Vísir - 04.06.1962, Page 6
VISIR
GLAUMBÆR Margar ferðir Utsýnar
ALLIR SALIRNIR OPNIR í KVÓLD.
GLAUMBÆR
JAZZ
J AZZ
SILFURTIJNGLIÐ
MÁNUDAGUR
Kvartett — Rúnars G. — Opið frá kl. 7—11,30
JAZZ JAZZ
VEIÐIMENN!
Lipur og góð
VEIÐIMANNASTÍGVÉL
Skóverzlun
Péturs Andréssonur
Lauguveg 17 — Framnesveg 2
FerðaféJagið Utsýn býður upp á
5 hópferðir til útlanda I sumar og
haust. Eru sumar þeirra nærri full
skipaðar nú þegar, enda hafa ferðir
Útsýnar notið almennra vinsælda og
viðurkenningar þau 7 ár, sem félag
ið hefur starfað og efnt tll kynnis-
og skemmtiferða vlðs vegar um
Evrópu.
Ferðafélagið Útsýn var stofnað
í þeim tilgangi að gefa almenningi
kost á hópferðum með betra fyrir-
komulagi en áður hafði tíðkazt og
fyrir lægsta verð miðað við góðan
abúnað og beztu þjónustu. Tilhög-
un öll í ferðunum er með frjálslegu
sniði og frelsi farþeganna í engu
skert. Lögð hefur verið áherzla á
að bæta aðbúnað farþeganna frá
ári til árs og standa þar í engu að
baki hinum stóru ferðaskrifstofum
erlendis, t.d. eru nærri eingöngu
valin gistiherbergi með baði, en
gott bað er eitt hið nauðsynlegasta
fyrir ferðamanninn i sumarhitum.
Mikilvægt er, að gististaðir séu vel
staðsettir í stórborgum, svo tími
ferðamannsins notist sem bezt.
Fólk, sem óvant er ferðalögum, ger
ir sér ekki alltaf grein fyrir þeim
reginmun á aðbúnaði og þjónustu,
sem á sér stað á ferðalögum, en
reynslan er sú, að flestir vilja borga
nokkrum krónum meira á dag og
njóta ferðarinnar. Útsýn hefur afl-
að sér traustra og hagkvæmra sam
banda við gistihús á leiðum sínum
undanfarin ár, og gerir það öll við-
skipti og þjónustu greiðari og ó-
dýrari. ^ararstjóri í surttarferðum
Útsýnar verður Ingólfur Guðbrands
son, sem er þaulkunnugur megin-
landi Evrópu eftir áratugs reynslu
sem leiðsögumaður. Ferðir þær,
sem Útsýn hefur undirbúið í sum-
ar og haust eru þegsar:
Edinborg — London
12 dagar: 16.— 28. júní.
Siglt verður með Gullfossi til
Edinborgar en ekið þaðan um Skot-
land og hið fagra Lake District £
Norður-Englandi, gist í Buxton en
ferðinni haldið áfram næsta dag
um fæðingarborg Shakespeares,
IVORY TWILL
ORTBUXUR
eru nýjasta ameríska tízkan fyrir kvenfólk, og auðvitað í hinum'
eftirsóttu ljósu litum, sem hæfa hverskyns útiveru í sumri og sól
Model 334.
VDIR FRAMLEIÐSLA
Stratford-on-Avon, Oxford og
Windsor til London. Þar verður
búið á ágætu hóteli við Piccadilly
Circus í 4 daga, farið í kynnisferðir
um borgina undir leiðsögn farar-
stjórans, á skemmtistaði og í verzl
anir, en verzlanirnar í nærliggjandi
götum, Oxford StrccJ og Regent
Street, þykja mjög freistandi. Á
heimleiðinn. verður dvalizt einn
dag í Edinborg, en sfðan siglt heim
með Gullfcssi. 1 ferðum Útsýnar
er jafnan haldið uppi gleðskap á
skipinu með dansi, söng og mynda
sýningum. Ferð þessi er mjög ódýr
eða frá rúmum 7000 krónum.
Parls — baðstaður við Ermarsund
— London
Brottför 13. júlí.
Dvalizt vcrður 5 daga í hinni
glaðværu heimsborg, skoðaðar
merkar byggingar, heimsótt lista-
söfn og skemmistaðir og farið til
Versala. Mörgum mun finnast á-
nægjulegt að vera í París sjálfan
þjóðhátíðardag Frakka, 14. júlí,
enda er þá mikið um dýrðir í borg-
inni. Síðan verður dvalizt 3 daga
á baðstað við Ermarsund og að lok
um 4 daga í London. Þeir, sem
óska, geta framlengt dvöl sína þar
og notað flugfarseðilinn heim síð-
ar. Ferð þessi er farin á aðalsum-
arleyfistímanum. Hún er einkum
sniðin fyrir ungt fólk, sem vill
komast í skemmtilega en ódýra
ferð, enda kostar hún aðeins um
11 þús. kr.
Kaupmannahöfn — Rínarlönd —
Sviss — Parfs
18 dagar. Brottför 11. ágúst.
