Tölvumál - 01.10.1992, Blaðsíða 17
Október 1992
REIKNISTOFA BANKANNA
Kjarnaverkefni:
Forritafjöldi 3.284
Línufjöldi 998.567
Fjöldi mannmánaða 2.717
Alls:
Forritafjöldi 5.795
Línufjöldi 1.597.218
Fjöldi mannmánaða 3.816
samtengdra kerfa þar sem sama
færsla hefur áhrif í fleiri en einu
kerfi og hefur oftast áhrif á fleiri
en einn banka eða sparisjóð sam-
tímis. Þannig hefur tékki sem er
innleystur í banka áhrif á stöðu
þess útibús, stöðu reikningsbanka
auk þess að breyta bókhaldinu í
Seðlabankanum. A sama hátt
brey tir greiðsla á skuldabréfi ekki
bara skuldabréfaverkefni heldur
einnig tékkareikningsverkefninu
og bókhaldinu. Þannig er þjón-
usta beinlínukerfisins og runu-
vinnslukerfisins samofin og verð-
ur ekki auðveldlega sundur skilin.
Þessi kerfi hafa orðið til á síðustu
17 - 18 árum og liggur fleiri
hundruð eða jafnvel þúsunda
mannára vinna í þeim, í fram-
setningu óska, í kerfissetningu, í
forritun, í kerfisprófum, í endur-
rnati, í samhæfingu og í sam-
prófunum og ég veit ekki hvað.
Og þessi kerfispróf mánuðum
saman framkvæmum við því við
þekkjum það mæta vel, að þið
munuð líða jafnvel þjóðskránni
að skrifa nafnið ykkar vitlaust,
en þið munuð aldrei líða bank-
anum ykkar að hafa ranga stöðu
á sparireikningnum ykkar! Kerfi
Reiknistofunna eru því bæði stór
og dýr og því verður ekkert
hlaupið eftir nýjustu lísku hverju
sinni í vélum eða hugbúnaði.
En' það er nú orðið tímabært að
ég fari að sinna spurningunni: Er
stórtölvan dauð?
Samkvæmt tölum
frá Computer Eco-
nomics yfir 50
helstu tölvukerfitil
almennra nota seld
fram til júlímánað-
ar 1991 í Banda-
ríkjunum eru 9 af
þeim lOsöluhæstu,
að verðmæt til, frá
IBM. Aðeins einn
annar framleið-
andi kemst þar á
blað en það er HP með 9000-
8xx sem selt hefur 11.900 kerfi.
Samkvæmt sörnu heimildum hafa
verið seld 90.000 System/36-
kerfi, 14.700 AS/400/30-45 kerfi
og 10.800 AS/400/50-70 kerfi.
Og munið, að ég er enn að tala
um að söluverðmæti. Öll hin
kerfin 7 eru af þeirri tegund sem
hefðbundið eru kölluð stór-
tölvuumhverfi. Salan á IBM
3090/óxx gerðinni nam þá rúm-
lega 6 milljörðum Bandaríkja-
dala. Samanlagt nam sala allra
kerfanna í stórtölvuumhverfinu
rúmum 27 milljörðum Banda-
ríkjadala og var fjöldi þeirra unr
10.000. Talið er, að salan í
Bandaríkjunum sé um helmingur
heimssölunnar, en ég sel það
ekki dýrara en ég keypti það.
Þessi kerfi eru fyrst og fremst
fram komin á síðustu 5 árum.
Þau eru hins vegar afleiðing
þróunar í rúma tvo áratugi.
Stórtölvuumhverfinu er fyrst og
fremst skipt í 3 tímaskeið. Fyrsta
tímabilið er nefnt 360/370 tíma-
bilið eftir samnefndum vélum og
ríkir það frá miðjum 7. ára-
tugnum og fram á seinni hluta 8.
áratugarins. Seinni hluta 8. ára-
tugarins kemur 3000 tímbilið
með 3033, 3081 og 4341 kerf-
unum. Upp úr 1985 kemur 3090
vélin og síðar 9370 kerfið. Nú
er að taka við ES/9000. Hvert
tímaskeið hefur einnig haft sér-
einkenni varðandi stýrikerfi.
Fyrsta skeiðið getum við nefnt
DOS/OS, þá VS stýrikerfið, þar
næst XA og nú ESA eða hvað?
Hvert skeið hefur einnig átt sér
hvata, sem kallað hefur á hina
nýju tækni: Fyrst var það al-
menn tölvuvæðing. Þá var það
beinlínuvæðingin fyrir annað
skeiðið og að lokum almenn
netvæðing fyrir það þriðja. Og
hvað með næsta skeið? Almennt
er talið, að helsti hvati þess verði
rödd og mynd. Eins og tæknin er
í dag þarf stórtölvur til rekstrar
slíkra kerfa.
Það er ekki óalgengt, að nýjungar
hafi fyrst verið reyndar í milli-
stóru umhverfi. Það er gert þar
vegna þess að áhætta við prófanir
eru minni þar en til dæmis í stórum
bönkum eða alþjóðlegum tölvu-
netum. En þá fyrst vinna þessar
nýjungar sér sess þegar þær eru
teknar upp í stórtölvuumhverfið.
Takið eftir að ég á ekki við að
það þurfi endilega að keyra það
ástórtölvum! Stórtölvuumhverf-
ið er nefnilega meira en vélar.
Það eru hefðir, aðferðir og
viðhorf!
Eitt eiga þessi stórtölvukerfi
sameiginlegt, og það er að þau
eru sérkerfi framleiðanda. Og í
dag er það skammaryrði! Allt á
að vera opið. En áður en við
afgreiðunr sérkerfi sem skammar-
yrði eitt sér þá skulum við ekki
gleyrna því að langflest tölvukerfi
sem eru í gangi í veröldinni í dag
eru sérkerfi. Auðvitað veit ég
að til eru stofnanir og fyrirtæki
sem vilja setja staðla og munu
gera það, en haldið þið að fái
þessi framleiðendur véla og bún-
aðar góða hugmynd sem hægt er
að stórgræða á, að það skipti þá
einhverju máli hvort það er innan
staðals eða ekki? Það eina sem
skiptir máli er að ná til viðskipta-
vinarins og skítt með alla staðla!
17 - Tölvumál