Vísir - 17.08.1962, Side 5
Fimmtudagur 16. ágúst 1962.
VISIR
Mesta pe,
sögu Ban
í fyrrinótt var framkvæmt
mesta peningarán f allri sögu
Bandaríkjanna. Glæpamönnum,
sem voru vopnaðir vélbyssum
tókst að stöðva og ná á sitt vald
póstflutningabifreið er var með
peningasendingar samtals að
upphæð V/2 milljón doliara eða
um 63 milljónir króna.
Glæpamennirnir bundu tvo bíl
ar. Póstmfennirnir uggðu ekki að
sér og sem hverjir aðrir lög-
hlýðnir borgarar námu þeir stað-
ar.
•
Augnabliki síðar horfðu þeir
inn í hlaupin á tveimur vélbyss-
um. Það var þýðingarlaust fyrir
þá að reyna að grípa til skamm-
byssanna, sem þeir höfðu sér til
Póstbíl með 63 mill|. rænt
stjóra póstbifreiðarinnar og kom
ust á brott með alla póstpokana
og er ekkert meira um þá vitað.
•
Rannsókn bandarísku ríkislög
reglunnar leiðir í Ijós að stór
bófaflokkur hefur verið hér að
verki og hafði undirbúið ránið
með feikilegri nákvæmni og víð-
tækum aðgerðum.
Þetta gerðist skömmu fyrir
miðnætti á þjóðvegihum milli
Cape Cod og Boston í Massachu
setts. Póstvagninn sem var stór
brynvarin bifreið og er notuð til
að flytja peningasendingar frá
bönkum á Cape Cod ók með um
75 km hraða eftir veginum.
Skyndilega ók önnur bifreið
með miklum hraða fram úr
henni, nam staðar nokkru fyrir
framan og út úr henni steig mað
ur í Iögreglueinkennisbúningi
og veifaði til tveggja bílstjóra
póstbifreiðarinnar að nema stað-
varnar. Þeir létu hinir þægustu
afvopna sig og afhentu lykla að
flutningahólfi bifreiðarinnar.
Glæpamaðurinn í lögreglubún
ingnum tók nú við stjórn póst-
bifreiðarinnar og ók henni áfram
í ró og næði, enda hefur það nú
komið í ljós, að glæpamanna-
flokkurinn hafði undirbúið ránið
með þvf að setja lokunarvega-
skilti á alla hliðarvegi. Þeir voru
því einir og réðu öllu á þjóðveg-
inum þessa nótt.
Þeir óku póstbifreiðinni um
veginn í rúma klukkustund,
námu staðar þrisvar sinnum til
þess að flytja póstpoka yfir í
bíla sem félagar þeirra óku að
póstbifreiðinni.
Þegar þeir höfðu tæmt póst-
bílinn bundu þeir póstmennina
tvo rækilega og óku brott með
allan feng sinn.
aran /
janna
Póstmönnunum tókst með erf-
iðismunum að slíta sig úr bönd-
um og kölluðu á lögregluna. En
hún hefur ekkert fundið, sem
leitt geti hana á slóð glæpa-
mannanna. Farþegabílana, sem
glæpamennirnir notuðu hefur
hún fundið á víð og dreif í ná-
grenninu, þeim öllum höfðu bóf-
amir stolið. Engin fingraför hafa
fundizt enda vora allir bófamir
með hvíta silkihanzka á hönd-
Grunur leikur á að tveir af
tíu hættulegustu glæpamönnum
Bandaríkjanna að nafni Nuss-
baum og Wilcoxson hafi verið
þarna að verki. Sá grunur bygg-
ist á því einu, að þeir munu
ganga lausir og eru þekktir fyrir
þaðihve vel þeir hafa skipulagt
bankarán og notað við þau vél-
byssur og jafnvel handsprengj-
ur.
Síldin —
Póstbílstjórarnir
villa sér sýn.
tveir, sem létu lögreglubúning glæpamannsins
runi að Geitháisi
Á þriðjudagskvöldið kom upp eld-
ur i veitingasölunni að Geithálsi
og olli talsverðum skemmdum. Var
það mest fyrir skjót viðbrögð nær-
staddra að húsið' varð ekki alelda
og eftir stæðu rústir einar.
Veitingasala þessi er ekki í
gamla húsinu að Geithálsi heldur
skúrbyggingu niður við veginn.
Óhappið vildi til seint á þriðju-
dagskvöldið og voru nokkrir gest-
ir inni. Olíuofn stóð á miðju gólfi
og þegar minnst varði fuðraði
hann upp, valt um svo að olía rann
um allt gólf. Blossaði hún þegar
upp, og var ekki meira en svo að
viðskiptavinirnir gætu forðað sér
út. Fylltist brátt allt af reyk og
eldi. Brustu rúður f hitanum.
Nærstaddir gátu náð í vatn í á,
sem er spölkorn frá, í fötur og
tókst að ráða niðurlögum eldsins
áður en allt varð alelda. Miklar
skemmdir urðu þó. Allt sviðnaði
inni, klæðning og annað.
Slökkviliðið var kallað til hjálp-
ar fyrir tilstilli leigubíla sem höfðu
talstöðvar, en eins og fyrr segir
tókst að slökkva eldinn áður en til
kasta slökkviliðsins kæmi.
Framh. af 16. sfðu:
Löndunarbið er nú víðast hvar
á Austfjörðum, ekki þó vegna þess
að þróarpláss vanti, heldur bið
eftir að komast að löndunartækj-
um.