Dvalizt verður 3 daga í Kaup-
mannahöfn en síðan flogið með
þotu suður í Rfnarlönd, þar sem
LAUGAVEGI 90-92
Volkswagen, flestar áergirðir
Sendiferðabifreið Chevrolet
1955 F-3100 Mjög góður
öfll, sanngjarnt verð.
For Sodiac 1955-58
Forti Consui 1955 58 62.
Ford Consul 1962 4ra dyra
De Lux modei
Opel allar árgerðir og stærðir
Fiat statior 1957. góður bfll
Fiat 600 1957
Fiaí 500 1954. ódýr bfll
Reno Daupin 1960-61
Pobeda 1954-55. gott verð og
gó£ kjör.
Skoda station 1956-60.
Vuxall Victor 1958. góður bfll
!> mann; bifrelðir
Mercides Bens Í955 56 - 61.
Mercides Ben< 1958
Ipei Kapitan I96(i
Chevrolet, ailar argerðir.
Ford allar árgerðir
Doge, allar árgerðir
Auk þess stórt úrva) alls konar
annarra bifreiða. Gjörið sve vel
og skoðið bflana Þeir eru é
staðnum
Mánudagur 4. júnf 1962.
dvalizt verður nokkra daga á feg-
urstu stöðum við ána, en þaðan
verður ferðazt með bifreiðum til
Heidelberg og hina undurfögru leið
um TSlerstrasse. í Svartaskógi,
Freudenstadt og Triberg, skoðaðir
Schaffhausenfossarnir f Rfn,
stærstu fossar Evrópu og haldið til
Zíirich f Sviss. Dvalizt verður viku
í Sviss og komið á marga fegurstu
staði landsins, s.s. Luzern, ekið
með Vierwaldstiiltersee, um Susten
skarðið til Interlaken, mestu ferða
mannaborgar f Berer Oberland, sem
oft er kölluð stássstofa Sviss. Að
lokinni tveggja daga dvöl í Genf
verður flogið þaðan til Parfsar og
stanzað þar í fjóra og hálfan dag.
Heim verður haldið flugleiðis með
viðkomu í London hinn 28. ágúst,
en þeir, sem óska geta notað flug-
farseðil sinn sfðar frá Lodon eða
París. Þetta er ein vinsælasta ferða
mannaleið f álfunni, sem gefur kost
á að skoða marga fegurstu staði
hennar, enda hafa færri en vildu
komizt að í þessari ferð Útsýnar
undarfarin ár.
Hinn sfgildi Spánn
Brottför 1. sept.
London
Flogið verður um London til
Madrid, stanzað þar 3 daga, en
sfðan ferðazt með bifreið til
hinna heillandi borga á Suður-
Spáni, Cordova, Sevilla, Malaga,
Granada og á kunnasta baðstað
Spánar, Alicante, síðan um Valen-
cia og Tarragona til Barcelona. Leið
ir Islendinga munu beinast meira
til Spánar en áður, því að Spánn er
tvímælalaust eitt sérkennilegasta
og skemmtilegasta ferðamannaland
álfunnar og um leið eitt hið ódýr-
asta. 1 ferð þessari gefst kostur
á að kynnast fegurstu og kunnustu
stöðum Spánar á bezta tíma árs og
sérkennilegri menningu og þjóðlífi
Spánverja. Á heimleiðinni verður
dvalizt einn dag í London, og þeir
sem óska geta framlengt dvöl sína
þar.
Austurlandaferð
22 dagar — brottför 6. okt.
Þessi ferð til frægustu sögustaða
í þrem heimsálfum er fyrsta hóp-
ferð Islendinga til Austurlanda og
glæsilegasta ferð, sem Ferðafélagið
Útsýn hefur efnt til. Leigð hefur
verið Viscount-flugvél Flugfélags
Islands til allrar ferðarinnar og eru
viðkomustaðirnir Vínarborg, Istan-
bul, Aþena, Delfi, Beirut, Damask-
us, Jerúsalem, Kairo, Rómaborg og
London. Alls staðar verður gist á
úrvalsgistihúsum og aðbúnaður all-
ur hinn vandaðasti. Hinar sögu-
frægu borgir, þar sem vagga menn
ingarinnar hefur staðið og pílagrím
ar hafa heimsótt um aldir, verða
skoðaðar í fylgd sérfróðra leiðsögu
manna, en fararstjóri verður Sig-
urður A. Magnússon rithöfundur,
sem dvalizt hefur langdvölum í
Grikklandi og þekkir flesta þessa
staði af eigin sjón og raun. Há-
markstala þáttakenda í ferðina eru
40 — 50, en pantanir þurfa að ber-
ast snemma í þessa ferð, sökum
þess hve undirbúningur hennar er
tfmafrekur og öflun nauðsynlegra
skilríkja til ferðarinnar tekur lang-
an tfma.
Skrifstofa Ferðafélagsins Útsýn-
ar f Nýja Bíói verður opin kl. 9
til kl. 7 sfðd. þessa viku.
(Fréttatilk. frá Útsýn).
Málverkasala
Listmálarar og aðrir sem vilja selja góð málverk, góð-
fúslega hafið samband við undirritaðan. Eftirspurn er
mikil.
Málverkasala — Umboðssala
Týsgötu 1. Opið frá kl. 1. Sími 17602
Kristján Fr. Guðmundsson
málverkasali