Vísir - 19.05.1962, Blaðsíða 1
52. árg. — Laugardagur 19. maí 1962. — 112. tbl.
Útsvcr borgarbáa hafa
stórlega fækkaS
Meðalfjölskyldn sparar jiásundir króna
i
Undir stjórn Sjálfstæðismanna í borgarstjórn hafa
útsvör Reykvíkinga lækkað mjög verulega, svo að
! mörgum þúsund krónum nemur á meðalf jölskyldu.
★ Árið 1958 greiddu hjón með 3 börn, sem höfðu 80 þús.
krónur í hreinar tekjur 9.643 krónur í útsvar til bæjarins. I fyrra
greiddu þessi hjón ekki nema 6.500 krónur í útsvar. Lækkunin
nemur hvorki meira né minna en 3.143 krónum.
★ Gildandi útsvarsstigi í Reykjavík er lægri en í nokkrum öðr-
um kaupstað á landinu.
★ Það var fyrir atbeina Sjálfstæðismanna á þingi og í stjórn
1960 sem þessi mikla lækkun kom til framkvæmda.
Héðinshöfði — hin nýja miðstöð Æskulýðsráðs.
Æskulýðsráð Reykjavíkur
fær Héðinshöfða til umráða
★ Borgarstjórn Reykjavíkur hef
ir ákveðið að afhenda Æsku-
lýðsráði Reykjavíkur nú í haust
húsið Héðinshöfða við Borgar-
tún til afnota fyrir aðalstöðvar
sínar.
★ Með þessu er enn eitt fram-
farasporið stigið í þá átt að
tryggja æsku borgarinnar skil-
yrði til þess að verja tómstund-
um sínum við þroskandi við-
fangsefni.
★ Tjarnarbær hefir þegar ver-
ið afhentur æsku borgarinnar.
Æskulýðsráð hefir að undan-
fömu verið til húsa að Lindar-
götu 50 en það er mjög ófull-1
nægjandi húsnæði.
Héðinshöfði er stórt hús
og glæsilegt. Nokkurrar við-
gerðar þarf það þó við, áður
en það verður tekið í notkun.
Skýrði Bragi Friðriksson,
framkvæmdarstjóri Æsku-
lýðsráðs, blaðinu svo frá að
ráðið gæti sjálft annazt við-
gerðir þær að talsverðu leyti,
með aðstoð unglinga sem
starfa innan vébanda ráðs-
ins.
Ráðgert er að hægt verði
að flytja þangað, áður en
starfsemi hefst af kraft;
næsta haust. Nokkuð hefur
• verið um það rætt að undan í
förnu hvað gert skyldi við:
Héðinshöfða. Kom meðal
annars fram uppástunga um
að flytja þangað listasafn
borgarinnar. Segir séra Bragi
að húsið henti mjög vel til
starfsemi ráðsins og verði
hin mesta umbót.
Ekki er fyllilega ákveðið
I
enn hvort áfram verður not-
að húsnæðið á Lingargötu 50.
Það er þó talið líklegt, þar
sem starfsemi ráðsins hefur
aukizt svo mjög á undan-
förnum árum að húsnæði hef
ur skort. Ráðið hefur haft
starfsemi sína á ýmsum stöð
um í borginni að undanförnu
og er ætlunin að halda því
áfram þó að þetta aukna hús
næði fáist. Telur séra Bragi
líklegt að unglingar vilji held
ur sækja staði, sem eru í
þeirra hverfum. Héðinshöfði
verður þá frekar notaður fyr-
ir starfsemi þeirra sem
lengst halda áfram, auk þess
að þar verður skrifstofa ráðs
ins.
ar eru ókomnar
Dagsbrún hefur ekki lagt fram
neinar kröfur í kaupgjaldsmálun-
um ennþá, sagði Eðvarð Sigurðs-
son formaður Dagsbrúnar í við-
tali við Vísi í gærkvöldi.
Eðvarð sagði ennfremur að við-
ræðurnar færu að þessu sinni fram
með nýstáriegri hætti en áður og
iiggja til þess ýmsar ástæður, m.a.
þær að nú eru það aðeins kaup-
gjaldsákvæðin, sem sagt hefur
verið upp og eru til umræðu. Önn-
ur atriði samningsins eru bundin
og þeim hefur ekki verið sagt upp.
Þá gat Eðvarð þess að eftir í
samninga þá ,sem gerðir voru á j
Akureyri núna í vikunni, hafi
nokkuð annar blær komið á samn-
ingaviðræðurnar hér syðra. Þó nafi
þar komið fram atriði, sem ekki
henta hér, einkum í sambandi við
sérflokkataxta.
Viðræður milli verkamanna og
vinnuveitenda hafa staðið yfir um
nokkurt skeið. Eru það 3ja manna
nefndir að’ háífu launþega og
Vinnuveitendasambandsins, sem
ræðst hafa við og munu halda
þeim viðræðum áfram Meðal ann-
ars var viðræðufundur ákveðinn
kl. 9 árdegis í dag. í gær ræddu
fulltrúar launþega einnig við bæj-
aryfirvöldin.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
lengi barizt fyrir því að bæjar-
og sveitarfélög fengju nýja tekju
stofna, svo hægt yrði að lækka
útsvörin. Fyrir forgöngu Gunn-
ars Thoroddsen fjármálaráð-
herra var mikilvægt skref stigið
í þessum efnum á þingi 1960 er
fimmtungur söluskattsins var
Iátinn renna til sveitarfélag-
anna. Gerði það útsvarslækkun-
ina mögulega.
