Tölvumál - 01.10.1992, Page 28
Október 1992
Jafnframt því að vera
klasasafn, inniheldur
C++/Views blaðara og
önnur hjálpartæki.
Reynsla okkar af
klasasafninu er fremur
góð og það er öruggt
mál að notkun þess
hefur sparað okkur
talsverðan tíma miðað
við forritun í C fyrir
Windows, Macintosh
og PM.. Okkur finnst
það einfaldara í notkun
heldur en t.d. for-
ritunarskilin fyrir C í
Windows og má það
að miklu leyti þakka
hinni hlutbundnu
hönnun þess. Taka
verður fram að ekki er
nóg að tiltekið for-
ritasafn sé hlutbundið
til þess að vera gott.
Hönnun hlutbundins
forritasafns, sem kallast
þar með klasasafn, er
að rnörgu leyti vanda-
samari en hönnun óhlutbundins
forritasafns. Virðist sem hönnuð-
urn C++/Views klasasafnsins hafi
tekist nokkuð vel upp.
Ohætt er að benda þeim, sem
stefna á hugbúnaðargerð fyrir
gluggaumhverfi í C++ að hafa
klasasöfn í ætt við C++/Views í
huga.
En C++/Views er meira en
klasasafn. Pakkanum fylgir svo-
kallaður "browser" eða blaðari,
en það er hugbúnaður sem
auðveldar forritaranum að sjá
skóginn fyrir trjánum í klasa-
frumskóginum (sjá mynd 2).
Hugmyndin að hinum þrískipta
glugga blaðarans er fengin frá
Smalltalk umhverfinu og ættu
Smalltalk forritarar að kannast
vel við sig í þessu umhverfi.
Þessi sama þrískipting er einnig
fyrir hendi í Actor en það er
hlutbundið forritunarumhverfi
sem var sérstaklega þróað fyrir
Windows.
Hvað gerir svo blaðarinn fyrir
okkur?
- Almennt séð, þá býr hann til
veröld, þar sem klasar og
einkenni þeirra eru megin-
viðfangsefni forritarans.
- Hann sér um innflutning á
klösum og niðurbrot þeirra í
aðferðir (föll), breytur og þær
þulur sem búa að baki hvers
falls.
- Hann býr tii "make" skrá fyrir
okkur, en "make" forrit, sem
kalla mætti gerðarforrit, þykja
ómissandi við hugbúnaðar-
gerð eftir að menn hafa á
annað borð kynnst þeim.
- Hann getur sýnt valda hluta úr
klasa, s.s. breytur, föll og vini
(e. friends), einnig sýnileika
þeirra o.fl. Hverjir eru svo
gallarnir við þennan blaðara?
- Hann er svolílið hægvirkur og
er lítil von til þess að það
lagist fyrr en 586 tölvur eða
sambærilegar koma á mark-
aðinn.
- Enn eimir af villum í honum,
sem maður lærir að snið-
ganga af reynslunni einni
saman.
Reynslan af C++
Hverersvoreynslaokkaraf C++?
.C++ hefur vissulega ýmsa kosti:
- Góður keyrsluhraði.
- Flestir af kostum C erfast.
- Flutningshæfni er mikil.
28 - Tölvumál