Vísir - 12.07.1962, Blaðsíða 13
Fimmtudagurinn 12. júlí 1962.
V ' S 'R
13
Umferðin
Framh. at 7. síðu.
forvitnast. Sigurður opnar hurð
ina og heilsar ökumanninum,
sem er á að gizka á milli fer-
tugs og fimmtugs, með gler-
augu, klæddur gamaldags, tví-
hnepptum dökkum jakkafötum.
— Hvað er nú að gerast.
hvað viijið þið?
— Af hverju stöðvar þú ekki
bílinn, þegar þér er gefið merki,
spyr Sigurður.
— Ég hélt að þið ættuð ekk-
ert vantalað við mig.
— Má ég sjá ökuskírteinið
þitt?
Maðurinn opnar geymsluhóif
í mælaborðinu og segist svo
hafa gleymt því heima.
— Vissulega átt þú að hafa
ökuskírteinið með. Segðu mér
annars, hvað er langt síðan þú
smakkaðir vín síðast?
— Heldurðu virkilega, að ég
sé fullur? Þar skjátlast þér.
— Átt þú þennan bíl?
— Já. Já, ég á þennan bíl.
— Hvaðan ertu að koma?
— Frá Selfossi, svarar mað-
urinn og er nú auðsjáanlega
orðinn rólegri.
— Mikil umferð á veginum?
spyr Sigurður um leið og hann
Iaumar hendinni eftir svisslykl-
inum.
— Nei, ekki mjög mikil.
— Drakkstu koníak? spyr
Sigurður snögglega.
— Nei, brennivín, svarar
maðurinn og grípur svo um
munninn. þegar hann áttar sig
á því, hvað hann hefur sagt.
— Jæja, þá skulum við koma
yfir í bílinn til mín. Hann sér
nú ekki aðrar leiðir færar og
hlýðir þegar.
Þegar búið er að leggja bif-
reiðinni út i vegabrúnina cfg
læsa henni, er haldið með öku-
manninn til bækistöðva umferð
arlögreglunnar í Skátaheimil-
inu. Þegar þangað kemur er
hann látinn blása í belg tif ao
mæla vínandann í blóðinu.
Framan við belginn er hylki,
sem hefur inni að halda efnis-
blöndu, sem skiptir um iit ef
áfengi er í andardrættinum. —
Einnig er hann látinn gera ýms-
ar jafnvægisæfingar, svo sem
ganga eftir beinni línu og
beygja sig eftir hlut.
Þegar þessu er lokið er tekin
af honum svokölluð varðst.jóra-
skýrsla og þá kemur öll sagan
Ég átti erindi við kunningja
minn, sem býr á Selfossi og fór
þangað um fimm-leytið i dag
Hann bauð mér að borða hjá
sér og þegar við vorum setztir
inn í stofu hjá honum eftir
matinn kom hann með brenni-
vínsflösku, setti hjá mér glas
og bauð mér. í fyrstu datt mér
í hug að segja nei takk, af því
að ég var á bílnum. Svo fannst
mér, að ég mundi aæra hann
og þáði því eitt glas, sem mér
fannst * vera saklaust. Svo
glejrmdi ég þvi að ég var á
btlnum og þáði meira. Þegar
mér fannst tími til kominn að
fara af stað og kveðja þótti
mér það vera allt í lagi fyrlr
mig að keyra. Mér virtist ég
ekkert vera búinn ' að smakka
að ráði.
Þessi ökumaður hlýtur minnst
eins árs ökuleyfismissi og háa
fjársekt. Þetta dæmi getur ver-
ið öðrum ökumönnum viðvör
un.
Minnstu þess, að þegar þú
ferð í „cocktail-party“, heim t.il
kunningja þtns eða í samkvæmi
og ert á btlnum, að ölvaður
ökumaður skapar ekki einungis
sjálfum sér mikla hættu heldur
öilum öðrum vegfarendum, sem
á vegi hans kunna að verða
Tilhugalif —
Framh. af bls. 9
— Nei, mjög lítið, vegna þess,
hve tíðarfarið hefir verið slæmt,
en nú er það vonandi að breyt-
as( til befra. Við fórum til Þing-
vaila, þvt að sjálfsagt er að fará
þangað, þegar til íslands' er kom
Ferðafólk
Snæfellsnesi
Hótel Fell Grundarfirði býður upp á alls kon-
ar veitingar og gistingu. Lítið inn á leið ykk-
ar um Snæfellsnes.
Unnur Jónsdóttir.
ið. Mér finnst sá staður hafa
þau áhrif á mig, sem ég finn
hvergi annars staðar, og ég á
erfitt um að lýsa. Svo fórum
við líka hringferð um Árnes-
sýslu, og það var mjög skemmti
legt. I báðum þessum ferðurn
vorum við sérlega heppnar með
veðrið.
