Tölvumál - 01.04.1989, Blaðsíða 9

Tölvumál - 01.04.1989, Blaðsíða 9
Tölvumál Mars 1989 Samskiptaforritið aðlagar tölvuna að þeim tæknilegu atriðum sem samskiptin krefjast. Þar er fyrst og fremst átt við módemið og samskiptalínuna. Auk þess hafa forritin oftast að geyma einingar sem einfalda samskiptin að öðru leyti. Þar má nefna atriði eins og sjálfvirka vistun innkominna upplýsinga á diski, geymslu aðgangsorða (varasamt!) og forritunarmál. Hægt er að nota slík forritunarmál til að skrifa fjölva til að hringja, leita og vista sóttar upplýsingar á diski jafnóðum og þær berast. ■ Símalínan Ekki þarf að leigja sérstaka línu til samskiptanna, hægt er að nota sömu línuna og er notuð fyrir símann. Með klótengli eru módemið og síminn sett í samband við sama veggtengilinn. Þannig nýtist ein og sama línan bæði til tölvu- og mannlegra samskipta. Fyrir sambönd þar sem krafist er stöðugs sambands er leigð lína sem þá er fasttengd á milli tveggja modema. ■ Modemið Modemið er eins og áður er getið lykillinn að tölvusamskiptum. Hér verður fyrst og fremst fjallað um óklukkuð modem (asynchronous modems) en þau eru aðallega notuð til almennra tölvusamskipta. Ekki er langt síðan slík modem voru svo dýr að ekki var á allra færi að kaupa þau. Algengt modem kostaði á bilinu 100 - 150 þúsund krónur. Mun fullkomnari módem eru nú fáanleg á 10. hluta þess verðs auk þess sem úrval hefur aukist frá því sem áður var. Modem þarf að velja af kostgæfni. Gæta þarf að tæknilegum atriðum jafnt og verðum. Hér á eftir verður fjallað um helstu tæknilegu atriðin sem varða modem, til að lesandanum reynist auðvelt að meta sjálfur hvaða modem falla innan þess ramma sem hann setur sér. ■ Modemstaðlar Heiminum er skipt í tvö svæði hvað stöðlun varðar. í Bandaríkjunum er löng hefð fyrir modemnotkun og voru snemma gefnir út staðlar um modem af Bell símafélaginu. Bera þeir nafn félagsins t.d. Bell 103 (300 b/s). CCITT, sem er alþjóðleg staðlastofnun símastjóma, hefur einnig staðlað modem og bera þeir staðlar nöfn eins og V.21 (300 b/s), V.22 (1200 b/s) og V.22bis (2400 b/ s). Sá galli er hins vegar á gjöf Njarðar að þó að staðlar beggja taki til módema sem vinna á sama hraða, þá vinna modem byggð eftir CCITT staðli ekki á móti Bell-módemum. Hér á landi hefur Póst- og símamálstofnunsett um það reglur að modem skuli vera samkvæmt CCITT staðli. Þetta getur í sumum tilvikum valdið vandræðum í samskiptum við bandarísk fyrirtæki, þar sem þau bjóða aðeins aðgang með módemum skv. Bell staðli. Modem framleidd í Asíu og Bandaríkjunum eru mörg gerð til að vinna samkvæmt Bell- og CCITT- stöðlum. Eru af því mikil þægindi. Póst- og símamálastofnun leyfir hins vegar ekki notkun slíkra módema hér á landi. Sé samband haft um almenna gagnanetið er þetta vandamál þó ekki til staðar þar sem modemið þarf aðeins að vera aðhæft því gagnaneti sem er í viðkomandi landi. Flest lönd í Evrópu og Norður-Ameríku hafa a.m.k. eitt gagnanet, en það eru nokkurs konar símkerfi fyrir tölvur. ■ Modemhraðar í svigum á efrir nöfnum staðla, í greininni hér á undan, kemur fram Samskiptaforrit aðlaga tölvuna að módeminu og samskiptalínunni sem notuð er. Fyrir sambönd þar sem krafist er stöðugs sambands er leigð lína sem þá erfasttengd á milli tveggja modema. 9

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.