Vísir - 28.04.1962, Síða 3
Laugardagurinn 28. apríl 1962
VISIR
3
/
i
i|ií:
w '
Tízka karla
og kvenna
Þegar kaupmannasamtökin
héldu nýlega árshátíð á veitinga
staðnum Lido var efnt þar til
tízkusýningar, sem vakti mikla
athygli. Var sýnd þar bæði
kven- og karlmannafatatízkan.
Kvenfötin sýndi tízkuverzlunin
Guðrún á Rauðarárstig en karl-
mannafötin Herradeild P. & Ó.
í Pösthússtræti.
Sumt af kvenfatnaðinum, sem
þama var sýndur var alveg ný-
kominn til landsins. Höfðu föt-
in verið tekin upp sama daginn
sem sýningin var haldin.
Það er nú orðið all aigcngt
hérlendis, að nýjasta lcvenfata-
tizkan sé sýnd þannig. Hitt er
óvenjulegra að sýning sé hald-
in á karlmannafötum og ber
það þess vott hve áhugi karl-
manna fyrir þvi að halda sér til
fer vaxandi. Mun þess gæta sér-
staklega ' meðal ungra manna,
að þeir fylgjast vel með því sem
gerist í þessum efnum á megin-
landinu.
Myndsjám birtir í dag nokkr-
ar myndir sem I. M. ljósmynd-
ari Vfsis tók í Lido, á þessari
tízkusýningu.
Guðrún Þorsteinsdóttir sýnir Jjósbláa ullartweed-kápu. Að
aftan er stór opin klauf. Kápan, sem er mjög kvenleg, er
hollenzk. — Hatturinn er úr hattabúð Soffíu Pálmadóttur.
Öm Hauksson sýnir unglinga
peysu og buxur í gráum lit.
Peysan er með Ieðurbrydd-
ingar á vösum og hálsmáli.
Prjónn gengur f gegnum
flibbann en það er nú mjög
í tízku hjá ungum mönnum.
Þráinn Kristjánsson sýnir dökkbrúnan enskan Terylenc-
frakka frá Weatherlux í London og ljós sumarföt og þýzkan
hatt af nýjustu gerð með Iítil börð í sama lit og frakkinn.
Bjami Ámason sýnir jakka-
peysu. Bak og ermar eru úr
grófprjónaðri ull, apaskinns-
boðungar. Húfan er þýzk, af
mjög nýstárlegri gerð, sem er
mikið í tízku á meginlandinu.
Sigrún Ragnarsdóttir sýnir
svissneska, ljósbláa Terylene
regnkápu, sem er hægt að
þvo og þarf ekki að straua.
i