Vísir - 17.08.1962, Blaðsíða 13
‘Föstudagur 17. .ágúst 1962.
Föstudagsgreinin —
Framhald af bls. 9.
t. d. algerlega undir stærð
geimskipanna komið, því stærri
sem þau eru, því meiri birgðir
geta þau borið.
Það var auðvitað fyrir löngu
viðurkennt, að Rússar komust
fram úr Bandaríkjunum í eld-
flaugnasmíði af því að þeir
tðku beint við eldflaugafram-
kvæmdum þýzku nazistanna i
stríðslok og héldu þeim síðan
linnulaust áfram, meðan Vest-
urveldin tímdu ekki að leggja
í slíkan „vígbúnað“/ á friðar-
tfmum.
En nú eru Bandaríkjamenn
langt komnir með að smíða og
fullkomna jafnvel helmingi
stærri eldflaugar en Rússar
eiga nú, eða með yfir 1000
tonna þrýstikrafti. Því hefur
svo verið talað um að Banda-
ríkjamenn séu að draga á
Rússa í geimferðakapphlaup-
inu, en engum hefur dottið í
hug, að þeir kæmust einu sinni
jafnfætis þeim fyrr en þeir eiga
að minnsta kosti jafn kraft-
miklar eldflaugar og þeir.
Næstu sporin.
Næstu mikilvægu áfangarnir
í geimferðum eru að geta stýrt
geimskipum út af sinni annars
föstu braut „farið að sigla“
eins og mætti kalla það og síð-
an að geta tengt fleiri geim-
skip saman, búið til geimstöð.
Hvorugt tókst Rússum f þess-
um síðustu ferðum. Ætlar að
verða undarlegur seinagangur
hjá þeim að framkvæma þetta,
þar sem þeir virðast hafa átt í
mörg ár nógu kraftmiklar eld-
flaugar. Því miður er svo mik-
il leynd yfir öllurp aðgerðum
Rússa, að ekki er vitað, hvaða
þröskuldur hefur komið í veg-
inn. Auðséð er af ummælum
ýmissa vestrænna vísinda-
manna, eins og prófessor Low-
ells við Jodrell Bank, að þeir
gerðu ráð fyrir þvf, að Rússar
framkvæmdu slíka „siglingu"
núna. En svo varð ekki.
Getur hugsazt að meira elds-
neyti þurfi til þess og enn
stærri eldflaugar og má þá
vera að Saturnus-eldflaugarnar
sem Bandaríkjamenn eru nú að
Sex biðu bana
i „funnufiug;i"
Frétt frá Melbourne hermir, að
rannsókn sé lokið á hinu mikla
flugslysi, sem varð i Ástralíu í
fyrradag.
í þessu flugslysi biðu bana fjórir
af beztu flugmönnum ástralska
flughersins og tveir farþegar, en
þetta var á flugsýningu og flugu
flugvélarnar, sem voru af Vampire-
gerði í hóp með reglubundnu milli-
bili og virtist allt í fullkomnu lagi
og cins rétt fyrir slysið er flugvél-
arnar skyndilega lækkuðu flugið
— og hröpuðu til jarðar með ofan-
greindum afleiðingum. Þær möl-
brotnuðu allar.
Flugmenmrnir voru í svonefndu
„tunnuflugi“, er þetta gerðist, þ.e.
flugu í hringa, eins og þegar velt
er tunnu.
koma fram með reynist heppi-
legri til þess. Vel má líka vera
að Rússar komi fram með ein-
hverjar enn öflugri eldflaugar
á næstunni.
Kapphlaupið
er dýrt.
Milli þessara tveggja stór-
velda er nú háð hart kapp-
hlaup um það hvorir verði fyrri
til að senda mann til tunglsins.
Svo einkennilega vildi til, að
New York Times og önnur
bandarísk blöð höfðu birt
nokkrum dögum áður en Rúss-
ar skutu sínum tveimur mönn-
um á loft, ýtarlegar frásagnir
af svokallaðri átælun Appollo.
I henni er stefnt að því að
koma fyrstu bandarísku geim-
förunum til tunglsins innan
fimm ára.
