Vísir - 19.05.1962, Side 16
VISIR
Laugardagur 19. maí 1962.
„Brúðan" vék
fyrir „Lady"
Ástralska leikritið „17. brúðan“,
sem átti að frumsýna í Þjóðleik-
húsinu um miðjan þennan mánuð,
verður ekki Ieikið að sinni heldur
frestað til hausts.
Hefir verið horfið að því ráði
sökum hinnar gífurlegu aðsóknar
að „My fair lady“ og Skugga-
Sveini, og talið heppilegra að
geyma „Brúðuna" til næsta leik-
árs, svo að hún fái nægilegt svig-
rúm.
Þó verður „Brúðan“ ekki fyrsta
sýningin í haust, það verður ,Hún
frænka mín“, sprenghlægilegur
amerískur leikur, sem á frummál-
inu heitir „Auntie Mame“ sem
Patrick Dennis samdi upp úr sam-
nefndri sögu sinni og verið hefir
ein af metsölubókum vestra og
víðar um heim. Aðalhlutverkið,
frænkuna leikur Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, en leikstjóri verður
Gunnar Eyjólfsson. Æfingar eru
þegar hafnar.
► 55 menn voru drepnir i Alsír
á miðvikudag og aðfaranótt fimmtu
dags. Þrir þeirra voru af Evrópu-
stofni.
Þegar norski stúdentakór- <
jinn gekk á land í gærkvöldi]
•á Reykjavíkurflugvelli, hafði <
, Karlakór Reykjavíkur stillt ]
>sér upp og heilsaði gestun-<
,um með söng. Norsku stúd-]
> entamir svöruðu í sömu <
[ mynt, og tók Ijósmyndari}
'Vísis l.M. þessa mynd af<
[ þeim, þegar þeir voru að j
„taka sitt lag“.
Yfir 700 nýir
áskrifendur
► Nú stendur yfir söfnun áskrifenda að Vísi í Heimahverfi,
og hafa safnazt á áttunda hundrað nýir áskrifendur frá mán-
aðarmótum. Enda er Vísir nær helmingi ódýrari í áskrift en'
ef blaðið er keypt í lausasölu, aðeins 45 krónur á mánuði.
► Þann 10. júní verður dregið í fyrsta sinn í hinu nýja I
áskrifendahappdrætti blaðsins. Allir áskr'fendur eru þátt-
takendur án nokkurs aukagjalds. Gildir mánaðargjaldskvitt- j
unin sem happdrættismiði.
Vinningurinn að þessu sinni er sófasett að verðmæti kr.
12.000,00 úr SKEIFUNNI í Kjörgarði. Sófasettið er eftir eigin'
vali í SKEIFUNNI og birtum við í dag mynd af einu þeirra. I
Síðari vinningar verða margskonar heimilistæki, ísskápar, I
þvottavélar, strauvélar o. s. frv. og einnig húsgögn.
► Gerizt áskrifendur að Vísi strax í dag. Þá bíður blaðið,
eftir yður þegar þér komið heim úr vinnunni. Síminn er ]
1-16-60.
Stúdentakórínn kominn
Norski stúdentakórinn, sem er
elzti og þekktasti karlakór í Noregi
er kominn í söngför til íslands.
Mun kórinn halda tvenna tónleika,
aðra í samkomuhúsinu á Akureyri
á sunnudag kl. 5, en hina í Gamla
Bíói í Reykjavík á mánudagskvöld
kl. 7. Stjórnandi kórsins er Sverre
Bruland, en kórinn skipa 45 eldri
og yngri stúdentar. Ólafur Noregs-
konungur er verndari söngfararinn-
ar til íslands.
Stúdentakórinn norski var vænt
anlegur til landsins á föstudags-
kvöld með flugvél frá flugfélagi
Braathens. Dveljast kórmenn á
heimilum íslenzkra kórmanna, Nor
egsvina, stúdenta og á stúdenta-
görðunum. Á laugardag fara þeir
í boði Reykjavíkurborgar til Þing-
valla og síðdegis heldur norska
sendiráðið boð fyrir þá. Á sunnu-
dagsmorgun fljúga þeir til Akur-
eyrar með Flugfélagsvél og taka
kórmenn á Akureyri á móti þeim.
Á mánudag skoða þeir Háskólann
og borða hádegisverð í boði skól-
ans og um kvöldið, eftir hljóm-
leikana í Gamla bíó, munu þeir
borða í veitingahúsinu Klúbburinn
og taka þar nokkur lög um kvöld-
ið og geta kórmenn, stúdentar,
Noregsvinir og aðrir sem vilja
hitta þá og heyra komið þangað. Á
þriðjudagsmorgun halda Norðmenn
irnir utan aftur.
