Vísir - 03.08.1962, Blaðsíða 2
VISIR
Föstudagur 3. ágúst 1962.
0 Ll—|
FTd])
\zsm
'm
Lfösstyrkur frá Grindavík
kom í veg fyrir tap FH
Mikill mannfjöldi,-einhver mesti mannfjöldi, sem horft hefur á handknatt-
leik hér um árabil, að sögn 1413 manns, kom að sjá Esslingenliðið leika síð-
asta leik sinn í þessari heimsókn í fögru veðri á Melaveliinum í gærkvöldi. Flest
þessara 14 hundraða hafa eflaust komið til að sjá þessi „villidýr“ í mannsmynd,
sem svo mjög hafa verið til umræður að undanförnu. Það sem 14 hundruðin
fengu að sjá var annars ekkert líkt ljónum eða tígrisdýrum, heldur mjög prúð-
og oft mjög vel leikandi handknattleiksliði, svo mjög að Esslingen var að-
eins hársbreidd frá sigri og hefði líklegast sigrað, ef Hafnfirðingum hefði ekki
bætzt liðsstyrkur frá Grindavík, þar sem fyrrverandi félagi FH-inganna, Pétur
Antonsson var. Hann skoraði nú 9 mörk og var ógnvaldur Esslingen-manna
hvar sem hann var. Er FH mikill skaði að missa Pétur, sem nú er starfandi sem
framkvæmdastjóri í Grindavík, en stóðst ekki mátið, er honum bauðst að leika
nú, hefur sennilega verið farið að kitla í fingurna.
FH nðSi 7:1.
FH byrjaði leikinn með yfir-
burðaleik. Bæði liðin léku rólega
og yfirvegandi, Þjóðverjarnir ó-
þekkjanlegir frá fyrri leikjum og
feimnir eins og fermingarstrákar.
FH skoraði fyrstu 3 mörkin, en þá
loks svarár Boger. Enn bæta FH-
ingar 4 mörkum við og staðan er
7:1 og Esslingen búið að fá samúð
manna. Drógu Esslingenmenn nú
nokkuð á og komust í 8:5, en þá
skora Pétur og Ragnar, og Pétur
aftur, 11:5. Simmendinger minnkar
í 11:6, Pétur skorar tvívegis og
Fink skorar síðan
hálfleiksins, 13:7.
slðasta mark
vann Esslingen 22:20
.... Og FH missir
leikinn niður.
Síðari hálfleikurinn snerist að
miklu leyti við þannig, að Essling-
en sótti og skoraði en FH átti nú
mun lélegri leik í sókn sem vörn.
Esslingemenn sóttu á hægt og
sígandi og eftir 15 mínútna leik,
eða hálfnaðan hálfleik var staðan
orðin 15:14 fyrir FH. Hinn nýi,
efnilegi markvörður FH, Logi
Kristjánsson, hafði verið í marki
og ekki gengið sem bezt, sem var
ekki honum sjálfum mest að
kenna heldur vörn FH, sem gliðn-
aði mjög í síðari hálfleik. Hjalti
skipti aftur inn á fyrir Loga um
miðjan hálfieik og Pétur kom inn
um svipað leyti.
Var taflinu nú breytt til muna
og leikur FH breyttist. Ragnar
skoraði 16:14, en Þjóðverjar fylgja
eftir og jafna á 17:17, en Ragnar
og Birgir ná forystunni aftur,
19:17, Knecht minnkar í 19:18.
Þrjú mörk Islands gerðu að heita
má út um leikinn enda aðeins 5
mlnútur eftir. Pétur skoraði fyrst,
síðan Birgir og þá Pétur aftur, var
staðan þá 22:18. Þjóðverjar bættu
tveim mörkum við sig undir lok-
in, en gátu ekki hindrað sigur FH.
Líkari englum
en vlllidýrnm.
Þýzka liðið var nú óþekkjanlegt
frá 3 fyrri leikjum og voru leik-
Framh. á bls. 10.
ir skoruðu
FH: Pétur 9, Ragnar 4, örn og
Birgir 3 hvor, Kristján, Borgþór
og Einar 1 hvor.
ESSLINGEN: Simmendinger og
Knecht 6 hvor, Boger 4, Fink 3,
Hagele 1.
Þegar íþróttaliðin etja saman
hestum sínum á leikvellinum,
stendur oftast annað lið utan leik-
vailar — það er iið Ijósmyndara,
hið hæfasta lið. 1 gærkvöldi
urðu þær breytingar á hjá þelm,
að þeir voru styrktir með tveim
fögrum fulltrúum veika kynsins.
Eldrl ljósmyndaramir gerðu sér
mikinn mat úr liðsaukanum, og
sést hér Sveinn Þormóðsson, gam-
all og traustur liðsmaður miðla ný-
liðunum af vizku sinni.
KCll „Slt ISl 1KVOIU
Ragnar Jónsson stekkur inn fyrir og skorar örugglega. Ragnar hefur átt mjög góða Ieiki gegn
Þjóðverjunum.
Færeyjar — ísland
á Laugardalsvelli
Liðin á Laugardalsvelli i kvöld eru þannig sklpuð:
Færeyjar: (A-lið)
Pétur S. Rasmussen HB
Jakob I. Joensen, HB Thordur Holm, B-36
Magnus Kjeinæs, KI Jegvan Johansen, HB Brynjer Gregoriusen, HB
Kai Kallsberg, B-36 Eyvind Dam, HB
Thorstein Magnusen, B-36 Jogvan Jakobsen, KI Steinbj. Jakobsen, KI
•
Þórður Jónsson, ÍA Ingvar Elísson, ÍA Baldur Scheving Fram
Ellert Schram, KR Skúli Ágústsson, ÍBA
Ragnar Jóhannsson, Fram Bogi Sigurðsson, IA Ormar Skeggjason, Val
Þorsteinn Friðþjófsson, Val Hreiðar Ársælsson, KR
Geir Kristjánsson, Fram
ísland (B-lið)
Varamenn Færeyja: Haralvur Andressen, TB, Danjal Krosstein, KI,
Hedin Samuclsen, B-36, Henry Paulsen, B-36, Marius Jensen, HB,
Bjarni Hoim, B-36, Eddy Petersen, TB, og Olafur Olsen, B-36.
Varamenn islands: Einar Helgason, ÍBÁ, Halldór Lúðvíksson, Fram,
Högni Gunnlaugsson, ÍBK, Grétar Sigurðsson, Fram og Guðmundur
Óskarsson, Fram.
j Miðar ©g „própröm" á landsleíkinn j
seld 'vsð Útvegsbankdnn í dag
Að venju verður „prógram" íþróttablaðamanna boðið til sölu i
á Laugardalsvellinum í kvöld á Iandsleik Færeyja og Islands. Er ,
þarna margt um íþróttir Færeyinga að finna cnda ritað af fróð-
ustu mönnum um íþróttir þeirra. Ýmsar staðreyndir aðrar er ‘
þama að finna um landið. I
„Prógram“ þetta verður og til sölu við Útvegsbankann í dag, |
en þar eru aðgöngumiðar á leikinn seldir og er vissara fyrir |
menn að notfæra sér þá sölu, í kvöld má gera ráð fyrir löngum ,
röðuni við aðgöngumiðasölurnar á Laugardalsvellinum og lítið
„púður“ er í því að standa utan hliðs eftir að leikur hefst» stand-
andi í stympingum og troðningi.
(