Vísir - 12.07.1962, Qupperneq 4
;
.
/
...................-......................'-'
- *'-•
stjórnmálum
VISIR
Fimmtudagurinn 12. júlí 1962
í iðnaði
í dag er sextugur Þorgeir
Jósefsson á Akranesi. Þorgeir
hefur um áratuga skeið verið
framkvæmdastjöri Vélsmiðjunn
ar Þorgeir og Ellert og Dráttar-
brautar Akraness. Hann er
fæddur 12. júií, 1902, að Eystra
Miðfelli á Hvalfjarðarströnd, en
fór ungur til Akraness og iærði
járnsmíði. Þorgeir hefur verið
í hreppsnefnd og bæjarstjórn
á Akranesi síðan 1937 og alla
tíð haft áhuga á stjómmál-
um. Fyrirtæki sín hefur hann
byggt upp af miklum dugnaði
og verið einn mesti fram-
kvæmdamaður á Akranesi. Vís-
ir hafði tal af Þorgeiri, skömmu
áður en hann fór af landi burt,
en hann dvelst nú í Danmörku
um tíma.
— Hvenær byrjaðir þú að
læra járnsmíði?
— Ég byrjaði á því 16 ára
gamall, árið 1918, hjá Ólafi Ól-
afssyni, sem þá hafði nýlega
sett upp vélsmiðju á Akranesi.
Hjá honum vann ég til 1928, er
ég setti á stofn Vélsmiðjuna1
Þorgeir og Ellert, ásamt bróður
mínum, sem einnig hafði lært
hjá Ólafi.
— Var ekki erfitt að byrja í
viðskiptum á þeim tíma?
— Það er alltaf erfitt að
byrja. Það verða ungir menn
að horfa fram á ef þá langar
til að komast áfram. Þeir verða
að treysta á sjáífa sig. Ef mað-
ur hefur nóg sjálfstraust, geng-
ur það.
— Hvers kyns vinnu fengust
þið við fyrst?
— í fyrstunni var eingöngu
um að ræða bátaviðgerðir. Síð-
an færðum við út kvíarnar, þeg
ar ég keypti Dráttarbraut Akra-
ness. Samtök útgerðarmanna
höfðu átt hana og hafði gengið
fremur illa að reka hana, enda
held ég að þeir hafi ekki haft
mikla trú á henni. Ég endur-
byggði hana árið 1938 og eftir
það fórum við að taka stærri
viðgerðir skipa og nýsmíði.
— Hvenær var fyrsta skipið
byggt?
— Við byggðum fyrsta skip-
ið 1939 og var það sjósett 26.
janúar 1940. Þetta var 60 tonna
bátur, sem nefndur var Sigur-
fari og er enn gerður út frá
Akranesj. Verður ekki annað
sagt en að hann hafi gefizt vel.
— Hafið þið byggt mikið af
skipum síðan?
Viðtal við
Þorgeir Jós-
efsson á
Akranesi
sextugnn
— Aðalverkefnið hefur alltaf
verið viðgerðir. Til að fylla upp
í eyður þær sem verða á vinnu
við þær höfum við smíðáð báta.
Við höfum byggt rekstur bæði
vélsmiðjunnar og dráttarbraut-
arinnar á viðgerðarþjónustunni.
— Hvernig lítur farmtíð
skipasmíða út, hér á landi?
— Ég álít að þar gegni sama
máli og með annan iðnað í
landinu. Við verðum að leggja
áherzlu á að byggja upp iðn-
aðinn, þar sem hann er sam-
keppnishæfur að gæðum og að
mestu leyti að verði. Ég segi
að mestu leyti, af því að okkur
er mjög mikilvægt að spara
Og
CJ
gjaldeyri. Ekki aðeins af þvl að
okkur skorti hann, heldur einn-
ig af því að enginn útflutning-
ur okkar getur staðið að öllu
leyti óstuddur.
— Við íslendingar erum
mjög litlir í þjóðaheildinni. All
ar aorar þjóðir leggja mikla á-
herzlu á að efla sinn iðnað.
Ef okkur heldur áfram að
fjölga eins og að undanförnu
er nauðsyn fyrir okkur að efla
iðnaðinn meira en gert hefur
verið og með auknum fólks-
fjölda getum við það. Sjávarút-
vegurinn er eini atvinnuvegur
okk-ir sem á möguleika á að
auka gjaldeyristekjurnar. Iðnað
urinn og landbúnaðurinn eiga
aftur á móti möguleika á að
spara gjaldeyri 1 vaxandi mæli.
í framkvæmd er það raunveru-
lega það sama að spara gjald-
eyri og afla hans.