Á söngskrá kórsins eru fjölmörg
lög, mest eftir norska höfunda þar
á meðal Grieg. Af blaðadómum er
borizt hafa frá Noregi má sjá að
Norðmenn teija þetta sinn bezta
kór og fær hann mjög lofsamlega
dóma. Hljómsveitarstjórinn, Sverre
Bruland, er ungur maður, sem hef-
ur fengið alþjóðleg verðlaun fyrir
hljómsveitarstjórn í Englandi og
Bandaríkjunum. Formaður kórsins
er Eyvind Svensen, tannlæknir.
Þjóðviljinn og Tíminn í gær
gerðu mikið veður út af því að
kosning þriggja manna i stjórn
Sogsvirkjananna var endurtek-
in á borgarstjórnarfundinum í
fyrradag. Til þess Iágu þó góð-
ar og gildar ástæður. Einn borg
arfulltrúi Sjálfstæðismanna
hafði fyrir mistök greitt öðrum
lista en D-Iistanum atkvæði.’ Er
úrslit kosninganna urðu kunn
* 5 '..umrnnú.
Húsgögnin eru hinn glæsi-
legi vinningur í happdrætti
pví, sem Vísir efnir til meðal
áskrifenda sinna, í sambandi
við nýju áskrifendasöfnun-
ina, sem gengur prýðilega
eins og tölurnar bera með
sér.
og að afleiðing mislakanna var
sú að Einar Olgeirsson var tal-
inn kjörinn í stjórnina, gerðu
borgarfulltrúar Sjálfstæðisfl.
athugasemd við kosninguna og
frestaði forseti fundi.
Sú ákvörðun forseta sent
samþykkt var af borgarstjóra
að endurtaka kosninguna þegar
vitneskja um mistökin lá fyrir
var eðlileg og sjálfsögð. Allir
borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, 10 af 15 borgarfull-
trúum, fóru fram á endurtekn-
ingu kosningarinnar, svo rétt
mynd fengist af vilja borgar-
stjórnarinnar. Og það er ein-
mftt þetta, sem er höfuðatriðið.
Tryggja varð að sannanlegur
vilji borgarstjórnar réði, en Ein-
ar Olgeirsson slyppi ekki inn í
Sogsstjórnina fyrir mistök við
kosninguna. Andstæðingaflokk-
arnir viðurkenndu einnig, að
endurtaka megi kosningu í þess
um tilgangi, en lögðust gegn
endurkosningu, þar sem nær
klukkutími var liðinn frá fyrri
kosningunni. Er erfitt að sjá
gildi þeirrar röksentdar.
Fyrr á fundinum höfðu full-
trúar Alþýðubandalagsins beðið
um að kosningunni yrði frestað
þangað til allir fulltrúar þeirra
væru komnir á fundinn. Við
þeirri beiðni varð meirihluti
Sjálfstæðismanna — einmitt til
þess að rétt rnynd ltæmi fram
af vllja borgarstjórnarinnar við
kosninguna. En fyrir endurkosn
inguna, sem átti að tryggja
þetta sarna, deila nú kommún-
istar og Framsókr. á meirihlut-
ann. Verður slíkur málflutning-
ur varla kallaður heiðarlegur.
Á það skal enn bent, að Sjálf-
stæðismenn báru upp tillögu
um að málinu yrði skotið til
úrskurðar Félagsmálaráðuneyt-
I isins, samkvæmt lögum, vegna
ágreinings Alþýðubandalagsins
fog Framsóknar um lögmæti
kosningarinnar.
En hvað skeði þá? Hvorki
kommúnistar né Framsókn
grsiddu tillögunni atkvæði,
heldur sátu hjá. Sýndi sú af-
staða harla lítinn áhuga á að
hlutlaus dómur yrði Iagður á
réttmæti endurkosningarinnar.
¥i$su, hvað honum
kom vel
Kennedy forseta Bandaríkjanna
! hefir borizt nýr ruggustóll að gjöf,
: og er Dominikanska lýðveldið gef-
andinn.
Húsgagnaframleiðendur í Banda-
ríkjunum hafa grætt milljónir á
sölu ruggustóla síðustu 15 mánuð-
ina, eftir að það varð heyrin kunn-
ugt, að forsetinn hvíldi sig oft 1
slíkum stól, síðan hann særðist illa
í baki í heimsstyrjöldinni.
Valur vann Víking 9:0 í leik í
gærkvöldi á Melavellinum. Leikar
stóðu 5:0 í hálfleik. Eins og sjá
má af þessum tölum var Ieikurinn
einstefnuakstur frá upphafi til
enda