Vísir - 19.05.1962, Page 7
Laugardagur 19. maí 1962.
ViSIR
i a o> d n ■ i
□ I
Vikan 20. maí til 26. maí.
Hrúturinn 21. marz til 20. apríl:
I vikunni hættir þér til að gera
þér ónóga grein fyrir hlutunum.
Þú ættir því að athuga vel gang
mála áður en þú tekur mikil-
vægar ákvarðanir, því veilur
geta Ieynzt að baki hluta, sem
þig sízt grunar. Sérstaklega á
þetta þó við I því tilfelli að þú
þurfir að undirrita mikilvæg
Plögg.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Fjármálaviðskipti við aðra er
nú undir sérstakri áherzlu, svo
virðist, sem þér bjóðist tækifæri
til að auka við eignir þinar eða
hlúa að þeim á einhvern hátt
svo vel fer á. Eitt ætturðu að
varast sérstaklega nú, en það
er að þér hættir til að vera of
örlátur við maka eða félaga
þinn, en þú ættir að reyna að
láta sem minnst bera á pyngj-
unni, þessa dagana, þvi annars
verða nógir til að létta á henni.
Tvíburamir, 22. maí til 21. júní:
Ef þú vilt halda þig utan vand-
ræðanna nú ættirðu alls ekki að
taka fé að láni eða lána öðrum.
Þú ættir heldur ekki að reikna
með of miklum hagnaði fyrir
tilstuðlan þeirra verzlunarsamn
inga, sem undirritaðir eru í vik
unni, eða af viðskiptum, kaup-
um og sölu eða hverju, því sem
þú stendur nú í. Þér væri því
bezt að geyma slfkt þar til í
næstu viku, svo fremi að þér sé
það á nokkurn hátt mögulegt.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Samband þitt við fólk almennt
verður að öllum líkum undir
nokkurri spennu þessa vikuna,
láttu þér því ekki bregða þó ó-
kunnugt fólk, sem þú kannt að
þurfa að leita til verði eitthvað
styrt í snúningum við þig, allt
tekur sinn tíma. Þú ættir einnig
að Ieitast við að gera sem mest
sjálfur af þvl sem gera þarf og
treysta sem minnst á aðra.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst: I
vikunni ættirðu sem mest að
fylgja ráðleggingum annarra
varðandi þau viðfangsefni, sem
þú starfar við nú og einbeita
þér að starfinu og viðskiptun-
um. Leitastu einnig við að vera
liðlegur og hjálpsamur, því þér
mun verða veitt ríkuleg umbun
erfiðis þíns.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Vertu á varðbergi gegn áhættu-
sömum fyrirætlunum, sérhverri
athöfn, sem truflað getur sam-
band þitt við ástvinina, slíkt
gæti haft hinar alvarlegustu af-
leiðingar fyrir áframhaldandi
vinfengi. Þú ættir ekki að leita
eftir viðurkenningu annarra á
verkum þínum nú. láttu það
bíða betri tíma.
Vogin, 24. ept. til 23. okt.: í
vikunni ættirðu að láta fólk
vita, hvernig þú lítur á málin,
því nú eru fullar horfur á að
aðrir geti skilið þína afstöðu
og haft samúð með þér. En síð-
ar í vikunni er hins vegar hætt
við nokkrum taugaæsingi í sam-
bandi við nágrannana og ætt-
ingja, því þá eru þeir ekki jafn
hliðhollir þér.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Djarfar og frumlegar aðgerðir
geta fært þér gull í mund nú,
og einnig gert þig reynslunni
ríkari. Þú ættir . ví að gripa
hvert það tækifæri, sem fram
hjá þér fer f þessu augnamiði.
Einnig væri ekki úr vegi fyrir
þig að hirða um eigur þínar
fasteignir og lausafé, því svo
virðist, sem full þörf sé á því.
Ef þú átt garð væri ágætt að
þrífa hann til nú.
Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Þú nærð beztum árangri í
þessari viku með því að skjóta
beint í mark, þetta á við yfir-
leitt allt, sem þú kannt að fást
við og svo einnig bendir það til
að tilvalið sé fyrir þig að stefna
að nýjum markmiðum og hefja
ný verkefni og viðfangsefni. Þú
ættir að varast of mikla sín-
girni I sambandi við samskipti
þín og maka þíns sérstaklega
fyrri hluta vikunnar.
Steingeitin, 22. des. til 20. jan.:
í vikunni eru allir að vilja gerðir
að styðja þig og styrkja og taka
fullt tillit til ummæla þinna og
skoðana. Þér ætti að veitast auð
velt að framfylgja persónuleg-
um málefnum.
