Vísir - 28.04.1962, Blaðsíða 2
2
Laugardagurinn 28. apríl 1962
VÍSIR
§§nLí)j5;<|g
yny Í7J-J 1 >
UZQS-'
Arósar
5/æw*
fí'ijólK^
purZ-
i rnó-r
OfúHek-
jcur {>k.iv'
io ? -r
u n ar-
í a, f,
Leiðrétting
í þættinum Párað í flýti í gær
var það haft eftir flugmanni
flugvélarinnar sem hlekktist á
á Reykjavíkurflugvelli um dag-
inn, að hann hefði kallað upp
flugturninn eftir óhappið og
sagt honum að benzín flæddi
út úr vélinni. Hefði þó liðið
stundarfjórðungur þar til
slökkvilið vallarins kom á vett-
vang.
Flugmaðurinn, Magnús Sverr-
isson hefur nú snúið sér aftur
til blaðsins og beðið um að þetta
sé leiðrétt. Segir hann að Arnór
Hjálmarsson yfirflugumferðar-
stjóri hafi skýrt sér frá því að
aðeins hafi liðið tvær mínútur
frá því að óhappið skeði, og þar
til slökkviliðið var komið á vett-
vangi. Er honum tjáð að þetta
komi fram á segulbandsupptöku
í flugturninum.
Flugmaðurinn vill því, þó hann
hafi ekki sjálfur heyrt segul-
bandstökuna leiðrétta þennan
misskilning og telur að mis-
skilningur hafi komið fram
vegna þess hve mikið honum
varð um óhappið og allt flóandi
í benzíni.
► Frá fyrra laugardegi höfðu sex
konur í kvennadeild geðveikra-
hælisins í Bridgend, Cardiff lát-
ist úr bólunni.
Krossgátuverðlaunin
það er nú hálfur mánuður
síðan síðasta verðlaunakross-
gáta Vísis kom í blaðinu. Stafar
þetta af páskahelginni, þá eru
blöðin ekki gefin út vegna fría
í prentsmiðjunum og ekki var
hægt að koma krossgátunni fyr-
it í síðasta blaði vegna auglýs-
ingaflóðsins.
Var það ráð því tekið að
fresta verðlaunaveitingu þar til
nú eða í eina viku. Blaðinu bár-
ust 304 ráðningar og voru þær
flestar réttar. Þegar dregið var
um verðlaunin kom upp nafn
Jóhönnu Gunnarsdóttur, Grett-
isgötu 2A og er hún beðin um
að vitja verðlaunanna, 500 kr
á ritstjórnarskrifstofu Vísis á
mánudaginn.
| Ráðning síðustu gátu birtist í
blaðinu og ennfremur ný kross-
gáta, sem hinn áhugasami hópur
krossgátuunnenda getur nú far-
ið að glíma við eftir hálfsmán-
aðar bið. Ráðningar merktar
„verðlaunakrossgáta sendist
annaðhvort í afgreiðsluna í Ing-
ólfsstræti eða ritstjórnina á
Laugavegi 178.
Hungursneyð
Framh. af 8. síðu.
framkomu valdhafanna í Peking
slðan þeir komust til valda.
★
Eitt versta einkenni hungurs-
neyðarinnar £ Kína er það, hve
manngildi þar I landi hefur
hrapað. Þegar kommúnistar
komust til valda hrósuðu þeir
sér mjög af þvl í byrjun, að
þeir hefðu uppreett betl og
vændi I borgunum. Nú er á-
standið í þessum efnum orðið
verra en það hefur nokkru sinni
verið. í öllum kfnverskum borg-
um eru strætin morandi af betl-
urum og vændiskonum.