Fjölmargar Iáglaunafjölskyld-
ur í Reykjavík eru nú algjör-
lega tekjuskattslausar, en Sjálf
stæðismenn höfðu forgöngu um
að fjölskyldufaðir með 3 börn
greiðir engan tekjuskatt af
hreinum tekjum undir 100 þús.
krónum.
Eftirfarandi tafla sýnir hve
borgarbúar greiða miklu lægri
útsvar nú en fyrir þessar mikil-
vægu breytingar, sem samþykkt
ar voru fyrir atbeina Sjálfstæðis
manna.
Hreinar tekjur hjóna með 3 börn.
ÚtsVar 1958 Útsv. 1961
60 þús. kr. . . 4.453 kr. 3.000 kr.
70 — — . . 7.048 — 4.900 —
80 — — . . 9.643 — 6.500 —
Hreinar tekjur hjóna með 5 börn.
Útsvar 1958 Útsv. 1961
60 þús. kr. . . 1.650 kr. 1.200 kr.
70 — — . . 4.245 — 3.100 —
80 — — . . 6.840 —- 4.800 —
EFTIRSÓTTAR
LAXVEIÐIÁR
Tvær dýrustu laxveiðiár lands-
ins, Miðfjarðará og Vatnsdalsá eru
nú að fullu leigðar. Tíu manna hóp-
ur hefur tekið Miðfjarðará á leigu
og greiðir fyrir 561.000. Vatnsdalsá
hefur Guðmundur Ásgeirsson tekið
á leigu fyrir 311.000 krónur.
Veiðitíminn í Miðfjarðará hefst
1. júní og stendur til 31. ágúst. Áin
er mynduð af þrem ám sem renna
saman, Vesturá, Núpsá og Austurá
og fylgja þær með í leigunni. í
þessum ám öllum er leyft að hafa
átta stengur, um aðalveiðitímann.
I ánni veiddust í fyrra um 1940
laxar, en stangardagar eru um 660.
Fyrst munu aðeins verða fjórar
stangir í ánni, síðan sex, en eftir
24. júní verða þær átta. Stafar
þetta af því að laxinn gengur ekki
jafnfljótt á öll veiðisvæðin.
Undarleg atvikakeðja varð til
þess að þrennt slasaðist í gærdag
á mótum Réttarholtsvegar og Soga
vegar, tveir drengir og einn full-
orðinn kvenmaður.
Kvenmaðurinn var þarna á ferð
í bifreið, en tveir 6 ára gamlir
drengir voru hjólríðandi á götunni.
Varð annar þeirra, Þór Sigurbjörns
son, Hólmgarði 19, fyrir því óhappi
að hjóla á bifreiðina. Kastaðist
hann af hjólinu í götuna og meidd-
ist lítilsháttar. Kvenmaðurinn í bif-
reiðinni, Guðbjörg Þórarinsdóttir,
Vesturbrún 25, fór út tii að koma
drengnum til hjálpar. En á meðan
hún var að stumra yfir honum
kom hinn drengurinn, Ársæll Ár-
sælsson, Hólmgarði 29, aðvífandi á
hjóli sínu, hjólaði á Guðbjörgu
með þeim afleiðingum, að hún
hlaut áverka á hálsi, en sjálfur
skrámaðist Ársæll litli á höfði. —
Ekkert þeirra mun þó vera alvar-
lega meitt.
Rétt eftir hádegið í gær varð
harkalegur árekstur a Laugatungu
Framh. á bls. 5
Veiðimönnum verður séð fyrir
gistingu og fæði á Skeggjastöðum
við Vesturá.
Veiðitíminn í Vatnsdalsá hefst
þann 15. júní og stendur til 15.
september. í ánni eru sex veiði-
svæði, þrjú silungssvæði og þrjú
laxasvæði. Á þessi hefur ekki verið
leigð út undanfarna áratugi og er
því ekki vitað nema eins mikill
lax muni reynast á silungssvæðun-
um, eins og á laxveiðisvæðunum.
Tryggvi Ófeigsson hefur haft ána
á’leigu undanfarin 5 — 10 ár og hún
aðeins verið notuð af honum og
gestum hans. Þar áður hafði ána á
ieigu Englendingur að nafni Fort-
esque, sem hafði hana um áratugi.
Tryggvi Ófeigsson gaf upp 399
laxa veiði í fyrra, en ekki er að
miða við það, þar sem áin var
langt frá því fullnotuð. í Laxá í
Ásum, sem rennur £ sama ós og
Vatnsdalsá, veiddust £ fyrra um
1200 laxar, en hún er mun vatns-
minni.
Mikil eftirspurn var eftir ánni og
buðu 16 aðilar £ hana £ vor. Þeirra
á meðal voru Tryggvi Ófeigsson og
Fortesque. Englendingur að nafni
Stewart, sem skrifaði bók um lax-
veiðar á Islandi sagði £ grein £
ensku blaði f vetur að Vatnsdalsá
væri eina áin á íslandi, sem ekki
hefur verið fullnýtt svo árum skipt
ir (underfished for years). Ekki
liggur þvi ljóst fyrir enn, hver
veiðin verður þegar hún loks verð-
ur nýtt.
Gistingu mun veiðimönnum séð
fyrir £ Kvennaskólanum á Blöndu-
Framh. á bls. 5