Vísir - 12.07.1962, Blaðsíða 7

Vísir - 12.07.1962, Blaðsíða 7
Fimmtudagurinn 12. júií 1962. VISIR 216 ölvaðir ökumenn !«WWíV>M»M>W»MvM*MwM^yyM^yWMMUyW»W»»M»»AA^ verið teknir frá þvi um úromöt Næstum daglega sjá- um við skýrt frá því í dagblöðum bæjarins að einn eða fleiri ölvaðir ökumenn hafi verið tekn ir undir stýri, eða við lesum fréttir um stór slys sem enda á þessa leið: Ökumaður var ölv- aður eða grunur leikur á að ökumaður hafi verið ölvaður. Því neita fáir að einn mesti vágesturinn í um- ferðinni séu ölvaðir öku- þórar, sem flestir hverjir svífast einskis og þekkja ekki tillitssemi í garð annarra vegfarenda. Klukkan er um hálf níu, þeg- ar við leggjum af stað frá Skáta- heimilinu við Snorrabraut I eftir litsferð með þeim Sigurði Ágústssyni og Bimi H. Jónssyni. Ferðinni er fyrst heitið suður fyrir Hafnarfjörð. Þegar þang- að kemur er bifreiðinni lagt út í vegabrúnina og fylgzt með um ferðinni, sem var annars mjög lítil. Talið berst fljótlega að umferðarlögunum. Við spyrjum Sigurð fyrst hvað umferðalög- in segi um ölvun við akstur. — Það er þá víst bezt að byrja á byrjuninni, svarar hann. í kafla þeim í umferðarlögunum, sem fjallar um ökumenn segir skýlaust að, ökumaður skuli vera líkam- Iega og andlega fær um að stjórna ökutæki því, sem hann fer með. Læknar gefa vottorð um að svo sé, og er það látið fylgja umsókn um ökumannspróf. En það nægir ekki eitt að hið andlega heilbrigði sé til stað ar og læknir geti vottað það. Læknir getur ekki séð á stund- að ég sé fullur?4 Ein af þeim æfingum, sem ölvaður ökumaður er látin gera til að athuga jafnvægið. slikri þreytu eða sljóleika að hann geti ekki stjórnað ökutæk- inu á öruggan hátt. Ef leigubílstjóri ekur bifreið sinni í slíku ástandi, á hann á hættu þunga refsingu. Sigurður stöðvar bíl og spyr um ökuskírteini. Ljóm. Vísir B.G. lnni, þegar viðkomandi er undir rannsókn, hvort hið andlega at- gervi sé fullnægjandi hvað sið- gæði snertir og heilbrigða skyn- semi áhrærir. Þá eru í umferðar- lögum talað um siðgæðisvenjur sem engin ökumaður má brjóta að viðlagðri refsingu. í kafla um ökumenn segir enn fremur: Enginn má aka eða reyna að aka ökutæki, ef hann vegna veik inda, ofreynslu, svefnleysis, und anfarandi neyzlu áfengis, æs- andi eða deyfandi lyfja eða ann- arra slíkra orsaka er haldin — En segðu mér Sigurður, hvað má maður drekka af áfengi án þess að brjóta lög? — Alls ekkert. Við rannsókn á alkóhólinnihaldi í bióði öku- manna, er farið eftir tveimur mörkum. Ef í blóðinu finnst 0,50 pr. mill. til 1,20 pr. mill. af vín- anda, er talið að hann hafi ekki getað stjórnað ökutæki sínu ör- ugglega, Hitt markið er yfir 1,20 pr. mill. og telst hann þá hafa vérið óhæfur til að stjórna öku- tæki. — Á þá að skilja þessa laga- setningu þannig, að þessi mis- munandi takmörk gefi mönnum mismunandi milda heimild til aksturs? — Nei, þau eru aðallega not- uð við ákvörðun refsingar, þ. e. a. s. hversu þung refsing skuli vera. — Heldurðu Sigurður að ég mætti t.d. taka einn sjúss? — Nei, blessaður vertu, ef þú drekkur eina bjórflösku og mag inn er tómur, þá kemur það fram, ef þú ert látinn blása í belginn stuttu seinna. Því er einnig haldið fram af læknum, þeim er þekkja vel til þessara hluta, að fyrstu áhrif vínandans séu þau hættulegustu. Þegar svo þreyta og vanlíðan, eða t.d. ó- sætti við samferðarfélaga, á sér stað við akstur getur ekki vel farið. — En hvernig tekur fólk því, þegar þið eruð einatt að stöðva það við akstur? — Yfirleitt mjög vel. Það veit vel um heimild oklcar til að stöðva bifreiðina og athuga á- stand ökumanna og réttindi. Við reynum að tefja fólk sem minnst. Og oftast eru það öku- menn, sem eitthvað er athuga- vert við í akstri eða ökutæki þeirra, sem fyrtast við okkur. Það fer oftast saman kæruleysi og ókurteisi. Er við höfðum verið á sveimi fyrir ofan Hafnarfjörð ákváðum við að breyta um stað og halda upp fyrir' Elliðaár og fylgjast með umferðinni þar. Þegar þang að kemur er haldið inn Suður- landsveg og nokkrir bílar stöðv- aðir og ökumenn spurðir um ökuskírteini. Næst er ekið Hafra vatnshring og komiið niður á Vesturlandsveg. Þar er bifreiðin stöðvuð og innan skamms fer umferðin um veginn að aukast, því dansleik er að ljúka að Hlé- garði. Sigurður og Björn stöðva flestar bifreiðir og spyrja öku- menn um skírteini og suma um skoðunarvottorð. í flestum bifreiðunum eru glaðir og kátfir unglingar. Ekki er hægt að segja að mikið hafi borið á ölvun í bílunum. Voru þeir kurteisir £ svörum og tóku lögreglumönnunum vel. Klukkan er að ganga fjögur og lögreglubíllinn stendur fyrir of- an Elliðaárbrekkur. Umferðin er örlítil. Allt í einu sjáum við hvar vörubíll kemur akandi nið- ur Suðurlandsveg og Sigurður segir: Þessi virðist eiga allan veginn, mig grunar að það sé eitthvað brogað við þennan. Þú ættir að fara út Björn og spjalla við hann. Bíllinn nálgast. Björn fer út á veg og gefur ökumanninum, sem virðist vera einn í bílnum, merki um að nema staðar, en skyndilega eykur hann ferðina og ekur fram hjá Birni, sem hleypur þegar inn í lögreglubíl- inn. Það er þegar haldið á eftir vörubílnum með sírenuna væl- andi. Innan stundar er lög- reglubíllinn búinn að draga vörubílinn uppi og ekur með- fram hliðinni á honum. Sigurð- ur gefur bílstjóranum merki um að stanza með því að rétta út handlegginn, en bílstjórinn virð ist ekki á þeim buxunum. Þess í stað eykur hann ferðina og snarbeygir í veg fyrir okkur og heldur inn Langholtsveg og það ískrar og syngur í öllu. Nú er lögreglubíllinn aftur kominn upp að vörubílnum og ekur fram fyrir og beygir lítið eitt fyrir hann. Þá virðist ökuþór- inn búinn að fá nóg og stöðv- ar bílinn. — Björn og Sigurður snarast út og við á eftir til að Framh. á bls. 13. t

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.