Tölvumál - 01.10.1992, Side 21

Tölvumál - 01.10.1992, Side 21
Október 1992 minna en 5% af vinnutíma til eðlilegs viðhalds og umsjónar með tölvunni sinni. Það gæti þýttfyrir lOOmannafyrirtæki, að allt í einu hefði bæst við kostnaður sem næmi launum 5 manna. - Erfiðara eða jafnvel ómögulegt er að samnýta tiltæk afköst einkatölva og getur slíkt leitt til frekar fjárfestingar. MIPS geta verið þar mörg en eru afskaplega illa nýtt. - Oft gleymist, að þótt bein- línuvinnslan sé aðalákvörð- unarþáttur í vélakaupum í dag þá er enn unnin allmikil runu- vinnsla og verður svo áfram. Oft fylgir þá annaðhvort kostnaður við keyrslur á kvöldin og nóttunni eða stærri vélar til að afgreiða slíkar keyrslur á dagtíma. - Hrakvirði smátölva er lítið eða ekkert á sama tíma sem enn eru verðmæti í stórtölvum að 3 til 4 árum liðnum. Ýmislegt fleira mætti tína hér til en ég læt hér staðar numið. Algengar fullyrðingar Það er nauðsynlegt, að fara nokkrum orðum um ýmsar al- hæfingar sem oft heyrast: Við sniðsmœkkun minnkar vélbúnaðarkostnaður. - það þarf ekki að vera rétt. Við sniðsmækkun lœkkar hugbúnaðarkostnaður. - Gæti verið í augnablikinu en er að breytast. Fœkkun starfsfólks fylgir sniðsmækkun. - Sennilega rétt að fækkun verður í tölvumiðstöð en í þess stað stórvex tími sá sem notendur eyða í tölvuvinnslu og jafnvel fjölgar fólki þar. Hraðari þróun verkefna ogfleiri pakkar á markaðnum. - Má vera rétt en breytist ört auk þess sem flestar stórar stofnanir og fyrirtæki vilja skrifa sín eigin kerfi þó ekki væri nema vegna samkeppni. Sveigjanleikifylgir sniðsmœkkun. - Stundum rétt - stundum rangt. Þúsundir eru að sniðsmækka. - Rangt. Könnun XEPHON frá fjúlf sl.[l991/ristj.] Innanvið 5% stórtölvunotenda voru þá eða höfðu áform um að sniðsmækka eitthvað eða öll verkefni sín. Þeir sem voru að sniðsmækka voru fyrirtæki sem af öðrum ástæðum voru einfaldlega að dragast saman. Einmenningstölvur auka afköst og framlegð. - Rangt. Bandarísk könnun á þjónustufyrirtækjum sýndi að tvöföldun tölvuafls á skrif- borði í Bandaríkjunum gaf aðeins 0,2% aukna framleiðni á ári. Japan og- Þýskaland höfðu lægstu fjárfestingu á tölvuafli á skrifborð af "iðn- ríkjunum" á sama tíma með framleiðniaukningu sem þið þekkið. Niöurlag Ég byrjaði á að segja frá Reikni- stofunni og eins ég sagði áður er enn vöxtur í færslufjölda þar. Þessi vöxtur ásamt meiri kröfum um stöðugt vinnuumhverfi og góðan svartíma gerir stöðugt kröfur til aukins vélbúnaðar. En Reiknistofan eins og allir aðrir í harðnandi samkeppni leitar leiða til að veita megi fyrrgreinda þjónustu eins ódýrt og hægt er - burtséð frá því hverjar vélarnar verða. Við vitum, að hægt er að slá á færslufjöldann með því að taka upp þjónustugjöld í banka- kerfinu og ef til vill verður það gert. En Reiknistofan mun í fram- tíðinni sem hingað til skoða allar leiðir til að finna hverju verkefni það rétta umhverfi sem gefur mesta hagkvæmni. Stórar vélar eða litlar vélar eru okkur ekki trúaratriði og því verðum við líka að taka varlega öllum þeim sem telja frelsunina eingöngu í smærri vélurn. Engar almennar forsendur réttlæta slíkt í dag og ekki eru líkur á því að það verði réttlætt á fjárhagslegum forsendum á næstunni - miðað við verðlag og þann meðalvöxt sem verið hefur síðastliðin ár. En það er líka annar flötur á þessu máli. Þið kunnið að vilja minnka við ykkur og þá gerið þið það líklega á öllum sviðum, - líka á tölvusviðinu og ef þið viljið kalla það sniðsmækkun frekar en samdrátt þá er ykkur það frjálst. En að lokum: í Bretlandi hefur verið kreppa nokkur undanfarin ár og þar hafa fyrirtæki leitað leiða lil að bregðast við því. Ein lausnin var að keyra verkefnin sín hjá öðrum og kölluðu menn það "outsourcing" fyrir tveimur árum - nú heitir það "facility management" eða aðstöðu- stjórnun. Menn töluðu urn "downsizing"(sniðsmækkun) eða samdrátt fyrir tveimur árum - nú heitir það "rigthsizing" eða aðlögun. Svona breytist yfir- bragð hugmynda eftir því sem reynslan verður meiri. Stórtölvu- umhverfið á Islandi hefur verið helsta "facility management" hér- lendis í áratugi og hefur stundað "rightsizing" í mörg ár. Svona erum við á undan tímanum! Stórtölvan er lifandi og ekkert sem bendir til annars en að hún lifi og muni lifa áfram góðu lífi! 21 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.