Tölvumál - 01.10.1992, Qupperneq 9

Tölvumál - 01.10.1992, Qupperneq 9
Október 1992 ritstýra skýrslu starfshópsins. Skýrslan kom út árið 1986 og heitir Tölvu og upplýsingatœkni á Islandi.[ 12] I skýrslunni segir svo: "Nefndin leggur til að upplýsingatækni verði efld á Islandi og hún hagnýtt betur í þágu atvinnulífsins. Veitt verði sérstök fjárveiting til þess að byggja upp upplýsingaiðnað - að jafnaði að upphæð 65 milj. kr á ári í 4 ár." Tillaga var gerð um skiptingu framlagsins sem sjá má hér til hliðar. Það er skemmst frá því að segja að tillögur þessar fengu lítinn hljómgrunn. Hvorki Rannsókna- ráð né ríkisstjórn fylgdi til- lögunum eftir. Engu að síður hefur ýmislegt þokast í átt að tillögunum á þeim tíma sem liðinn er. Tímabilið 1987 til 1992 Árið 1987 var Staðlaráð íslands (STRÍ) stofnað til að sjá um stjórnun og skipulagningu stöðl- unar á Islandi. Ráðið starfar á vegum Iðntæknistofnunar en nú liggur fyrir frumvarp um að ráðið starfi sem sjálfstæð stofnun.flO] Á vegum STRl eru nú (í september 1992) starfandi tvö fagráð og fjórar fagstjórnir. Fagráðin eru: Byggingastaðla- ráð og Fagráð í upplýsingatækni (áður UT-staðlaráð). Fagstjómir starfa á eftirfarandi sviðum: Raftækni, gæða- stjórnun, flutningatækni og véltækni. Árið 1988 gekk STRÍ formlega í Evrópska staðlasambandið CEN og rafstaðlasambandið CENE- LEC og snýst starfsemi STRÍ og staðladeildar Iðntæknistofnunar að verulegu leyti um þessa aðild. íslendingar eru skuldbundnir til að taka evrópsku staðlana upp sem íslenska staðla. Nú hafa yfir eitt hundrað staðlar á sviði upplýsingatækni öðlast gildi sem íslenskir staðlar. Mun stöðlum þessum væntanlega fjölga ört á næstu árum því aukin stöðlun á sviði upplýsingatækni er meðal yfirlýstra markmiða í evrópu- samstarfinu. Á vegum STRÍ starfa nú átta manns. Jóhannes Þorsteinsson veitir starfinu forstöðu. Annar starfsmaður ráðsins, Þorvarður Kári Ólafsson, starfar gagngert á sviði upplýsingatækni. Hann hóf þetta starf árið 1988. Fyrsta árið starfaði Þorvarður á vegum UT- staðlaráðs og var með starfs- aðstöðu hjá Reiknistofnun Há- skólans. Þorbjörn Karlsson, formaður STRÍ, ritar svo um breytt og aukið Miljónir króna árlega Tillögur: 13 Uppbygging þekkingar á sviði upplýsingatækni: Fjölgað kennarastöðum við Háskóla íslands um eina á ári. Veitt fé til styrkja og kynnisferða. Símenntun efld. 26 Efling íslensks tölvuiðnaðar: Þróunarstyrkir og áhættulán. Könnun á byggingu tæknigarða eða iðngarða í tengslum við Háskóla Islands. Skipulag upplýsingamála: Sett verði á fót opinbert tölvuráð. Stefnt verði að því að opinberar stofnanir og fyrirtæki bjóði út vinnu við þróun og gerð hugbúnaðar. Efla beri samvinnu við erlenda aðila einkum norræna. 13 Upplýsingaveitur og upplýsingaþjónusta: Komið verði á fót tölvuneti rannsóknastofnana. Hafnar verði tilraunir með upplýsingaveitur og gagnabanka. 6 Gæða og stöðlunarmiðstöð: Háskóla Islands og Iðntæknistofnun verði falið að setja á laggirnar starfsemi í því skyni að taka út og staðla hugbúnað og vélbúnað. Unnið verði að gerð staðla og þeir kynntir. - Persónuvernd: Skipaður verði sérstakur eftirlits- aðili til þess að fylgjast með lögum um persónu- vernd. 7 Félagslegar rannsóknir: Styrkt verði verkefni þar sent áhrif upplýsingatækninnar á atvinnumál og þróun þjóðlífs eru rannsökuð 9 - Töivumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.