Tölvumál - 01.10.1992, Page 20

Tölvumál - 01.10.1992, Page 20
Október 1992 Kostnaður við vinnustöðvar / einmenningstölvur 1. Vélbúnaður 2. Viðhald 3. Hugbúnaður 4. Prentari og/eða staðarnet Fjármagnskostnaður Dulbúinn kostnaður notenda en ef miðað er við 30, 60, 110 og 200 notendur myndi opið UNIX-kerfi kosta frá £2.000 og upp í £2.666 á notanda miðað við sömu forsendur og áður, AS/. 400 kerfi myndi kosta £2.333 - £2.750 ogDECVAX-kerfi £2.417 - £3.300. Fjöldi notenda er ákvarðandi um það hver kostur- inn er ódýrastur. Allar þessar tölur eru hafðar eltir hresku ráðgjafafyrirtækunum Xephon og IDEAS Intenational og eru miðaðar við okóber 1991. Vel getur verið að finna megi hagstæðari viðmiðanir hérlendis og hvet ég alla til að skoða það af gaumgæfni. UNIX kemur svona hagstætt út nú aðallega vegna lágs kostnaðar við hugbúnað. Þar er kostnaður- inn talinn um 8% af vélarverði en 4 - 16% í AS/400 umhverfi og 20 - 34% í DEC umhverfi. Það er þó almennt álitið að verð á UNIX hugbúnaði muni vaxa stórlega á næstu árum. Kostnaðurí stórtölvuumhverfi er eftir sömu heimildum og á sömu forsendum talinn geta verið £2.133 - £2.709 eftir fjölda not- enda á kerfi og eftir því hvernig semdist við IBM eða aðra véla- sala. í Bretlandi er ekki til not- hæft verðlistaverð fyrir stór- tölvur. Samið er í hverju tilfelli. Það gefst enginn tími hér til að fara ítarlegar í þessar tölur. Vafa- laust er fjöldi manna hér inni sem tekur þessar tölur með fyrirvara og það er bara gott. En þær duga mér - í bili - til að setja fyrirvara við það, að sniðsmækkun þurfi endilega að þýða sparnað. Svona tölur eru heldur ekki langlífar. I dag, eða í versta falli á morgun mun einhver verða lægri og daginn þar á eftir mun einhver bjóða eitthvað nýtt sem enn gæti breytt þessari mynd. Framtíðin? En reynum að spá í framtíðina. Spádómar af þessu taginu eru þannig að allir mega spá en eng- inn reiknar með að spádómarnir standist. Byrjum á vélbúnaði. Þar verður áfram stórtölvuumhverfi og þar verða áfram einmenningtölvur og allt þar á milli. Fáir spá því, að frekari verðlækkanir verði á einmenningsvélum. Nú hafa menn nálgast svo þau mörk, að ekki borgi sig lengur að selja og því verður áherslan frekar á getu, gæði og þjónustu frekar en að um frekari lækkun verði að ræða. Takið mið af hljómflutnings- tækjum. Þar hefur verðið jafnað sig og nú slást menn um útfærslur frekar en verð. Við sjáum, að hugbúnaður stækkar og þyngist og nú þarf kröftugri örgjörva og meira minni, stærri diska og betri grafík og því mun verðið haldast ogjafnvel stíga. Ekkieróalgengt, að því fleiri einmenningstölvur senr settareru í fyrirtæki því meira vaxi notkun miðtölva. Megin- ástæða þess er, að þrátt fyrir kosti þess að vera sjálfs sín herra í gagnavinnslumálum þáerenginn eyland og kostir gagnamiðlunar verða mönnum augljósari eftir því sem þeir vinna meira á tölvuna sína. Næsta kynslóð stórtölva er íburðarliðnum. Ekki er sjáanlegt að miklar breytingar verði á afköst - verð hlutfallinu. Tökum þá næst hugbúnað. Talið er, að í framtíðinni, þ.e. innan næstu fimrn ára, muni verð á hugbúnaði allt að tvöfaldast. Eitthvað mun þetta verða mis- munandi eftir gerð hugbúnaðar. Þó er talið, að þetta eigi ekki síst við um UNIX-hugbúnað. Viðhald véla mun fara vaxandi sem hlutfall af verði. Onnur þjónusta mun einnig verða dýrari sem hlutfall af verði. Einn þáttur hefur ekki verið nefndur hér fyrr og það er dulinn kostnaður. Eg ætla að nefna hér nokkra þætti en læt ykkur eftir að meta þýðingu þeirra í heildar- kostnaði: - Talið er, að starfsmaður sem fær einkatölvu noti ekki Samanburöur á kostnaði Kostnaður á notanda á 5 árum: Einmenningstölvur £2.900 - £8.000 Meðalstórar tölvur UNIX £2.000 - £2.666 AS/400 £2.333 - £2.750 DEC £2.417 - £3.300 Stórtölvur £2.133 . £2.709 20 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.