Vísir - 25.05.1962, Blaðsíða 2
VISIR
Föstudagur 25. maí 1962.
.^>4
'n i r 5
T//////A LJ YY////////A W///////A M '42///A
Utanhæjarmennirnír sóttu
Reykvikingarnir skoruðu
í gærkvöldi léku á Laugardals-
vellinum lið Reykjavíkur og Utan-
bæjarmanna og mega hinir síðar-
nefndu sannarlega vera óánægðir
með sinn hlut í mörkunum, því
þeirra sókn í leiknum var mun
þyngri en Reykvíkinga; sem skor-
uðu einu 2 mörkin í leiknum. Ann-
ars var leikurinn leiðinlegur á að
horfa og fátt um skemmtileg eða
fjörleg tilþrif og ekki bætti napur
kuldinn úr fyrir áhorfendum.
„LANDIГ ÁGENGARA
Utanbæjarmenn voru strax í
upphafi ágengari í sóknum sínum
en ekki tókst þeim þó að skapa
strax verulega hættu. Reykvíkingar
hins vegar fengu skorað fyrra mark
sitt á 14. mínútu. Högni hafði misst
boltann yfir sig til Guðmundar Ósk
arssonar, sem drap boltann, sem
hrökk til Jóns Sigurðssonar í
ágætu færi og hann lét ekki segja
sér tvisvar, en sendi hörkuskot í
netið, 1:0 fyrir Reykjavík.
Utanbæjarmenn héldu áfram að
sækja. Skúli Ágústsson átti all-
hættulegan bolta fram hjá og
Ingvar annan stuttu síðar, en Heim
ir varði fallega og síðan hvert fær-
ið af öðru og markið lá í loftinu,
en kom þó ekki, þrátt fyrir að
Steingrímur Björnsson væri kom-
inn inn fyrir Hörð Felixsson,
þyngslalegan á grasinu, og hér kom
Heimir til hjálpar Reykvíkingum
og bjargaði með réttu úthlaupi, en
Steingrímur skaut í fót Heimis.
Attu vítaspyrnu skilið
Fertugasta mínútan var nokkuð
„krítísk" fyrir dómarann, Grétar
Norðfjörð, þegar Hörður Felixsson
hindraði Steingrím miðherja gróf-
Heimir (KR) hafði nóg að gera í
leiknum í gærkvöldi og stóð sig
með mikilli prýði og mega Reyk-
víkingar þakka honum öðrum frem
ur að þeir unnu Ieikinn.
lega innan vítateigs Hafði víta-
spyrnan, sem utanbæjarmenn áttu
þarna getað breytt leiknum tals-
vert, en hér sást dómaranum sem
sé yfir brot.
Reykvlkingar voru allhættulegir
við mark andstæðinganna á næst-
slðustu mínútu leiksins, þegar Jón
Sigurðsson skaut að marki en Bogi
Sigurðsson bjargaði náiægt mark-
línunni.
SÍÐARI HALFLEIKUR
Síðari hálfleikinn áttu utanbæj-
armenn að mestu leyti, en aldrei
tókst þeim að finna leiðina fyrir
boltann I netið. Stundum tókst
Heimi að bjarga með góðum út-
hlaupum, en mun algengara var að
skot liðsins geiguðu og hafði dreng
urinn fyrir aftan markið nóg að
gera að sækja boltann.
Sókn Reykjavíkur á 10. mínútu
síðari hálfleiks bar hins vegar ár-
angur, enda virtust hinar fáu „heim
sóknir“ Reykjavíkurliðsins koma
„Lands“-vörninni úr sambandi. —
Annars var mark þetta skorað úr
vítaspyrnu, og reyndar á nákvæm-
lega sama hátt og þegar
Hörður hindraði Steingrím í fyrri
hálfleik og ekkert var dæmt. Það
var Gunnar Albertsson sem hindr-
aði Guðmund Óskarsson í þetta
skiptið, en Guðmundur gerði sér
meiri mat úr hindruninni og dóm-
arinn hlaut að sjá hvað var á seiði.
Grétar skoraði 2:0 úr þessari víta-
spyrnu með lausu skoti, en Helgi
var kominn úr jafnvægi.
A 18. i..ínútu átti Steingrímur!
enn tækifæri, en Heimir varð hlut-
skarpari I úthlaupi sínu. Og Skúli
átti 3 mínútum síðar gott færi á
vítapunkti var alls óvaldaður, en
skotið var „vind“-laust og rétt rúll-
aði til Heimis.
REYKJAVÍKURMENN
SLAPPIR
Reykjavíkurliðið var heldur siakt
þrátt fyrir þennan sigur. Heimir
var beztur og bjargaði tapinu, sem 1
liðið átti skilið. Árni Njálsson var
drýgstur í vörninni, og Garðar all
góður í sini stöðu, en yfirleitt allir
áttut eikmenn leik lang fyrir neð-
an sína virðingu og liðið féll ekki
saman þótt uppistaðan væri úr KR
og ívafið úr Fram og Val.
