Vísir - 03.08.1962, Page 16
Föstudagur 3. ágúst 1962.
Gífurleg uðsókn í
Edinborgarferðina
Svo mikil aðsókn hefir verið að
komast með í hópferð Ferðaskrif-
stofunnar Sunnu á Edinborgarhátíð
ina, að fyrir löngu er upp pantað
allt, sem tryggt var, að gæti feng-
ið gisting í Edinborg, og þegar
eru komnir þó nokkrir á biðskrá,
ef einhver möguleiki yrði, að þeir
gætu tekið þátt f ferðinni.
Ferðaskrifstofan leggur nú allt
kapp á að útvega fleiri hótelher-
bergi, og eru líkur til, það tak-
ist að einhverju marki, en sífellt
eru að bætast fleiri og fleiri á bið-
skrá Sunnu í þessa ferð.
Upphaflega var rúmlega 30
tryggt hótelherbergi, og er það
nokkuð fleira, en fór í fyrra og
árið þar áður, En nú hefir verið
vandað enn meira til dagskrár á
hátíðinni, þar kemur fram fjöldi
heimsfrægra listamanna, og því hef
ir aðsókn nú aukizt mjög mikið
hvaðanæva að. Fyrir nokkru var
sagt frá því helzta hér í blaðinu,
sem á boðstólum verður á hátíð-
inni.
Flogið verður héðan 24. ágúst og
dvalizt ytra í rúma viku, að mestu
í Edinborg sjálfri, sem sjálfsagt er.
Þó verða farnar nokkrar ferðir frá
borginni, upp f skozku Hálöndin,
til Lock Lomond, kaupstaðarferð
til Glasgow. í
0 Thant SCrúsév
hittast 24. ógúst
U Thant bráðabirgðafram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna sagði fréttamönnum í gær, að
hann mundi hitta að máli Nikita
Krúsév forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna 24. þ. m.
Hann kvaðst mundu ræða við
hann ýmis mál, en vildi ekki fara
nánara út f hver þau væru.
Áður var þess getið í fréttum,
að U Thant hefði sagt,, að hann
myndi gefa kost á sér sem fram-
kvæmdastjóra samtakanna næsta
reglulegt fimm ára tímabil, svo
fremi að hann sannfærðist um að
hann gæti stuðlað að bættu sam-
starfi Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna.
Líklegt er talið, að það verði i
New York, sem þeir ræðast við
U Thant og Krúsév.
HAFA ALLTAÐ VINNA
Færeyska landsliðið, sem keppir hér í kvöld
Færeyska knattspyrnulands-
liðið kom til Reykjavíkur seint
f gærkvöldi með Dronning AI-
exandrine. Verður landsleikur
háður milii íslands og Færeyja
í knattspyrnu á Laugardalsvell-
inum f kvöld. En auk þess munu
hinir færeysku knattspymu-
menn leika hér fleiri ieiki. m.a.
á ísafirði og í Keflavik.
Færeyingarnir eru úr fjórum,
knattspyrnuliðum Færeyja, flest
ir þeirra úr Þórshafnarliðunum
H. B. og B-36 og hafa þeir allir
áður heimsótt ísland. Auk þess
eru nokkrir leikmenn frá
Klakksvik og Þvereyri.
Þegar fréttamaður Vísis hitti
þá við komuna, sögðust þeir
ekki vera sérlega bjartsýnir á
úrslitin í landsleiknum. Bjugg-
ust þeir við að íslendingar væru
sterkir. Það er þó ekki gott
að segja um úrslitin, hefur t.d.
heyrzt að hægri útherji Færey-
inga, Thorstein Magnusen, sé
mjög sterkur og skemmtilegur
leikmaður. Og Færeyingarnir
hafa mikið að vinna. Það væri
vissulega mikill sigur fyrir þá,
ef þeim tækist að jafna eða
vinna íslendinga.
Peter Sigurd Rasmus-
sen 28 ára markmaður
Jacob Joensen 26 ára
hægri bakvörður.
Magnus Kjelnes 22 ára
hægri framvörður.
Jogvan Johansen 40
ára, miðvörður.
Brynjer Gregoriusen
30 ára, vinstri framv.
Thordur Hólm 23 ára,
vinstri bakvörður.
Thorstoin Magnusen
25 ára, hægri útherji.
Kai Kallsberg 19 ára,
hægri innherji.
Jegvan Jakubsen, 23
ára, miðframherji.
Eivind Dam 26 ára,
vinstri innherji.
Eitt morgunblaðanna í morg-
un ber brigður á fregn, sem
birtist f Wsi á þriðjudaginn
undir fyrirsögninni: „Æpandi“
skortur á saltsíld í Noregi. Var
Vísisfregnin byggð á frétt með
Fullkomið brunuboðokerfi
Miðbæjarskólanuni
í sumar hefur verið sett upp
mjög víðtækt og fullkomið bruna-
vamarkerfi um hina stóru timbur-
byggingu Miðbæjarskólans. í þessu
gamla húsi, sem fjöldi barna stund-
ar nám í er auðvitað allmikil eld-
hætta og mun þetta nýja bruna-
boðakerfi verða til þess að stór-
auka öryggi í húsinu. Er kerfið nú
komið í beint samband við Slökkvi
stöðina.
