Tölvumál - 01.09.1988, Síða 17

Tölvumál - 01.09.1988, Síða 17
REIKNISTOFNUN HÁSKÓLANS SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANDS SURÍS NORDUNET88 Hótel Sögu 22. - 23. september Eins og félagsmönnum Skýrslutæknifélagsins hefur þegar verið tilkynnt verður ráðstefnan NorduNet 88 haldin hér í Reykjavík, að Hótel Sögu, 22. og 23. september næstkomandi. NORDUNET er verkefni á vegum norrænu ráðherranefndarinnar, sem miðar að því að bæta skilyrði til að skiptast á upplýsingum með hjálp tölva, einkum á milli mennta- og rannsóknastofnana. Á þessum árlegu ráðstefnum er reynt að gefa áhugamönnum yfirlit yfir þróun mála og helstu nýjungar síðan síðast. Skýrslutæknifélagið og Reiknistofnun Háskólans ásamt SURÍS, samtökum um upplýsinganet rannsóknaraðila á íslandi, sjá um ráðstefnuna hér. Af þeim sökum var í þetta skipti erindum, sem talin eru höfða til víðari hóps áheyrenda, safnað saman á fimmtudaginn 22. september eftir hádegi. Er félagsmönnum sérstaklega boðið að sækja þann hluta ráðstefn- unnar ásamt síðdegisboði menntamálaráðherra. Gjald fyrir þennan hluta er kr. 2.000,00. Að sjálfsögðu er hverjum sem er heimilt og velkomið að sitja alla ráðstefnuna. Er þess reyndar að vænta, að þeir sem hafa á hendi stjórn og skipulag stórra netkerfa muni hafa verulegt gagn af þeim fróðleik, sem miðlað verður, bæði í erindum og vinnuhópum. Öll ráðstefnan með gögnum, hádegismat og kaffi ráðstefnudagana, ásamt kvöldverði á föstudag, kostar kr. 14.000,00. Dagskráin er nú að verða endanlega frágengin og er birt hér á næstu síðum á ensku, en enska verður tungumál ráðstefnunnar. Skráning fer fram á skrifstofu Skýrslutæknifélagins í síma 27577 og er félagsmönnuin bent á að tilkynna þátttöku sem fyrst, því rými í ráðstefnusal er takmarkað. Sjá dagskrá á næstu síðum > > > > TÖLVUMÁL 17

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.