Vatnsberinn, 21. jan. til 21.
febr.: Vikan ætti að reynast þér
mjög ánægjuleg, hvað varðar
samband þitt og vinfengi við
vini og kunningja. Þú ættir einn
ig að fagna nýjum kunningjum,
sem kynnu að verða kynntir fyr
ir þér, því þeir munu reynast
þér vel. Samt ættirðu ekki að
gera þér of háar gyllivonir í sam
bandi við árangur í ástamálun-
um, ef þú ert í þeim hugleið-
ingum.
Fiskamir, 20. febr. til 20. marz:
Ef þú þarft að framfylgja ein-
hverjum metnaðarmálum þínum
í sambandi við atvinnuna eða
stöðu þína almennt í þjóðfélags
stiganum þá ættirðu að grípa
tækifærið til þess nú fyrri hluta
vikunnar. Samt ættirðu ekki að
gera þér háar vonir í sambandi
við skemmtanir eða árangur af
þeim, varðandi þessi málefni, þó
þú hittir yfirmann þinn þar.
Tvær ferð-
ir F.í.
Ferðalelag íslands efnir til tveggja
skemmtiferða á sunnudaginn keni-
ur.
. Önnur þeirra er suður á Reykja-
neg um Hafnir að Reykjanesvita
og þaðan til Grindavíkur, Krísu-
víkur og Kleifarvatns.
Hin ferðin er upp í Hvalfjörð.
Ekið verður inn i Botnsdal og það-
an gengið á Hvalfell.
I báðar ferðirnar verður lagt frá
Austurvelli kl. 9 á sunnudagsmorg-
Vorhreingerningar standa nú
fyrir dyrum ög er því ekki úr
vegi að gerð sé nokkur grein
fyrir, hvaða tökum bezt er að
taka það verk.
í fyrsta lagi verður að gera
áætlun um starfið. Við undir-
búninginn verður að sjálfsögðu
að taka fullt tillit til allra að-
stæðna t.d. stærðar húss eða
íbúðar, hversu margir muni
taka þátt í starfinu og hve dug-
legt fólk er o. s. frv.
Ef vinnan er framkvæmd kerf
isbundið og skipulega, gengur
allt miklu betur, og jafnframt
verður erfiðið og óþægindin
sem hreingerningum vilja oftast
verða samfara minni. Ef jafn-
mikið verk og allsherjar hrein-
gerning er unnið skipulagslaust
og af handahófi og rokið úr einu
í annað, margfaldar það erfið-
ið, en hefur líka í för með sér
ókyrrð á heimilinu og margs
konar óþægindi fyrir heimilis-
fólkið. Bezt er því að taka sér
blýant í hönd og skrifa hjá sér
hvað gera þárf og skipta verk-
inu niður á hina ýmsu daga vik-
unnar.
Ef gera þarf við eitthvað á
heimiiinu, er sjálfsagt að láta
lagfæra það áður en byrjað er
á hreingerningunum. Oft reyn-
ist líka nauðsynlegt að tryggja
sér aðstoðarfólk. Þá er rétt að
nota tækifærið til að laga ýmis-
legt smávegis t.d. bera á hurð-
arlamir, athuga öll rafmagnsá-
höld (láta gera við trosnaðar
rafmagnssnúrur), brýna eldhús-
hnífana'og hnífinn í söxunarvél-
inni (munið líka að brýna gata-
stykkið).
Næst þarf að hugsa um að
kaupa hreinlætisvörur. Burstar
og kústar þurfa að vera tiltæk-
ir, og hreinsiefni fyrir veggi,
húsgögn, glugga, teppi og margt
fleira. Er nú til mikið úrval af
alls konar hreinlætisvörum. En
áður en keypt er, er bezt að gá
að því, til hvers það efni, sem
við höfum í huga að kaupa sé
notað. Ef notkunarreglur fylgja,
er hyggilegt að kynna sér þær,
því varla er hægt að búast við
góðum árangri ef ekki er farið
eftir settum reglum. Jafnvel get
um við átt á hættu að skemma
hlutina sem verið er að hreinsa.
Þar sem heiðarleg samkeppni
/ % j:
, ^—.—.—
á sér stað, hljóta verksmiðjueig-
endur sem framleiða hreinlætis-
vörur, að sjá hag sinn í því að
semja góðar notkunarreglur,
svo að neytandinn verði ánægð-
ur með árangurinn. Ennfremur
eru allar líkur til þess, að verk-
smiðjueigandinn sjái einnig hag
sinn í því, að telja upp alla þá
hluti sem hægt er að nota
hreinsiefnið á, og því ráðlegast
að hreinsa ekki hlut með hreinsi
efninu sem ekki eru upptalin á
umbúðunum.