— Telur þú möguleika á að
íslenzkur iðnaður verði sam-
keppnisiær á mörgum sviðum?
— Við höfum ekki síðra fólk
en aðrar þjóðir. Ef við því ekki
getum verið samkeppnisfærir
er eithvað að og þá !r að finna
hvað það er. Er gengið vitlaust
skráð, er kaupið of hátt eða er
yfirstjórnin í ólági? Á8 auki er “
svo sú góða spurning: Eru gerð
ar meiri kröfur til íslenzks iðn
aðar en þess erlenda? Eitt af
því mikilvægasta til að viö get-
um orðið samkeppnisfærir, er
verkaskipting 1 þjóðfélaginu og
að hafa tryggingu fyrir því að
atvinnuvegirnir geti þróazt án
íhlutunar aðvífandi afla.
— Þegar menn eru að deila á
iðnaðinn ættu þeir að hafa í
huga, að við verðum að standa
á eigin fótum, því að ekki get-
um við staðið á annarra fótum.
Við getum fengið marga hluti
ódýrari erlendis en hér. Ég ef-
ast ekki um að við gætum flutt
inn ódýrari bæjarstjóra frá Fær
• •• i.WV.í
Þorgeir Jósefsson
eyjurp, en við höfum hér, en
engum dettur í hug að gera
það.
Ég er samkeppnismaður og á
lít að menn eigi að fá frið til
að keppa hver við annan án í-
hlutunar annarra.
— Þú hefur verið mikið í
stjórnmálum?
—• Ég hef alla tíð verið Sjálf
sfcæðismaður. Ég var kosinn í
hreppsnefnd fyrst 1937 og
svo í bæjarstjórn 1942. Ég var
svo í henni þangað til á síðasta
kjörtímabili, að ég tók mér frí.
Nú er ég svo byrjaður aftur.
— Telur þú heppilegt fyrir
menn sem eru í viðskiptum að
taka þátt í stjórnmálum?
— Það er ekki heppilegt fyrir
þá, en getur verið heppilegt fyr
ir bæinn. Sá sem þarf að hafa
viðskipti við fjöldann, þarf einn
ig að hafa vinskap alls fjöld-
ans og það er ekki víst að hann
náist I gegnum stjórnmálin.
Hins vegar getur það oft verið
heppilegt fyrir bæinn, eins og
ég sagði áðan. Bæjarfélagið er
oft stærsta fyrirtæki sem til er
í bænum. Það er því nauðsyn-
legt að nægileg reynzla sé fyrir
hendi, meðal þeirra sem stjórna
bænum, til að reka svo stórt \
fyrirtæki
Telúr þú að menn með slíka
reynzlu séu notaðir nóg í á-
byrgðarstöður á íslandi?
— Það hefur mjög skort
skilning á þessu hér. Erlendis
er aftur á móti góður skilning-
ur á þessu, eins og sjá má á
því hve margir áhrifamenn og
valdamenn koma úr viðskiptalif
inu. Það liggur í augum uppi að
maður sem skarar fram úf sem
fjármála- og framkvæmdamað-
ur missir ekki þá gáfu við að
ganga í þjónustu þess opinbera.
— Hafið þið smíðað stálskip?
— Það höfum við ekki gert.
Stálskipin eru tízka, sem geng-
ur yfir. Hún stafar fyrst og
fremst af þurrafúanum. Nú er
búið að sigrast á honum, svo
að ekkert mælir mðti því
að byggja tréskip. Raunar höf-
um við talsverða reynslu í með-
ferð á stáli við skipabyggingar,
því að einn þriðji af kostnaði
við trébát er stálvinna, sem fer
í yfirbyggingu og fleira. Ég er
persónulega þeirrar skoðunar,
að byggja eigi trébáta, innan
við 150 tonna, en þau skip,
sem eru yfir þá stærð, eigi að
vera úr stáli.
— Eru nokkrar breytingar
fyrjrhugaðar á dráttarbraut-
inni?
— Við höfum sótt um lóð
til að stækka, en það undarlega
hefur gerzt að við höfum ekki
fengið hana enn. Við viljum
geta byggt og tekið fll viðgerð-
ar allt að 1000 tonna skipum,.
Ef við ekki fáum lóð innan
hafnarinnar, verðum við að
minnka stærð þeirra skipa, sem
við getum tekið.
— Þú ert núna að framleiða
steinker?
— Ég er að gera tvö ker, sem
Framh. á bls. 13.
Sigrún, nýjasti bátur sem smíðaður er hjá Dráttarbraut Akraness.