Kannski geta Rússar enn
orðið á undan, en þó er svo
mikið víst, að þegar Banda-
ríkjamenn taka hinar voldugu
Saturnus-eldflaugar sínar f
notkun til geimflugs innan tíð-
ar, hafa þeir komizt langt til
jafns við Rússa, því að ekki
virðist hafa verið um neinar
stórmerkar tæknilegar framfar
ir í þessum síðustu geimskot-
um Rússa að ræða, þó vísinda-
legur árangur af þeim geti kom
ið að gagni.
1 kapphlaupinu mikla hafa
Bandaríkjamenn í hyggju að
eyða á næstu 10 árum um 30
milljörðum dollara, þ. e 1.20.-
000 milljónum króna. Mikið
skal til mikils vinna.
Hvarflar það oft að manni,
að skynsamlegra væri fyrir
þessi stórveldi að líta sér nær,
halda sér við jörðina og nota
þessar gríðarlegu fjárhæðir til
að bæta lífsafkomu og aðbúð
fólksins á jörðu niðri. Hér niðri
á móður jörð er nóg verkefni
að vinna, erfiðleikar og fátækt
í öllum heimsálfum.
En það er sagt, að vísindin
verði að hafa sinn framgang.
Það verður að kanna himin-
geiminn. Það verður að sigla
til nærri heima.
Þorsteinn Thorarensen.
Tveir sinsasf
Tvö minni háttar slys urðu í
Reykjavík í gærdag.
Skipverji á m.s. Heklu datt í
skipinu, þar sem það lá í Reykja-
víkurhöfn, og meiddist hann eitt-
hvað á höfði, en ekki alvarlega að
þvi að talið var.
Hitt slysið varð við innganginn
að Búnaðarbankanum í Austur-
stræti. Fimmtán ára piltur, Egg-
ert Geirsson, Grettisgötu 44, var
að aðstoða verkamenn sem voru
við vinnu uppi á skyggninu fyrir
ofan innganginn í bankann. En
Eggert varð fótaskortur og hrap-
aði niður. Hann meiddist eitthvað
og var fluttur í slysavarðstofuna.
► Árekstur varð milli bifreiðar og
járnbrautarlestar í vikunni við Dax
í Suðvestur-Frakklandi. Fjórir menn
biðu bana, en þrír særðust.
Flakarar
ÓSKAST STRAX.
FROST HF.
Hafnarfirði — Sími 50165.
VISIR
H9
skarar framur
Sí-slétt efni —
strauning óþörf
Sportskyrtan
Frábærlega falleg
og vönduð skyrta að
allri gerð
Castro vaatar sápu
Nú má heita, að alger skortur
sé á sápu á Kúbu — og raunar
ér þar skortur á mörgum öðrum
nauðsynjum. (
Kommúnistablaðið Hoy hefir
ritað nokkuð um þetta og bent
mönnum á, að ekki geri til, þótt
fullfrískt fólk geti ekki þvegið
sér með sápu daglega. Jafnframt
hefir eitt af skáldum flokksins
verið látinn semja eins konar stríð-
söng, sem fjallar um, að í rauninni
sé sápuskortur til góðs!
ítalska stjórnin hefir ákveðið að
þjóðnýta öll raforkuver í landinu.
Miklar deilur hafa verið um þetta
mál innan ríkisstjórnar Italíu, en
þó ekki svo heitar, að hætta væri
á að stjórnin klofnaði eða missti
þingfylgi. Að endingu var svo sam-
þykkt á fundi í gær, að ríkið kaupi
öll raforkuver, sem eru í einka-
eign, samkvæmt mati.
Matsveina- og Veit-
ingabjónaskólinn
Matsveina- og veitingaþjónaskólinn tekur til
starfa í byrjun september. Innritun fer fram
í skrifstofu skólans 18. og 20. þ. m. kl. 3—5
síðdegis.
í októberbyrjun hefst 8 vikna kvöldnámskeið
fyrir fiskiskipa-matsveina. Nánari upplýsing-
ar hjá skólastjóra í síma 19675 og 17489.
i Skólastjóri.
T R E
<x>
cr>
ers
LAUGAVEGI 166
VERZLUNARSÍMI 22229
GLÆSILEG HÚSPRÝÐI
ViSS-sófasett
VÖNDUÐ OG STÍLHREIN
FJÖLBREYTT ÁKLÆÐI
PLAST-sófaseff
EINKAFRAMLEIÐSLA
FRA VlÐI
HENTUG OG ÓDÝR