— Er dóttir yðar ekki með í
ferðinni?
— Nei. Því miður gat hún
ekki komið með, þótt hana lang-
aði mikið til þess. Hún gat ekki
fengið sumarleyfi sitt á þessum
tíma. Hún vinnur á skrifstofu í
Kaupmannahöfn.
— Skrifstofu segið þér. Ætl-
ar hún ekki að feta í yðar spor
og verða söngkona?
— Nei, söngkona ætlar hún
ekki að verða. En hún syng-
ur nú samt og lærir söng og
hefir áhuga á góðri tónlist yfir-
leitt.
— Kennið þér henni ekki
sjálf að syngja?
— Nei. Það er ekki heppilegt
að kenna sfnum eigin börnum,
að mínu áliti. En auðvitað að-
stoða ég hana eins og ég get.
Heiðruð
— Yður hlotnaðist sá heiður
að vera sæmd riddarakrossi
fálkaorðunnar á árinu sem leið?
— Já, og það þótti mér ákaf-
lega vænt um. Það er alltaf mik-
ils virði að finna, að verk manns
séu virt, því að ég hef lagt
mig mjög fram um að kynna ís-
lenzka tónlist, alls staðar þar
sem ég hef sungið, á tónleikum,
í útvarpi og á hljómplötuin. T.d.
var ég sú fyrsta, sem söng ís-
lenzk lög í finnska útvarpið, og
þau vöktu mikla athygli hlust-
enda.
— Nú þakka ég yður samtal-
ið, frú Elsa, og óska ykkur
mæðgum góðrar ferðar.
— Þökk fyrir.
¥Sðt«l desgslns -
Framh at 4. síðu.
nota á í Sandgerði og Garðin-
um. Hvort þeirra er 12,5 metr-
ar á kant. Ég hef aldrei feng-
izt við þetta áður, en ég er
alltaf til í eitthvað nýtt. Ég er
þeirrar skoðunar, að lækka
megi verð keranna mjög veru-
lega, ef þau eru framleidd á
einum stað. Núna eru þau
byggð um allt land við mis-
munandi aðstæður. Það er aug-
Ijóst að fyrirtæki, sem miðar
sig við slíka framleiðslu, getur
selt miklu ódýrar, en þegar
byggt er hér og þar við óhent-
ugar aðstæður. Ekki er ég þó
viss um að ég sé maðurinn.
sem fer út í þetta í stórum
stíl.
Afgreiðslustúlka
Stúlka eða kona, 25—40 ára, vön afgreiðslu-
störfum óskast nú þegar. Tilboð merkt „Fram-
tíðarvinna 2162“ sendist afgreiðslu Vísis strax.
Hamráð trétex
- harðtex
Nýkomið
TRÉTEX 1/2” - hamrað
4x og 4x9
HARÐTEX 1/8”
LUDVIG STORR & £0.
Símar 1-33-33 og 1-16-20
Bergen — Fjöll og firðir Noregs
— Osló — Stokkhólmur —
„Feneyjar Norðurlanda“ og heila viku í „Borg-
inni við sundið“, Kaupmannahöfn. Kvöldmatur
á ýmsum skemmtistöðum í Kaupmannahöfn
innifalið í verði ferðarinnar. Flogið allar Iang-
leiðir.
SKEMMTILEG FERÐ — FRJÁLS TILHÖGUN.
21 dagur, kr. 15.000,00.
Fararstjóri:
Ingólfur Kristjánsson
ritstjóri.
FERÐASKRIFSTOFAN
Bankastræti 7. — Sími 16400.
------1----------
SUIMIMA
HEIMDALLARFFRÐ í VIÐEY
nsestkomandiL inugordag
Brottför frá Loftsbryggju, kl. 2, stund-
víslega. Farið verður rneð bátum ferða-
skrifstofunnar „Lönd og leiðir“, þ. e.
NÓA og JÓNI GEIRSSYNI. Áætlað
er að ferðinni Ijúki kl. 5,30 — 6 e. h.
ATH.: að innan við 100 MIÐAR verða
seldir.
Lðiisöfiumaðiir veriur með í ferðisisii
HEIMDELLINGAR, eldri sem yngri, hcr gtfst
gullið tækifæri til að skoða sögueyjuna.
FARMIÐAR verða seldir á skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins við Austurvöll milli kl. 9
og 5 daglcga og á skrifstofu Heimdallar 1
Valhöli milli kl. 9 og 7.
Upplýsingar í símum: 17100 og 18192.
Verð farmiða kr. 75,00 (Matur innifalinn).
STJÓRN HEIMDALLAR, F. U. S.
I.m.'P ,'í i
! t ! II