Vísir - 23.08.1962, Qupperneq 4
Fimmtudagur 23. ágúst 1962.
VlSIR
jjtilt manns, svipur og
yfirbragð eru e. t. v. þýð
ingarmeiri í Bandaríkj-
unum en í nokkru öðru
landi. Það virðist vera
þar næstum því algengt
skilyrði fyrir frama
manna í stjórnmálum og
í viðskiptalífinu, að þeir
séu myndarlegir á velli.
Það hefur löngum verið
sagt, að tannpastabros
sé mikilvægara í kosn-
ingum í Bandaríkjunum
en langar ræður. Sáma
gildir á ótal öðrum svið-
um og þá ekki síður fyr-
ir kvenfóikið en karl-
Gérfræðingar þeir sem fram-
kvæma slíkar aðgerðir eru
'nú orðnir um 400 í öllum Banda
ríkjunum, en þeim fjölgar á
hverju ári um 30. Upphaf þess-
arar lækningagreinar kom upp
þannig, að sérfræðingar lögðu á
sig mikla fyrirhöfn og nýjar
leiðir voru fundnar til að bæta
úr andlitsskemmdum, t.d. eftir
bruna og sprengingar. Er það
í rauninni dásamlegt, hve vísind
in hafa náð miklum árangri í
að græða hold og skinn, þar
sem ella hefðu verið ægileg
brunasár. Út frá þvi var svo
farið að laga ýmiss konar með
fædd líkamslýti, en nú hefur
þetta komizt út í slíkar öfgar,
að fólk er farið að láta breyta
andliti sínu eftir tízkunni
hverju sinni.
í lækningadeildum þessum er
breytt lögun á eyrum, undirhök
ur og hrukkur fjarlægðar. Auk
Skurðaðgerðin er síðan fram-
kvæmd með staðdeyfingu og er
sársaukalaus. Hún stendur yfir
allt frá hálftíma til tveggja klst.
eftir því, hve mikla breytingu
í að gera.
Það er hægt að gera næstum
hvaða breytingu sem er á nef-
inu, á nasavængjum, nefbroddi,
nefhrygg. Hægt er að bæta við
eða taka af nefbrjóskinu, nema
burt „kartöflunef", breyta söð-
ulbökuðu nefi í arnarnef og öf-
ugt og klippa af nefi sem slútir
of langt niður. En erfiðasta að-
gerðin er þó talin að breyta
króknefi Gyðinga í beint nor-
rænt nef.
Engin merki verða sjáanleg í
húðinni eftir aðgerðina. Eftir
getur fólk snúið aftur til vinnu
sinnar eins og ekkert hafi f
skorizt, sem nýr og betri mað-
ur.
Þannig getið þér auðveldlega
keypt yður nýtt nef. Verðið
er þó nokkuð misjafnt eftir því
hvað aðgerðin er mikil eða frá
300 dollurum og upp í 1000 doll
ara. Lang algengasta verðið er
um 400 dollarar.
☆
TVTefverðið er svo ódýrt þar
sem heita má að þar sé
komið á fjöldaframleiðsluverð.
Aðrar andlits og líkamsbreyting
ar eru yfirleitt dýrari. Fjarlæg-
ing á undirhöku kostar til jafn-
aðar 750 dollara, að fjarlægja
poka undir augum kostar um
500 dollara og um 1000 dollara
kostar að slétta úr andlits-
Bell flugvélaverksmiðja í Buff-
alo, hve mikill árangur hafði
náðst með aðgerðum á frönsku
flugkonunni. Hann ákvað þá að
gefa milljónaupphæð til stofn-
unar sérstaks sjúkrahúss, er lag
færði andlitslýti. Sjúkrahúsið
var stofnað árið 1955. Fyrsti
sjúklingurinn var drengur sem
hafði fæðzt eyrnalaus, annar
var lögfræðingur einn, sem
hafði algerlega misst nefið í
bílslysi. Svo mikil kraftaverk
hafa verið unnin á þessu sjúkra
húsi á slösuðu og vansköpuðu
fólki, að það hefur vakið sam-
úð og fégjafirnar hafa streymt
til þess. Á hverju ári útskrifast
hundruð og þúsundir manna frá
því með nýtt andlit og hvergi
f heiminum er framleitt eins
mikið af nýjum nefjum.
En á síðustu árum hafa and-
litsbreytingarnar farið út í öfg-
ar. Aðgerðin er svo auðveld og
ódýr, að menn fara ekki aðeins
til þess að láta lagfæra van-
sköpun eða meiðsl, heldur
vegna þess að þá langar til að
fá nýja tegund nefs, — nef sem
er í tfzku.
Bandarískur læknir dr. Oscar
Becker við háskólann í Illinois
hefur nýlega ritað grein um
þetta. Hann segir þar m.a. um
neftízkuna:
„Fyrir mörgum árum var f
tízku nef eins og kvikmynda-
leikkonan Myrna Loy hafði. Sfð
an breyttist tízkan og konur
vildu fá Hedy Lamarr-nef, þá
Grace Kelly-nef og Elizabet
Taylor-nef.
1 dag er nef forsetafrúarinn-
ar, Jacqueline Kennedy í tízku.
Þúsundir bandarfskra kvenna
kvenna í því efni margs konar.
Fer það bæði eftir því hvaða
konur eru frægar hverju sinni
og svo nokkuð eftir kvenfata-
tfzkunni. Þegar pilsfaldamir
mennma.
stis■
☆
Viltii kanpa nýtt nef?
