Vísir - 19.05.1962, Page 2
2
V'ISIR
Laugardagur 19. maí 1962.
“n i—>* 5=n=a
%>5%^
V/y///mm//////áM^//////ám^//Æ
IX“EL5~ö
Myndin af einu atriði æfingarinnar.
NOC Af ífNim
- setjir John Wood
Það er laglegur hópur ungra
pilta, sem æfir nú á degi hverjum
í Valsheimilinu undir stjórn þeirra
John Wood, bandaríska körfuknatt
leiksþjálfarans og hins góðkunna
Einars Ólafssonar, fþróttakennara.
Þarna var t.d. í gærkvöldi hópur
15 pilta, sem æfa þarna.
Bandaríski körfuknattlciksþjálf-
arinn sagði í viðtali að hann væri
mjög ánægður með piltana. Þeir
væru margir hverjir bráðefnilegir,
en aðstæður til körfuknattlciks
væru ekki eins góðar hér og í
„föðurlandi“ körfuknattleiksins,
Bandaríkjunum, en þar væri hægt
að æfa utanhúss, er veður er gott
á sumrin, en slíkt kæmi ekki til
greina hér og því neyddust menn
til að æfa inni. Hann sagði að Is-
lendingar ættu að geta skapað góð
lið í körfuknattleik, en auðvitað
mætti ekki gleyma æfingunni, sem
yrði að vera nokkurn veginn stöð-
ug. Wood kvaðst hafa orðið var
við hinn auðsæja „frumbýlings-
hátt“ í körfuknattleiknum hér,
enda er vart hægt að segja að
körfuknattleikur sé búinn að taka
sér almennilega bólfestu hér. á
Iandi, þótt vinsældir hans fari sí-
vaxandi.
„Ég vildi að áhuginn fyrir körfu-
knattleik væri jafnmikill og hann
/V/WWWWWWWVWV'
Um helgina
l/WWWVWVWWWVWSl
Firmakeppni Golfklúbbs Reykja-
víkur hefst á Golfvellinum í dag
og verður lcikinn höggleikur (út-
sláttur).
Hveragerði. Á laugardag og
sunnudag fer fram Sundmeistara- j
mót íslands í sundlauginni í i
Hveragerði.
ÍR heldur fyrsta frjálsíþróttamót j
ársins á Melavellinum kl. 2 á
sunnudaginn.
Reykjavíkurmótið i knattspyrnu
heldur áfram á MelaVelIinum kl.
8.30 á sunnudagskvöldið með Ieik
Fram og KR, sem margir mundu
segja að væri ÚRSLITALEIKUR
mótsins.
virðist vera hérna úti á knatt-
spyrnuvellinum,“ sagði hann og
benti í áttina að knattspyrnumann-
virkjum Vals, en þar eltu tugir
pilta knöttinn fram og aftur.
Ekki svo að skilja að þeir Einar
og Wood þurfi að kvarta yfir
mannahraki, síður en svo. Hjá
þeim æfa um 60 drengir og er
þeini skipt í 5 flokka, en ennþá
má bæta við, sagði Einar, og eink-
um væru velkomnir drengir, sem
ekki hafa æft áður. Við viljum
gefa öllum áhugasömum tækifæri,
og þeir ættu að koma á æfingarn-
ar í Valsheimilinu, en þær eru alla
virka daga nema laugardaga milli
kl. 5-7.
Sundmeistaramótið
haldið í Hveragerði
Sundlaugin í Hveragerði verður
væntanlega vettvangur stórra við-
burða í sundíþróttinni um helg-
ina, en þar fer fram Sundmeistara-
mót fslands, í hinni 50 metra Iöngu
laug, sem Hvergerðingar ráða yfir.
Keppt verður í 8 greinum fyrri
daginn, en 10 þann síðari og einnig
í sundknattleik milli Ármanns og
KR, sem eru einu liðin, sem mæta
til keppni.
