Tölvumál - 01.10.1992, Side 15

Tölvumál - 01.10.1992, Side 15
Október 1992 Er stórtölvan dauð? Bjarni Grétar Olafsson, framkvænrdastjóri vinnslusviðs Reiknistofu bankanna Byggt á erindi sem flntt var á ráðstefnu SI um sniðsmœkkun, 9. apríl s.l. í upphafi langar ntig að fara nokkrum orðum um það um- hverfi sem ég hrærist í daglega, því það skýrir vonandi eitthvað fyrir ykkur frá hvaða sjónarhorni ég sé spurninguna um snið- smækkun (downsizing). Reiknistofa bankanna rekur í dag stórtölvu af gerðinni IBM 3090, módel 200J. Vél þessi hefur 128 Megabæta meginminni en auk þess jafnstórt nærminni (expand- ed storage). Afköst eru gjarnan talin urn 45 stórtölvu-"mips" og eru að jafnaði keyrðar tvær til þrjár sýndarvélar samtímis. Vél þessi telst líklega meðalstór stór- tölva. Auk þessarar vélar rekur Reiknistofan einnig verkefni á IBM 9370 tölvu er telst lil stærri miðlungstölva, á System/36 vél sem einnig telst til miðlungstölva og á einkatölvum. A stórtölvu Reiknistofunnar eru helstu verk- efni íslenska bankakerfisins keyrð, runuvinnsla jafnt sem sí- vinnsla. Til að fá hugntynd um stærð kerfisins má nefna að við- skiptavinir með lykilorð eru nú tæplega 3700, diskarými er 166 gígabæti, meðalfærslufjöldi beinlínufærslna á dag er unr háll' milljón færslnaeða um 20 færslur á sekúndu á opnunartíma banka og mest álag er að jafnaði fyrsta dag mánaðar og er álag þá allt að 35 færslur á sekúndu að jafnaði á opnunartíma banka og spari- sjóða. Reiknistofan hefur vaxið ört á untliðnum árum og hel’ur vöxtur- inn numið tugunr prósenta á milli ára í allmörg ár en er ekki eins ör nú og áður var. En meðaltöl segja ekki allt því breytingar á þjóðfélagsástandi og almennri hegðan hefur einnig mikil áhrif á vöxt og þarfir. Sem dæmi, er meðalaukning beinlínufærslna á milli ára um 20 prósent um leið og vöxtur stærsta dags mánaðar er um 30 prósent á milli áranna 1991 og 1992 og er það svipað og árin þar á undan. Eins og þið getið ímyndað ykkurhefurþaðþví verið með reglu- legu millibili hlut- skipti okkar að leggja til, að vélar verði stækkaðar og afl aukið. Ef við tökum mið af 45 "niipsa" vél og tölum um 20 lil 30 prósent vöxt á ári þá erum við að tala um kaup á 9 til 13 "mipsum" á ári eða semnemurminnstu gerð stórtölva í dag eða véla á borð við AS400 9406-D80 eða 3 til 4 stykki af DEC MicroVAX 3900 - og það bara á næsta ári haldi sami vöxtur áfram. Auðvitað verða viðbrögðin eft- ir því. Fyrst er að spurt hversu spár séu ábyggilegar, þá næst að kanna hvað olli vexlinum á síð- astliðnu tímabili og Itvað muni alls ekki endurtaka sig á næsta ári. Þar næst mat á því hvað nýtt gæti bæst við í næstu framtíð og þrátt fyrir reynslu síðustu ára er síðan reynt að gæða spárnar varfærni. Samhliða er farið yfir það eina ferðina enn hvort gera rnegi einstakar færslur hrað- virkari, eða minnka þær einfald- lega, kannað hvort minnka megi yfirbyggingu og reynt að straum- línulaga verkefnin enn frekar. Þetta gefur ævinlega eitthvað en ef vöxturinn er stöðugur mun það heldur ekki duga. Það er nefnilega óumflýjanlegt að tak- markaðar lindir þrjóta þegar á þær er gengið. Þarnæst kemur umræðan um að minnka álagið til að fresta töku nýrrar eða stærri vélar annað hvort með því að hætta að nota einstök tölvukerfi eða færslur og síðast en ekki síst hvort finna megi ódýrari vélar eða leiðir til að gera það sarna. Kannist þið ekki við allt þetta? Og ef þið haldið að bankar afgreiði kaup á vélbúnaði með meiri léttúð en þið, þá er það misskilningur. Eins og ég hef vikið að áður er færslumagn trúlega nteira en þekkist í öðrunt tölvukerfum hér- lendis. En það sem meira er, þessar færslur eru hluti margra REIKNISTOFA BANKANNA Stórtölva: IBM 3090/200J (afköstuþb 45 "MIPS") - 128 Mb meginminni - 128 Mb nærminni Diskar: Rýmd um 166 Gb. Millitölvur: IBM System/36-B24 IBM 9370/60 - 16 Mb minni (afköst uþb 1,2 "MIPS") Viðskiptavinir: uþb. 3.700 lykilorð rúml. 4.800 tæki 15 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.