Tölvumál - 01.10.1992, Qupperneq 23

Tölvumál - 01.10.1992, Qupperneq 23
Október 1992 eru til trafala fyrir þá sem kunna að nreta dýrar lausnir. Þegar búa þarf lil hugbúnað senr er eitthvað meira en nokkrar skjámyndir þá eru góðar líkur á að venjulegum rneðal TölvuJóni sem á að skrifa hugbúnaðinn takist að klára 90 - 99% af verkinu á viðunandi tíma ef hann gerir eins og mörgurn finnst best: tala lauslega við notendur og byrja svo að forrita. Síðustu 1-10% taka svo oft á tíðurn mun lengri tíma en fyrri hlutinn! Þessar "frjálsu" aðferðir eru ótrúlega lífseigar þó málsvarar þeirra hafi ekki hátt um skoðanir sínar og leikur enginn vafi á að þær eru ávísun á dýrari lausnir. 5. Láttu tölvudeildina þína aðeins vinna þau verkefni sem hún hefur litlar eða engar forsendur til að vinna Ef tölvudeildin hjá þér er sterk í ákveðinni tegund verkefna t.d. bókhaldsverkefnum þá er um að gera að láta hugbúnaðarhús vinna slík verkefni fyrir þig en láta tölvudeildina ávallt vinna þau verkefni sem hún hefur litlar eða engar forsendur til að vinna. Undanfarin ár höfum við staðið frammi fyrirsamdrætti ogkröfum um lækkun útgjalda til tölvumála á sarna tíma og ætlast er til að tölvudeildir skili af sér nýjum tölvukerfumfljóttog vel. Þettaer ekkert séríslenskt fyrirbrigði - síður en svo. Vegna þessa hefur athygli manna m.a. beinst að áðurnefndum "Case-tólum" og því sem á ensku er nefnt "outsourcing". I örstuttu máli þá telja menn sig spara mikla fjármuni og stytta þróunartíma hugbúnaðar með því að skoða fyrir hvert verkefni sem vinna þarf, hvort heppilegt sé að láta tölvufólk fyrirtækisins vinna verkefnið eða fá til þess tiltekið hugbúnaðarfyrirtæki með sér- þekkingu eða jafnvel bjóða verkið út. Sé verkefnið innan þess ramrna sent kalla mætti "sterkuhliðartölvudeildarinnar!" þá beri að láta hana vinna verkið, ef svo er ekki þá sé trúlega mun ódýrara að láta hugbúnaðarhús sem hefði þessa sérþekkingu um verkið. Þessi umræða hefur breytt stöðu rnargra tölvudeilda þannig að þeirra meginverkefni er að móta og framfylgja stefnu fyrirtækisins í tölvumálum og skrifa einföldustu tölvukerfin en öll flókin kerfi eru keypt tilbúin eða unnin utan fyrirtækisins. Vafalaust eru mörg fyrirtæki að þróa hugbúnað í dag sem þau hefðu getað fengið mun ódýrari ef þau hefður keypt stöðluð kerfi eða látið hugbúnaðarhús vinna fyrir sig. Þetta er þó ekki einfalt hér á okkar litla markaði því rnörg fyrirtæki telja sig hafa keypt kerfi frá íslenskum hugbúnaðarhúsum allt of dýru verði. 6. Skiptu þér sem minnst af því hvaöa ákvæði og varnaglar eru í samningum Ekki skal gert lítið úr þeiin möguleikum sem við höfum til þess að búa til dýran hugbúnað innan okkar eigin lyrirtækja en pottþéttasta leiðin er sú að gera opinn samning við hugbúnaðar- hús sem uppfyllir eftirtalin skilyrði: - Ekkert mark tekið á hinni ýtarlegu handbók RUT- nefndarinnar "Upplýsinga- kerfi ríkisstofnana - mat á valkostum" ásamt með- fylgjandi ÍST 32 forstaðli. - Verkið unnið í tímavinnu - ekki fast verðtilboð. - Kerfislýsing óljós og breytist stöðugt. - Engin skilyrði sett um menntun, þjálfun eða reynslu þeirra senr vinna verkið hjá hugbún- aðarhúsinu. - Afhendingartími sveigjanlegur og engin refsiákvæði. - Eignar- og söluréttur óljós. - Veldu fólk, frá þínu fyrirtæki, í verkefnið sem hefur ekkert þarfara að gera og gegnir örugglega ekki lykilhlutverki né hefur yfirsýn yfir vanda- málin sem leysa þarf. - Láttu kerfið leysa öll vandamál og reiknisdæmi sem upp geta komið. 7. Vinnum aö því aö varanlegur skortur veröi á hugbúnaðar- fólki Það tryggir að hugbúnaður verður áfram dýr því þá eigum við auðveldara nteð að krefjast hæm launa. Einnig veldurskortur á hugbúnaðarfólki örari til- færslum milli vinnustaða og þar með auknum kostnaði við menntun starfsfólks. Svo getur viðvarandi skortur á fagfólki orðið lil þess að einstakir starfsmenn sjái ekki þörfina á því að leggja sig frant vegna þess að þeir vita hversu erfitt er að fá hæft fólk í vinnu. Niðurstaða: Hugbúnaður er dýr af því að flest þau ráð sem nefnd eru hér að framan eru á allra vitorði - og eftir þeim er farið. 23 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.