Tölvumál - 01.10.1992, Blaðsíða 25
Október 1992
Leiðbeinandi: Oddur Benedikts-
son, prófessor.
Tími og verð: 16., 17. og 19. nóv.
kl. 08:30-12:30. Kr. 14.000.
UNIX FRAMHALDS-
NÁMSKEIÐ
Þátttakendur: Námskeiðið er
ætlað þeim sem hafa nokkra
reynslu af Unix-stýrikerfinu.
Forkröfur er þær að þátttakendur
hafi áður farið á "Unix fyrir nýja
notendur" eða hafi sambærilega
reynslu.
Markmið: Markntiðið er að þátt-
takendur geti nrótað vinnu-
umhverfi sitt í Unix-tölvu.
Efni: Ætlast er lil að þátttakendur
kunni frumatriði Unix-stýri-
kerfisins. Farið verður í með-
höndlun textaskráa, uppsetningu
vinnuumhverfis, einfalda skelja-
forritun og tölvusamskipti.
Leiðbeinandi: Helgi Þórsson,töl-
fræðingur hjá Reiknistofnun H.í.
Tími og verð: 23.,24. og 26. nóv.
kl. 8:30-12:00. Kr. 14.000.
TAUGANET OG LOÐIN
KERFI - “Neutral Network
and Fuzzy Systems"
Þátttakendur: Námskeiðið er
einkurn ætlað þeim sem vinna
að aðgreiningu á gagnasöfnum,
t.d. fiskifræðinga, veður-
fræðinga, tryggingar- og tölvu-
fræðinga og verkfræðinga sem
eru í gagnavinnslu.
Efni: Markmið námskeiðsins er
að vekja athygli raunvísinda-
manna og verkfræðinga á nýrri
tölvugreindaraðgerð sem nefnist
"Fuzzy Systems" eða loðin kerfi.
Leiðbeinendur: Umsjónarmaður
er Valdimar K. Jónsson,
prófessor. Aðalkennari erdr. Rod
Taber frá Alabama. Einnig verða
um þrír íslenskir leiðbeinendur
við æfingar.
Tími og verð: 23. og 25. nóv. kl.
08:30-16:00. Kr. 28.000.
Desember
GERÐ FYRIRSPURNA í
TÖLVUGAGNAGRUNNA:
SQL-fyrirspurnamálið fyrir
tölvunotendur
Þátttakendur: Námskeiðið er
ætlað skrifstofufólki og sérfræð-
ingum sem vilja sjálfir vinnaupp-
lýsingar úr tölvugagnagrunnum.
Markmið: Að kenna notkun
SQL-gagnavinnslumálsins við
upplýsingaleit og fyrirspurnir í
tölvugagnagrunnum.
Efni: Farið verður yfir uppbygg-
ingu nýtísku gagnagrunnskerfa,
töflulíkanið kynnt, leitaraðferðir
í tölvukerfum, uppbygging gagna
ítöflugagnagrunnum. sýnt hvern-
ig hægt er að tengja saman töflur.
Kennt verður á einfalt gagna-
leitarforrit. Kenndar verða helstu
skipanir í SQL til að draga
upplýsingar úr töflugagnagrunum
t.a.m. inn á töflureikni og einnig
skipanir til að breyta gögnum.
Leiðbeinandi: Bergur Jónsson
yfirtölvunarfræðingur Lands-
virkjunar.
Tími, staður og verð: 2.-4. des.
kl. 8:30-12:00 íTölvuskólaEinars
J. Skúlasonar hf. Kr. 16.000.-.
GPS-STAÐSETNINGAR-
KERFIÐ "Global Positioning
System":
Þátttakendur: Námskeiðið er
ætlað öllum sem áhuga hafa á
hagnýtingu GPS-kerfisins, bæði
tæknimönnum og notendum.
Efni: Námskeiðið skiptist í tvo
hluta, þ.e. kynning á GPS-kerfinu
annars vegar og nánari umfjöllun
um tæknilegaútfærslu hins vegar.
Kynning: Helstu einkenni og
eiginleikar GPS-kerfisins og
þróun þess í fortíð og framtíð;
grundvallarlögmál kerfisins,
helstu skekkjuvaldar og ná-
kvæmni í notkun; GPS-móttöku-
búnaður og eiginleikar hans;
notkunarsvið kerfisins og leið-
rétlingartækni.
Tæknileg úlfœrsla: Merkja- og
skeytagerðir í GPS-kerfinu; út-
vinnsla merkja í móttökurum,
fasalæstar rásir og stafrænar
vinnsluaðferðir; hlutverk Kal-
man-síunar og uppbygging hug-
búnaðarins; aðferðir við staðar-
ákvörðun og áhrif geometrískrar
afstöðu gervitunglanna á ná-
kvæmni; GPS-leiðréttingarkerfi
ognákvæmni slíkra kerfa; notkun
GPS á sjó, á landi og í lofti;
prófanir á nákvæmni GPS-kerfis-
ins og mæliniðurstöður.
Leiðbeinandi: Þorgeir Pálsson
flugmálastjóri, Sæmundur E.
Þorsteinsson verkfræðingur og
Þorsteinn G. Gunnarsson verk-
fræðingur.
Tími og verð: Kynningin 2. des.
kl. 13:00-17:00. Kr. 4.500.
Tæknilega útfærslan 3.-4. des.,
kl. 13:00-17:00.Kr.8.500.-. Hægt
er að taka aðeins annan hlutann,
en ef allt námskeiðið er tekið er
verðið kr. 11.500.
HLUTBUNDIN FORRITUN
NOTENDASKILA í C++
UNDIR WINDOWS
Þátttakendur: Námskeiðið er
ætlað forriturum og hönnuðum
sem vilja kynnast forritun not-
endaskila og þá einkum í C++.
Forkröfur: Þáttt. þekki C++.
Efni: Kennd verður gerð not-
endaskila í C++ undir Windows.
Forritunarumhverfið Turbo C++
og klasasafnið ObjectWindows
verður notað í kennslu og í
verklegum æfingum. Fariðverð-
ur í grundvallaratriði glugga-
forritunar, hönnun og forritun not-
endaskila í ObjectWindows, svo
og tengsl notendaskila við
notendaforrit sem skrifuð eru í
hlutbundnu forritunarmáli.
Leiðbeinandi: Ebba Þóra Hvann-
berg tölvunarfræðingur og ad-
júnkt við tölvunarfræðiskor H.I.
Tími og verð: 3., 4., 7. og 8. des.
kl. 8:30-12:30. Kr. 16.000.-, auk
kennslubókar.
25 - Tölvumál