Áður en hreingerningin byrj-
ar er tekið til I öllum skápum
og skúffum. Öllu óþörfu sem í
þeim kann að vera, á tafarlaust
að fleygja. Hjálpræðisherinn og
ýmsar aðrar stofnanir taka við
notuðum fatnaði, sem við þurf-
um ekki á að halda lengur. Vetr
arfötin eru hreinsuð eða viðr-
uð þvi að mölurinn er sólgnast-
ur í óhrein föt og þess vegna er
áríðandi að öll ullarföt séu
hrein. Til þess að liðka skúffur
er ágætt að bera á þær talkum
eða kertavax.
Loks þarf að ákveða, i hvaða
röð á að hreinsa herbergin. Rétt
er að taka aðeins eitt eða tvö
herbergi fyrir í einu, og ef hægt
er, verður að vera til rólegur
staður handa þeim meðlimum
fjölskyldunnar, sem ekki taka
þátt í hreingerningunni. í ein-
býlishúsi er oftast byrjað að
gera hreint á Ioftinu og síðast í
kjallaranum. í íbúð er byrjað í
innstu herbergjunum og síðast í
eldhúsinu og forstofunni.
Á sjálfum hreingerningardög-
unum þarf að hafa einfaldan
mat, sem fljótlegt er að elda.
Nú er öllum undirbúningi lok-
ið. Til er gamalt máltæki, sem
hljóðar svo: Hálfnað er verk, þá
hafið er. Þetta á ekki síður við
um hreingerningar en hvert ann
að verk. Þegar vinnan er vel
undirbúin, verður hún leikur
éinn, og allt gengur eins og í
sögu.
Merkiieg iiffræðiathugun
Læffur mí stérfusn
Ambassador Bandaríkjanna
á íslandi, James K. Penfield,
jkýrir svo frá, að Benjamin
VVarfield, forstjóri upplýsinga
deildar bandaríska sendiráðs
ins hér, hafi sagt sig úr utan-
ríkisþjónustu Bandaríkjanna.
Ambassadorinn getur þess,
tð Warfield hafi tekið þessa
ikvörðun að ráði lækna í
Washingtonborg, en þar hef-
ur hann dvalizt í orlofi síðan
im miðjan apríl,
Ekki hefur aftirmaður
Warfields hér enn ver'ð út-
nefndur.
í „Þjóðviljanum" 29. apríl s.l. er
sagt frá merkilegri líffræðiathug-
un, sem gerð hefur verið austur í
Rússlandi, og var alveg ástæðu-
laust þarna í blaðinu að vera að
gera nokkra athugasemd við það,
þó að greinarhöfundurinn, Sveinn
Haraldsson, nefndi kenningar dr.
Helga Pjeturss í sambandi, við
þetta. Eins og kunnugt mætti vera,
þá hélt dr. Helgi þvi fram, sem
auðvitað er ekki nein „háspeki“.
að frá hverjum lifandi stafi kraft-
ur eða geislan, sem ekki sé að
öllu leyti háður þeirri takmörkun,
sehi hinn Iíflausi kraftur er, og
virðist mér, eins og Sveini Haralds
syni, að þessi rússneska athugun
styðji heldur þá kenningu. Er í því
sambandi mjög athyglisvert það,
sem sagt er frá þarna í greininni,
að bjarmi sá sem Ijósmyndun meö
hátíðnistraumi sýndi að lagði af
laufblaði, skyldi einungis koma
fram meðan laufblaðið var lifandi,
en breytast svo og hverfa með öllu
þegar laufblaðið dó. Og minnist
maður nú þess að auki, sem ég
gat um i grein fyrir ekki mjög
löngu og einnig hefur verið sann-
að austur í Rússlandi, að hugsana-
flutningur varð ekki hindraður með
efnum, sem talin eru geislaheld,
þá má með sanni segja, að fullgild
sönnun hafi þegar fengizt um, rð
möguleikar lífgeislans séu aðrir og
meiri en annarrar geislunar.
II.
Fyrir löngu benti dr. Helgi Pjet-
urss á þá staðreynd, sem margir
greindir menn og athugulir. hafa
I síðan tekið eftir, að draumsýnir
' manna eru jafnan ósamkvæmar
því, sem þeir ætluðu þær vera eða
hafa verið, og er sannleikurinn sá,
að þetta verður ekki skýrt nema
á einn veg. Hin eina raunveru-
j lega skýring á þessu er sú, eins
J og sannazt hefur líka stundum
beinlínis, að draumur eins sé að
undirrót vökulíf annars, og er það
mikill misskilningur, sem margir
j fræðimenn hér virðast vera haldn-
ir af, að varðandi þessa niður-
stöðu verði endilega að bíða .eftir
úrskurði einhverra mikilla og
frægra útlendinga. Um þetta ætti
hver skynsamur maður að geta
| gengið úr skugga, beiti hann að-
eins frjálsri dómgreind sinni. Og
eins og ég benti á í grein, sem
Framh * 10 nði