í gær gerðist það, að smávegis
bilun, sem stafaði af skammhlaupi
varð í þessu kerfi og hringdi þegar
í stað niður á Slökkvistöð. Sem
betur fer var ekki um eld að
ræða, en þetta kom út sem æfing
og sást nú, að slökkviliðið var
þ'romið mjög skjótt á staðinn.
I nýja kerfinu eru leiðslur lagðar
inn í hverja kennslustofu og hverja
einustu skonsu og klefa. Ef eldur
kæmi upp á einhverjum stað í allri
byggingunni myndi brunakerfið
þegar virka, brunabjöllur um allan
skólann hringja og boð berast út
til slökkvistöðvarinnar, sem er
hinu megin við Tjörnina. Það hefur
verið mjög kostnaðarsamt að setja
upp þetta flókna kerfi, en þykir
eðlilegt á slfkum stað.
Bandaríska njósnaranum Soblen
hefur verið neitað um að mega
dveljast áfram á Bretlandi sem
pólitískur flóttamaður. Sama flug-
vélin sem kom með hann flytur
hann burt.
samhljóða fyrirsögn í Bergens
Arbeiderblad 28. júlí Er fullyrt
að fregn hins norska blaðs sé
byggð á „hrapallegum misskiln-
ingi“.
Vísir hefur hins vegar ör-
uggar heimildir fyrir þvf að
fregn hins norska blaðs er á
rökum reist og er ekki byggð á
misskilningi ,enda fullyrðing um
hið gagnstæða ekki frekar rök-
stutt. Er Ijósasta sönnunin fyrir
Prófessor í
Gautaborg
Dr. Jóhanni Axelssyni lífeðlis-
fræðingi í Oxford hefjr nýlega
verið boðið að gegna prófessors-
stöðu í lífeðlisfræði við há-
skólann í Gautaborg, um hálfs
árs skeið í forföllum prófessors
Fánge, sem þar hefir kennt um
hríð. Hefir Jóhann tekið boðinu.
Fyrr í sumar varði Jóhann Axels
son doktorsritgerð í lífeðlis-
færði við háskólann í Lundi við
góðan orðstír.
því, að um skort á saltsíld í
Noregi er nú að ræða, að sölt-
unartími norsku skipanna hefur
verið framlengdur til 5. október.
Ástæðan til þessa er að nokkru
sú að sfldveiðar norskra skipa
Steinbjörn Jacobsen
22 ára. vinstri útherji.
í Norðursjónum hafa gengið
illa.
Svíþjóð hefur heldur ekki
getað aflað þess síldarmagns
sem fyrirhugað var að selja til
Austur-Evrópu landanna. Og
síldarskort er ekki einungis að
finna í Noregi og Svíþjóð. Salt-
síldarskortur er og í Hollandi.
Þann 14. júlí hafði hollenzki
flotinn einungis veitt 51.126
tunnur á móts við 87.555 tunn-
ur á sama tfma í fyrra.
Mun því reynast erfitt að
bera brigður á það að um skort
á saltsíld sé að ræða í Noregi.
Guðný keppir í Istanbul
Guðný Á. Björnsdóttir, fulltrúi
Keflvfkinga í fegruðarsamkeppn-
inni í vor er farin tli Tyrklands
að taka þátt í hinni árlegu fegurð-
arsamkeppni í Istanbul.
Guðný fór til London í gær og
heldur þaðan til Barcelona með
fyrstu ferð. Þar stígur hún á
skipsfjöl, um borð í flaggskipið f
flota Onassis, lystiskipið Arkadía
og siglir með því um Miðjarðar-
hafið með viðkomu í flestum glæsi-
legustu höfnum leiðarinnar. Guðni
Þórðarson forstjóri ferðaskrif-
stofunnar Sunnu skipulagði ferða-
Iag Guðnýjar. Á skipinu verða
einnig keppinautar Guðnýjar 17
talsins.
Einar Jónsson forstjóri fegurðar-
samkeppninnar verður í dómnefnd
keppninnar í Istanbul.
Athugasemd
Vegna viðtals við mig, sem birt-
ist í Vísi í gær, óska ég vinsam-
legast að þetta verði tekið fram:
í viðtalinu segir, að enginn smit-
beri hafi fundizt, en eins og flest-
um mun kunnugt, eru allir sjúk-
lingar smitandi á meðan þeir hafa
sjúkdómseinkenni og í nokkum
tfma á eftir. Hins vegar hefur ekki
verið hægt að rekja sjúkdómsor-
sökina til svo kallaðra smitbera,
carriers, sem hafa í sér sýklahreið-
ur, án ljósra sjúkdómseinkenna,
oft árum saman, enda sjaldgæft
um sjúkdóm þennan.
í viðtalinu er enn fremur sagt,
að við rannsókn á starfsfólki verzl-
ana hafi ekkert fundist athugavert.
Framh. á bls 5.
/