Guðmundur Gíslason, IR
Hörður B. Finnsson, ÍR
Okkar menn fá
harða mótstöðu
Norðmenn, sem við eigum í
höggi við í knattspyrnu f sumar
virðast eftir öllum sólarmerkjum
harðir í horn að taka. Nýlega unnu
þeir hálfatvinnumenn Hollendinga
mjög óvænt en þó alveg verðskuld-
að í landsleik í Ósló.
Norðmenn byrjuðu heldur rólega
og Hollendingarnir sóttu á með
skothríð, en Norðmenn vörðust, en
Hollendingum tókst þó að skora á
35. mínútu þegar miðherjinn Lind-
en skallaði laglega í markið. Norð-
menn jöfnuðu síðan í síðari háif-
leik og voru þar að verki þeir
Bjöm Bofgen og Roald Kniksen,
sem brutust f gegnum varnir Hol-
lendinga, en Kniksen skoraði þetta
mark, sem var geysivel undirbúið
af norskum. Sigurmarkið skoraði
svo Björn Borgen eftir skemmtilegt
gegnumbrot ellefu mínútum eftir
fyrra markið.
Holiendingar áttu nokkur færi í
síðari hálfleik en þau nýttust ekki
og Sverre Andersen markvörður
átti ekki erfitt með að verja.
Torbjörn Svendsen Iék nú sinn
103. landsleik fyrir Noreg og jafnar
met Billy Wrigth því væntanlega
þann 11. jún n.k. gegn Dönum á
Idrædts-Parken.
Sem sagt. Það verður hættulegt
landslið, sem við mætum á Laug-
ardalsvelli snemma í júlí í sumar
og okkur er eins gott að undirbúa
okkur af kappi, ef við eigum ekki
að verða okkur til skammar. A.m.
k. eru Danir orðnir mjög uggandi
fyrir Iandsleikinn við Norðmenn
þann 11. júní n.k.
Þjálfararnir ræðast við um verk sitt. Til vinstri er Einar Ólafs-
son en Bandaríkjamaðurinn John Wood er sá með boltann.
Sumarbúðir KR í
skíðalandi beirra
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
mun í sumar, ef næg þátttaka fæst,
starfrækja sumarbúðir í hinum
myndarlega skíðaskála sínum í
Skálafelli.
Skíðaskálinn er hið heppilegasta
hús til þessarar starfsemi, Iiggur
afsíðir, en er þó búið nýtízku
þægindum sem fylgja rafmagni og
fullkomnu hitunarkerfi.
Ráðgert er að haldin verði 2
námskeið er standi 3 vikur hvert
og hefst fyrra námskeiðið þann 18.
júní, en hið síðara þann 9. júlí.
Tekin munu verða 30 börn á
hvert námskeið, ca. 22 drengir og
ca. 8 telpur á aldrinum 9 til 13
ára. Munu telpurnar búa á neðri
hæð hússins, en drengirnir á þeirri
efri.
I fyrra var gerður grasvöllur við
skálann og munu verða kenndar
ýmsar íþróttir og leikir, auk þess
sem farnar verða gönguferðir um
nágrenni skálans.
Fylgt verður ákveðinni dagskrá
sem í aðalatriðum verður sem hér
segir: Kl. 8.00 farið á fætur —
þvottur og snyrting. 8.30 skála-
skoðun. 8.40 morgunverður. 9.15
fáninn. 9.20 morgunleikfimi. 9.30
frjálst. 10.00 létt vinna. 12.00 há-
degisverður. 13.00 leikir og íþrótt-
ir. 15.30 kaffi. 16.00 leikir og
íþróttir. 19.00 kvöldverður. 19.50
fáninn. 20.00 frjálst. 21.00 kvöld-
vaka. 22.00 kvöldskattur. 22.10
háttað. 2.3 kyrrð.
Hannes Ingibergsson íþrótta-
kennari og kona hans munu veitta
námskeiðunum forstöðu, og eru
þeir sem hyggjast notfæra sér
þessa sumarbúðastarfsemi fyrir
börn sín, beðnir að hafa sem fyrst
samband við Hannes f sfma 24523.
Ennfremur eru veittar frekari upp-
lýsingar um námskeiðin f síma
13025 og eru f gegnum bæði síma-
númerin skráðir þátttakendur í
námskeiðunum.
•23]