Mun nær því að falla saman var
blandan frá Akureyri, Akranesi,
Framh. á bls. 5
á SKÍÐUM í
SUMARBLÍÐU
Siglfirðingar halda skíðamót að
venju að vorlagi í Siglufjarðar-
skarði og fer það fram að þessu
sinni þ. 9. og 10 júní. Keppt verð-
ur i svigi og stórsvigi karla og AxeJ Kvaran í fjörunni við Reykjadislc í fyrrasumar. Hér virðir
ára^yngsM 15 ára hann, ** f' vegaiengdina út í Drangey en hann synti þessa
í kvennaflokki. i vegalengd á 3 timum og 13 mmutum, eða 13 mmutum lakarx
Mun nú vera nægur snjór í tima en Benedikt G. Waage heldur fram að Grettir Ásmundar-
skarðinu og verður örugglega, er son hafi náð árið 1040 er hann synti til Iands úr bæli sínu í
mótið fer íram. útlegðinni í Drangey, þar sem þeir IHugi bróðir hans höfðust
----------------! lengi við.
Fetað / fótspor Grettis
hins sterka Ásmundarsonar
„Grettir Ásmundarson synti á 3
klst. úr Drangey," sagði Benedikt
G. Waage 1927 í Iþróttablaðinu
Þrótti, sem þá var gefið út af ÍR.
„Þetta virðist nú ekki fjarri lagi,“
sagði Benedikt við okkur í gærdag.
„Grettir hlýtur að hafa þekkt
strauma betur en okkar menn og
auk þess örugglega verið miklu
meiri þrekmaður en kapparnir
okkar, sem nú hafa synt yfir sund-
ið.“
Þetta sagði Benedikt okkur m.a.
er við ræddum við hann um Drang
eyjarsund, en ÍSÍ veitti Axel Kvar-
an sundkappa nýlega afreksmerki
sitt úr gulli fyrir Viðeyjarsund.
Axel synti í fyrrasumar fyrstur
manna frá Reykjadiski út í Drang-
ey og var hann 3 klst. og 13 min-
útur á leiðinni, sem er skemmsti
tími, sem vitað er um með vissu,
en kenning Benedikts er ekki fjarri
lagi. Haukur Einarsson, sem synti
1939, er með næstbeztan tfmann,
3.20 klst., Eyjólfur Jónsson, sem
synti tvívegis (1957 og 1959), Pét-
ur Eiríksson, sem synti 1936- og
Erlingur Pálsson .yfirlögreglu-
I þjónn, hafa allir lakari tíma í
sundinu.
Axel Kvaran hefur einnig synt
Vestmannaeyja-, Kjalarness- og
Viðeyjarsund. Hann er 30 ára
gamall Akureyringur og féiagi í
Knattspyrnufélagi Akureyrar. Axel
æfir nú af kappi undir sundþrautir
í sumar, en þeir Eyjólfur Jónsson
synda nú nær daglega í aðeins 8
gróða heitum sjó. Gera þeir félag-
ar sér góðar vonir um að komast
til Englands í sumar til Ermar-
sundskeppnmnar, en Alþingi veitti
í fjárlögum 30.000 króna styrk til
íþróttasjóðs og skal hann renna
til að styrkja sjósundsmenn og
munu þeir Eyjólfur og Axel njóta
þessa styrks.
HEIMSMET /
FJÓRSUNDI
V-þýzki sundmaðurinn Gerhard
Hetz setti í gær nýtt heimsmet í
400 metra fjórsundi. Setti hann
metið á aiþjóðamóti i Moskvu og
synti á 4:53.8 mín, en fyrra metið
var 4.55.6 mín. Hetz er aðeins 19
ára gamall og er líkur Guðmundi
Gisiasyni með það hve hann er
fjölhæfur og á hann nú 8 þýzk
met, 5 í skriðsundum, sem telja má
sérgrein hans (100 metrar á 55.2
— 400 m á 4.18.5 á 25 m braut),
2 met í flugsundi (100 m á 1.00.6)
og eitt met í 400 m bringusundi.
Guðmundur Gíslason á svo sem
kunnugt er Norðuriandametið í 400
metra fjórsundi, en það met setti
hann á afmæli Sundhaliar Reykja-
víkur fyrir rúmum mánuði síðan
og er það 5.16.3 mín. Um daginn
synti hann einnig í 50 metra laug-
inni í Hveragerði og synti á 5.25.3
mín., sem er 3/10 verra en lág-
markið til að komast í EM í Ro-
stock I sumar.