Vegna þessa eyða Bandarfkja
menn hlutfallslega meim en aðr
ar þjóðir f fegrunarmeðul ýmiss
konar og á síðustu árum fer
það mjög f vöxt að menn láti
breyta andliti sínu með plast-
ískum skurðaðgerðum. Er nú
svo komið að f þetta er eytt á
hverju ári milljörðum dollara.
andlitsaðgerðanna eru brjóst
svo stækkuð og minnkuð eftir
þörfum.
En fyrst og fremst er það þó
hinn svipmikli fjallgarður and-
Iitsins, nefið sem aðgerðirnar
snúast um. Ekkert setur eins
mikinn svip á andlitið, og ekk-
ert er eins mikið til lýta og
ljótt nef.
Félagsskapur sá, sem fegrun-
arlæknarnir hafa stofnað með
sér kallast American Society of
Plastic and Reconstructive Sur-
gery. Hann gefur út skýrslur
um starfið á hverju ári. Þar
kemur það fram að á hverju ári
láta 30-50 þúsund Bandaríkja-
menn breyta á sér nefinu.
Nefskurður er lang algeng-
asta aðgerðin enda hefur hann
nú náð mestri fullkomnun. Er
nú svo komið að hægt er að
framkvæma nefbreytingu á fá-
einum dögum og kostnaðurinn
ekki meiri en það að flestir
geta veitt sér það.
☆
^ður en skurðaðgerðin er
framkvæmd skoðar læknir-
inn nefið vandlega, lætur taka
myndir af andlitinu frá ýmsum
hliðum. Síðan teiknar hanri
ýmsar tegundir nefja inn á
myndirnar og ,,siúklingurinn“
getur velt þeim fyrir sér og val
ið úr. Við valið nýtur hann ráð
legginga læknisins, sem bendir
á hvaða nefgerðir séu í beztu
samræmi við andlitið.
hrukkum. Andlitshrukkurnar
eru einna erfiðastar viðfangs,
því að skera þarf víðsvegar
ræmur úr húðinni og „sjúkling-
urinn“ þarf að koma oft til að-
gerðar með nokkru millibili.
Tekur slík aðgerð því tvö ár.
Fulkomnustu nef Bandaríkj-
anna fást í læknastofu í New
York, sem hefur nefaðgerðir að
sérgrein og er deild í Institute
for Reconstructive Plastic Sur-
gery. Deild þessi var stofnuð
fyrir nokkrum árum og var til-
efnið að nokkru leyti hin ægi-
legu andlitsmeiðsl frönsku flug-
konunnar Jasqueline Auriol,
tengdadóttur Frakklandsforseta
Árið 1949 lenti hún í flugslysi,
þegar flugvél hennar hrapaði
niður á Signubaka. Hún hélt
lífinu en var hræðilega afmynd
uð í andliti. Hún var flutt til
Bandaríkjanna og þar voru
nokkrir færustu sérfræðingar
kallaðir saman til að lagfæra
andlitsmeiðslin. Þeim tókst að
gefa henni nýtt andlit og var
það mikill sigur fyrir þá, þegar
hin nýja Jacqueline Auriol með
nýja andlitið var fyrir nokkru
valin í hóp fegurstu kvenna
Frakklands. En það varð ekki
fyrirhafnarlaust, því að flugkon
an gekk undir samtals 22 and-
litsuppskurði.
hafa keypt sér forsetafrúarnef
á síðustu tveimur árum.
☆
Cömu tilhneygingarinnar verð-
ur vart í líkamsbreyting-
um þeim sem einnig er farið að
framkvæma aðallega á konum.
Það er hægt með ýmsum að-
gerðum að breyta verulega lík-
amsbyggingunni og eru óskir
☆
Ijað barst til eyrna Lawrence
Bell forstjóra hinna frægu
Það kostar
aðeins
16 þúsund
Ifrónur
í Banda-
ríkjunum
hækkuðu fyrir nokkru upp á og
uppfyrir hnéskel, þurftu þúsund
ir kvenna að láta lagfæra á sér
hné og fætur.
Það versta við þessar aðgerð
ir er að sjúklingurinn verði eft
ir á ekki ánægðurmeðnefiðsem
hann hefur fengið. Það getur
verið að hann hafi valið á-
kveðna neflögun eftir ljósmynd,
en svo tekst ekki nákvæmlega
að ná henni eða honum líkar
ekki við það, þegar hann fer
að bera það. Eru málsóknir nú
orðnar allmargar vegna þessa
og hafa lækningastofur flestar
tryggt sig gegn þessu.
Nýlega hefur t.d. verið rætt
mikið í Hollywood um mál sýn-
ingarstúlkunnar og ljósmynda-
fyrirsætunnar Bunny Hare. —
Henni fannst nefið á sér ekki
nógu gott til Ijósmyndunar og
fór til fegrunarlæknis og bað
hann um „photogeniskt" nef,
þ.e. sem tæki sig vel út á mynd
um.
Læknirinn lofaði að gefa
henni „photogeniskt" nef. En
eftir að nefskurður hafði farið
fram, komst Bunny að þvi, að
nýja nefið tók sig enn verr út á
myndum en það gamja og nú
gerðist það jafnvel að Ijós-
myndararnir vildu ekki sjá leng
ur að taka mynd af henni.
Vegna þessa fór Bunny í mál
og fékk sér dæmdar frá
tryggingafélagi 25 þúsund doll
ara.