Engri síld hefur verið landað í
Iengri tíma á Raufarhöfn, en hald-
ið er áfram að bræða úr þróm.
Búizt er við að hráefnið þrjóti á
mánudaginn ef ekkert meira bæt-
ist við.
Eftirtalin skip fengú 500 mál og
tunnuf eða meira:
Hrönn II 500, Hvanney 500, Berg
vík 700, Freyja 600, Helgi Helgason
50, Pálína 900, Tjaldur 500, Ófeigur j
II 550, Hannes lóðs 500, Hilmir j
600, Gísli lóðs 800, Gullver 500, ;
Ásgeir 500, Fiskaskagi 750, Skipa-
skagi 700, Guðbjörg GK 650, Gull-
faxi 800, Guðmundur Þórðarson
RE 1400, Jón Guðmundsson 700,
Þorbjörg GK 550, Jón á Stapa 550,
Hringver 750, Ingiber Ólafsson 900,
Fákur 750, Helga RE 1000,' Stein-
grímur Trölli 800, Víðir SU 700,
Seley 800, Skírnir 1000, Akraborg!
1200, Sæfell 900, Sigurkarfi 1400, j
Jökull 700, Þorleifur Rögnvaldsson j
600 og Rifsnes 500.
Skemmtiferð Óðins
Á morgun efnir málfundafé-
lagið Óðinn til skemmtiferðar
upp í Borgarfjörð. Lagt verður
af stað frá Sjálfstæðishúsinu kl.
2 á laugardag, ekið um Hval-
fjörð, yfir Dragháls um Skorra-
dal, Bæjarsveit, Reykholt og í
Æfing —
Framhald af bls. 1.
í bátnum eru tvær árar, en
ekki lætur hann vel að stjórn
enda kringlóttur og ekki virðist
hann vera gangmikill.
Mynd þessi er tekin inni í bátn
um eftir að tjaldað hafði verið
yfir hann. Talið frá vinstri eru
á myndinni Ragnheiður Sigur-
grímsdóttir, Gerhard Olsen,
Laila Andrésson og Harald Snæ-
hólm.
Kjarton —
Húsafellsskóg, þar sem tjaldað
verður. Á sunnudag verður ekið
í Kalmanstungu, gengið í Surts-
helli og komið heim um Kalda-
dal og Þingvelli.
Upplýsingar í símum 33-4-88,
20-8-59 og 3-29-87. Farmiðar
verða afhentir í Valhöll í lcvöld
kl. 6-10.
Vísitasía
Framhald af bls. 16.
ar. — Hefur hann áður farið um
Barðaströnd, Norður-Þingeyjár-
sýslu, Rangárvallasýslu og Árnes-
sýslu.
í Norður-Þingeyjarprófastsdæmi
eru sex prestar og 17 kirkjur. Pró-
fastur þar er síra Friðrik A. Frið-
riksson.
í för með biskupinum er kona
hans og ritari. í dag vísiterar bisk-
upinn Ljósavatnskirkju í Vatns-
endaprestakalli.
.iiiðinei hssfði verið
Myndin sýnir veitingaskálann á Geithálsi eftir brunann. Verið er að gera við skemmdirnar.
Framhald af 16. síðu:
Kjartan í röð hinna beztu sem
hann hefur tekið.
Auk barnakvikmyndarinnar sýnir
Kjartan margar aðrar kvikmyndir
eldri sem yngri, bæði sem hann
hefur tekið héf heima og erlendis.
Meðal þeirra eru ýmsar íþrótta-
kvikmyndir svo sem af skíðalands-
mótinu á Akureyri um s.I. páska,
frá skíðamótum í Holmenkollen í
Noregi og Zakopane í Póllandi, þar
sem frægustu skíðamenn heimsins
eru meðal keppenda, knattspyrnu- j stjórn happdrættisins
keppni milli íslendinga og Norð- : ekki rétt. Trésmiðuri
manna og milli Brazilíumanna og
Svía, handknattleikskeppni F. H.
og þýzka liðsins frá Esslingen,
keppni í listhlaupi á skautum í
Noregi og frá veðreiðum á ýms-
um hestamannamótum víðs vegar
um land svo og frá heimsmóti
hestamanna í Stokkhólmi. Loks
eru svo myndir af mótum og þjóð-
hátíðum eins og 17. júní í Rvík,
skátamóti á Þingvöllum og Þjóð-
hátíð í Vestmannaeyjum.
Happdrætti Alþýðublaðsins hef-
ur beðið um leiðréttingu við frétt,
sem birtist í Vísi í fyrradag þess
eðlis, að maður einn í Hafnarfirði
hefði verið búinn að framlengja
happdrættismiða, sem bíll kom síð-
an upp á, hjá happdrættinu. Segir
að þetta sé
ekki rétt. Trésmiðurinn, sem hér
hafi átt hlút að máli, hafi fyrri
hluta ársins 1961 hætt að fram-
lengja míða þennan og hafi hann
ásamt fleiri óseldum númerum í
Hafnarfirði þá verið fluttur til að-
alumboðsins í Reykjavík. Maður-
inn hafi síðan keypt miða að nýju
í happdrættinu, en þá fengið nýtt
númer, þar sem gamli miðinn hafi
þá verið kominn í annað umboð.
Hér sé því um misskilning að
ræða.
/