Tölvumál - 01.10.1992, Síða 27
Október 1992
Að sjá skóginn fyrir trjánum í
klasafrumskóginum
Sveinn Baldursson, tölvunarfræðingur hjá TölvuMyndum hf.
Byggt á erindi sem flutt var á ráðstefnu SI um Vinnubrögð í hugbúnaðargerð, 7. maí s.l.
Ertu hlutbundin(n)?
Gegnum tíðina hafa nokkrar meiri
háttar byltingar tröllriðið hug-
búnaðargerðinni frá því hún fyrst
leit dagsins ljós. Forritun í
smalamáli var bylting umfram
vélarmálsforritun og forritun í
æðri forritunarmálum eins og
FORTRAN og COBOL þótti
bylting umfram forritun í smala-
máli. Inn á milli byltinganna
komu fram hugmyndir, sem
ætlað var að betrumbæta það
sem fyrir var, s.s. hugmyndir um
mótaða forritun, mótaða hönnun
og mótaða greiningu. Allir áttu
að vera svo mótaðir, eða
"strúktúreraðir". Nú er ekki
lengur í tísku að vera mótaður.
Nú gildir að vera sem hlut-
bundnastur eða "obbdjekt óríent-
eraður". Og ef maður er ekki
"obbdjekt óríenteraður", þá á
maður á hættu að fá ekki vinnu -
eða launahækkun.
Ef rétt er, sem spáð er, að
hlutbundin hugbúnaðargerð sé
meiriháttar bylting, þá má búast
við að stjórnendur hugbúnaðar-
húsa og tölvudeilda muni í
framtíðinni horfa djúpt í augu
væntanlegra nýliða og spyrja há-
tíðlega: "Hversu hlutbundin(n)
ertu - raunverulega?"
Og ef til vill mun það tíðkast
sums staðar að menn þurfi að
þreyta pínulítil próf í atvinnuleit
sinni. Þá verður ekki nóg að
kannast við erfðir, gagnahuld og
fjölgervi, heldur verða menn að
kunna skil á dimmustu skúma-
skotum forritunarmálsins C++,
klösum, sýndarföllum, vinum,
snriðum og tortímendum, hvaða
föll og virkjar erfast sjálfkrafa og
hver ekki, hvaða föll eru búin til
sjálfkrafa af þýðandanum, hvaða
aðgerðir geta skilað gildi og
hverjar ekki, hver munurinn er á
"prívat", "public" og "prótekted",
hvenær rétt er að búa til sýndarföll
og hvenær ekki, hvert er samspil
sýndarfalla og sjálfgefinna gilda
á færibreytum, hvenær fall má
skila bendli á hlut og hvenær það
er sko ekkert sniðugt og hvenær
þaðmábaraallsekki. Já-hvenær
má þetta og hvenær má hitt og
hvenær má það ekki í C++?
Það er sannarlega hættulegt að
sigla gegnum skerjagarð þessa
umtalaða fomtunarmáls, en þeim
sem tekst það, stendur til boða
að fiska vel. Hægt væri að halda
áfram að lofa og lasta C++ og
verður það gert síðar, en helsti
tilgangur þessarar greinar er sá
að segja frá þeirri reynslu, sem
undirritaður hefur haft af
klasasöfnum (e. class libraries)
og svokölluðum blaðara (e.
browser) fyrir C++.
Klasasöfn fyrlr
gluggakerfi
Með tilkomu gluggakerfa eins
og Macintosh, Windows og PM,
þá hafa notendaviðmót forrita
einfaldast til muna. A hinn bóginn
hefur verk forritarans aukist
talsvert, því forritunarskilin fyrir
ofannefnd gluggakerfi eru
umfangsmikil og fremur flókin.
Því hefur tilkomu hlutbundinnar
forritunar verið tekið fegins
hendi í þessum geira, því vonir
manna eru þær að hlutbundin
forritun geti einfaldað til muna
hugbúnaðargerð fyrir glugga-
kerfi. Samhliða þessari þróun, þá
hefur risið þörf fyrir for-
ritunarskil, sem hægt er að nota
fyrir öll algengustu gluggakerfin.
Nú keppast ýmsir framleiðendur
við að koma á markaðinn með
slík forritunarskil, sem gefa
forritaranum þann möguleika að
skrifa forrit fyrir eitt gluggakerfi
og þýða það óbreytt fyrir annað
gluggakerfi. Eitt slíkt kerfi er
C++/Views (sjá mynd 1.).
Punktar...............
Og enn flelri
hagtölur
UNIDO, sem er ein af stofn-
unum Sameinuðu Þjóðanna,
býður einnig ýmsar alþjóð-
legar hagtölur á segulbandi
eða disklingum.
.
Nánari upþlýsingar veitir
Industrial Statistics and
Sectoral Surveys Branch,
United Nations Industrial
Development Organi/ation,
P.O. Box 300.
A-1400 Vienna Austria.
Bréfasími .... 23 21 56.
27 - Tölvumál