirra er 63% til 73% af
söluverði nýrra véla. Það á við um tölvugerðir sem enn eru í fram-
leiðslu. Þegar hætt er að framleiða vél fellur endursöluverðið hins
vegar meira. Notaðar IBM líkar ET tölvur, sem hætt er að framleiða
seljast fyrir um 30% af upphaflegu verði. IBM vélarnar sjálfar seljast
þó fyrir hærra verð.
Markaður í örum vexti
Hér á landi eru svipuð afföll af verði notaðra einmenningstölva og í
Bandaríkjunum. Fjöldi endurseldra tölva er hliðstæður ef miðað er við
útbreiðslu. Reikna má með að markaðurinn þróist á svipaðan hátt hér
á landi og gerist vestanhafs. Undanfarin ár hefur markaður fyrir
notaðar ET tölvur samkvæmt upplýsingum tímarita vaxið um 30% á
ári. Kunnugir reikna með að aukningin verði enn meiri næstu árin.
Samkvæmt því má reikna með að innan fárra ára verði 1500 til 2000
notaðar einmenningstölvur seldar á ári hér á landi. Það svarar til að
velta markaðarins verði 60 - 80 milljónir króna á núverandi verðlagi.
Ef svo fer sem horfir verða álíka margar notaðar og nýjar tölvur
seldar eftir 5 - 7 ár. Hversu stór hlutur smáauglýsinga DV verður
þegar þar kemur er ekki auðvelt að sjá fyrir.-si
16 TÖLVUMÁL