Tölvumál - 01.04.1989, Síða 10
Tölvumál Mars 1989
Hægt er að láta modemið hringja,
svara línunni, stilla sig í
sjálfsvörunarhátt, bergmála allt sem
frá tölvunni kemur og rjúfa
sambandið.
samskiptahraði sá sem staðlamir
eiga við. Til að tvö modem geti
unnið saman þurfa þau að vera stillt
á sama gagnaflutningshraða. Sá
hraði er mældur í fjölda sendra bita
á sekúndu, eða b/s. Staðlamir taka
til hraða sem em tvöfaldur hraði
næsta staðals á undan. Byrjað er við
300 b/s. Þannig em til staðlar yfir
modem sem era 300 b/s, 600 b/s,
1200 b/s, 2400 b/s, 4800 b/s og svo
framvegis.
Sum modem, s.k. fjölhraðamodem,
geta unnið samkvæmt tveimur eða
fleiri stöðlum. Algengt er að modem
vinni þannig á bæði 300 b/s og 1200
b/s.
Samskiptahraðinn segir til um
flutningsgetu modemsins. Oft er
deilt með tíu í hraðann til að fá
flutningsgetuna miðað við tákn á
sekúndu. Þannig sendir 1200 b/s
modem um 120 tákn/sek.
Fyrir almenn samskipti um
símalínur, t.d. á milli landshluta,
getur verið erfitt að nota hraða sem
er yfir 1200 b/s. Það getur þó ráðist
af aðstæðum hverju sinni. Á fastri
línu em hraðar 9600 - 19200 b/s
mögulegir.
■ Almennir eiginleikar
modema
Mikilvægt er að modem sé
samþykkt af þar til bæmm
yfirvöldum. Sé ekki svo geta
tæknilegir eiginleikar þeirra valdið
traflunum á símakerfinu og
erfiðleikum á að ná sambandi í
undantekningartilfellum.
Modem ætti að hafa merkjaljós til
að notandinn geti gert sér grein fyrir
hvemig samskiptunum miðar:
• Ljós sem sýnir að samband sé
komið á
• Ljós sem sýnir að gögn em að
koma
• Ljós sem sýnir að gögn era að
fara
Að auki era ýmis önnur merkjaljós
sem fyrst og fremst þjóna
viðgerðaraðilum.
Módeminu á að fylgja snúra til þess
að tengja það við tölvuna. Þetta er
afar mikilvægt, því ekki eru öll
RS232C tölvutengi eins og því
nauðsynlegt að snúran sé gerð fyrir
þá tölvu sem modemið á að tengjast.
Þá ætti modemið að vera þannig að
ekki þurfi annað en að stinga því í
samband við símatengil (klótengill á
snúrunni)
■ HAYES skipanamálið
Lengi vel vora modem ósjálfbjarga
(dumb) en fyrir nokkram áram setti
bandarískur modemframleiðandi á
markað modem sem hægt var að
stjóma frá tölvunni. Með skipunum
sem sendar era frá hnappaborði
tölvunnar, eða samskiptaforriti, er
modemið látið hringja, svara
línunni, stilla sig í sjálfsvörunarhátt,
bergmála allt sem frá tölvunni
kemur og rjúfa sambandið. Einnig
era til skipanir til að stjóma ýmsum
öðrum aðgerðum svo og
raffræðilegum eiginleikum
modemsins.
Þessar skipanir era flestar eins stafa,
með viðauka til frekari aðgreiningar
og stýringar. Á undan þeim fara
stafimir AT sem era stytting úr
orðinu ATtention. Eftir að samband
er komið á verða AT skipanir
óvirkar af eðlilegum ástæðum. Til
þess að ná athygli modemsins
verður tölvan þá að senda +++, en
þegar modemið svarar með OK er
hægt að breyta stillingum þess án
þess að samband rofni.
Með tilkomu sjálfbjarga (intelligent)
módema sem skilja HAYES
skipanir hafa komið á markað
samskiptaforrit sem geta stjómað
samskiptunum frá upphafi til enda.
Til dæmis er hægt að rita einfaldan
fjölva sem hringir í ákveðinn
gagnabanka, gefur öll lykilorð, fer á
ákveðinn stað í gagnabankanum og
gerir leit, vistar fundnar upplýsingar
á diski og rýfur sambandið. Þetta
10