Vísir - 04.06.1962, Blaðsíða 16
VÍSIR
Mánudagur 4. júni 1962.
ODDGEIR MAGN-
ÚSSON LÁTINN
Oddgeir Magnússon lögfræðing-
ur andaðist í svefni á heimili sínu
hér f borg sl. laugardag. Oddgeir
var 51 árs að aldri og hafði stund-
að lögfræðistörf um árabil. Hann
var sonur Magnúsar Jónssonar
bæjarfógeta í Hafnarfirði.
Búa hjá
Bretanum
Á miðvikudag fer hópur 49
ungra fslendinga til kennslu-
dvalar f Englandi og verður þátt-
takendum dreift á jafnmörg heim-
ili víðs vegar um landið, og 5 í
viðbót tveim dögum síðar.
Það er brezk stofnun, sem
nefnist „Scanbrit", er stendur
fyrir ferð þessari og hefur á stefnu
skrá að sjá útlendingum fyrir
dvöl á heimilum f Englandi til að
gefa einkum ungu fólki kost á
að læra enska tungu og kynnast
landi og þjóð og hefur þann hátt
á að þátttakendur dveljist frekar
á heimilum hver fyrir sig, svo að
þeir komist því mun fyrr niður
í málinu en ef þeir dveljist sam-
an á skólagörðum. Þetta er fyrsta
hópferðin, sem héðan er farin á
vegum Scanbrit, en s.l. 3-4 ár
hafa farið héðan nokkrir íslend-
ingar árlega. Umboðsmaður Scan-
brit hér er Sölvi Eysteinsson
tungumálakennari og verður hann
fararstjóri þessa hóps, sem fer
utan 6. júní og kemur heim aftur
31. ágúst. Ekki komast fleiri með
í hópferðina, en 8. júní fara fimm
Reykvíkingar utan til viðbótar og
dveljast þar jafnlegi hinum.
► DIAMANT — fyrsta gervihnetti
Frakka verður skotið í loft upp
bráðlega með þriggja þrepa eld-
flaug. Vísindamálaráðherra Frakk-
lands Gaston Palewski skýrði frá
þessu á stjórnarfundi nýlega.
44 millj. kr. tap og enginn
arður hjá Eimskip
Óska eftir afnámi verðlagsákvæða
Aðalfundur Eimskipafélags ís-
Iands var haldinn á laugardaginn
og var myndin hér fyrir ofan þá
tekin, þar sem stjórnarformaður
Einar B. Guðmundsson var að
flytja skýrslu um starfsárið 1961
og verkefnin framundan. Við borð-
ið sitja fundarritari Tómas Jóns-
son, fundarstjóri Lárus Jóhannes-
son og gjaidkeri stjórnarinnar
Birgir Kjaran, en fyrir aftan þá
stjórnarmeðlimir Eimskip þeir Jón
Árnason, Richard Thors, Bjarni
Benediktsson dómsmálaráðherra,
Grettir Eggcrtsson, Pétur Sigurðs-
son og Ásgeir G. Stefánsson.
Fundurinn var fjölmennur og
kom fjármálaráðherra Gunnar
Thoroddsen á hann.
I skýrslu stjórnarformanns kom
eftirfarandi fram:
AUKNIR
VÖRUFLUTNINGAR
Vöruflutningar á árinu 1961 urðu
284 þús. tonn og skiptust þeir
þannig niður:
Þús. tonn
128.5
121
23.5
11
Innflutningur
Útflutningur
Milli hafna erlendis
Milli hafna innanlands
Urðu vöruflutningarnir meiri en
nokkru sinni áður þrátt fyrir verk-
fallið sem stóð í mánuð, en þá
stöðvuðust skip Eimskipafélagsins
í samtals 130 flutningsdaga.
Tala farþega sem ferðuðust með
skipum Eimskipafélagsins var 6970
eða 53 færri en árið áður. Var far-
þegatala með Gullfossi 6559, en
með öðrum skipum 411.
VERSNANDI AFKOMA
Brúttótekjur skipanna á árinu
námu 220.5 milljónum króna og
höfðu hækkað um 38 millj. kr. frá
fyrra ári.
Brúttó úgjöld skipanna námu
213.9 millj. kr. og höfðu hækkað
miklu meira en tekjurnar frá fyrra
ári eða um 57 millj. kr.
Rekstursafkoma skipanna er þvi
miklu iakari en á fyrra ári. Var
hagnaðurinn nú um 6.6 millj. kr.,
Framh. á 7. síðu.
Tvö þúsund Reykvíkingur fú
hituveitu um úrumót
Lægsta tilboð í næsta áfanga
hitaveituframkvæmda í Reykjavík
barst frá tveim fyrirtækjum sam-
eiginlega, Verki h.f. og Verklegum
framkvæmdum h.f. og hófu þau
verkið fyrir viku, en áætlað er, að
því verði Iokið um áramót og þá
fái 2000 íbúar á þessu svæði hita-
veitu.
Tilboð bárust 5 alls. Það lægsta
var frá áðurnefndum aðilum og
samþykkt í borgarráði 17. maf. Það
tilboð nam kr. 3.835.975. Næst-
lægsta tilboð, kr. 4.200.450, var
einnig sameiginiegt frá Þungavél-
um h.f. og verkfræðistofu Gunnars
Guðmundssonar og Stefáns Ólafs-
sonar.
Svæðið, sem hér um ræðir og á
að fá hitaveitu næst, takmarkast af
Dalbraut að vestan, á miðjum
Laugarásveg að sunnan og liggur
upp á háhæðina og með götunum
i vestan í Laugarási. Á svæðinu
standa háhýsin tvö og Dvalarheim-
; ili aldraðra sjómanna. Sem áður
I segir á þessum framkvæmdum að
j verða lokið um næstu áramót,
| tengist svæðið á sundlaugastöðina
á sama hátt og vesturhluti þessa
! hverfis.
5 ára drengur
drukknar / brunni
, Fánaborg sjómannafélaga á Austurvelli í gær.
Á laugardaginn varð það slys i
Grímsey, að finim ára drengur
Eiríkur Jóhannesson drukknaði í
brunni þar í eynni. Hann er sonur
i Jóhannesar Magnússonar og sonar-
sonur Magnúsar hreppstjóra í
Grímsey.
Fjölskylda drengsins býr í Sveina
görðum, en nokkru fyrir norðan
bæinn er tjörn, sem stundum þorn
ar upp, en stundum er vatn í henni.
í öðrum enda tjarnarinnar er brunn
l ur sá sem drengurinn drukknaði í
| og hefur hann verið óbyrgður.
Þegar slys þetta gerðist var faðir
! drengsins úti á sjó, en gestir höfðu
^ komið í heimsókn, bróðir Jóhannes
gr sem býr á Hjalteyri. Var því
mikið um að vera á bænum og
veittu menn því ekki athygli að
1 drengurinn hafði farið frá bænum.
Þegar drengurinn var horfinn var
farið að undrast um hann og hafin
leit að honum. Föðurbróður hans,
sem var í heimsókn datt þá í hug
að leita í brunninum, sem er um
mannhæðadjúpur og þar fannst
Framh. á 5. síðu.
1