Vísir - 27.08.1962, Blaðsíða 5
Vlánudagur 27. ágúst 1962.
V'ISIR
Fimmtugur:
Sveinn Guðmundsson
Sveinn Guðmundsson, forstjóri j
Vélsmiðjunnar Héðin, er fimmt-
ugur í dag. Sveinn er einn af at-
hafnamestu framkvæmdamönnum
borgarinnar, rekur stórt fyrirtæki
af miklum myndarskap, en gefur
sér auk þess tíma til þess að sinna
féiagsmálum. Um langa hríð hefir
hann starfað í fremstu röð Sjálf-
stæðismanna og setið á þingi sem
einn af varaþingmönnum Reykvík-
inga.
Sveinn Guðmundsson er féeddur
27i ágúst 1912. Iðnaðarnám hóf
hann í Reykjavík árið 1929 og lauk
námi í rennismíði 1933. Þá sigldi
hánn til Svíþjóðar og stundaði j
nám í vélfræði í Stokkhólmi um'
tv’eggja ára skeið. Eftir að hann
kpm heim starfaði hann sem vél-
fræðingur f vélsmiðjunni Héðni
unz hann tók við störfum sem
framkvæmdastjóri árið 1943.
Landsmönnum öllum er kunnugt
um hvern þátt vélsmiðjan Héðinn
hefir átt í atvinnuframkvæmdum á
síðustu áratugum. Undir stjórn
Sveins hefir vélsmiðjan tekið að sér
mikil verkefni f þágu sjávarútvegs-
ins svo sem byggingu síldarverk-
smiðja, fyrstihúsa og smíði fyrstu
dieselvélarinnar á íslandi. Auk
þess smfðaði dótturfyrirtæki Héð-
ins, Stálsmiðjan, fyrstu íslenzku
stálskipin.
Þannig má með sanni segja, að
Sveinn f Héðni, eins og hann er
oftast nefndur, hafi verið oddviti
stéttar sinnar og jafnan lagt metn-
að sinn í það að leysa stórvirki í
vélsmíði vel af hendi.
Ótalin eru öll störf Sveins í þágu
ísl,enzks iðnaðar. Hefir hann látið
félagsmál iðnaðarins mikið til sin
taka og verið sýndur mikill trún-
aður á þeim vettvangi. Sveinn hef-
ir átt sæti í varastjómum Lands-
sambands iðnaðarmanna og Félags
ísf. iðnrekenda. Hann starfaði sem
fulltrúi iðnaðarmanna að stofnun
Iðnaðarbankans og er nú ritari
bankaráðs. Formaður Iðnsýningar-
nefndar hefir hann verið, setið í
stjórnum Vinnuveitendasambands-
ins, Verzlunarráðsins og Iðnaðar-
málastofnunarinnar. Formaður
Sýningarsamtaka atvinnuveganna
hefir hann einnig verið.
Sveinn Guðmundsson er kvæntur
Banaslysíð —
Framhald af bls. 1.
slysinu olli var mjög miður sín við
yfirheyrslu hjá lögreglunni og erf-
itt að fá samhengi í framburð
hans, en þó prúður og vildi í öllu
svara þeim spurningum sem fyrir
hann voru lagðar. Hann viður-
kenndi að hafa áður um daginn
neytt áfengis en taldi að áhrifa hafi
ekki lengur gætt við aksturinn um
nóttina, enda taldi lögreglan að
ekki hafi séð nein‘ölvunareinkenni
á honum. Farið var með hann til
blóðrannsóknar, en árangurinn af
þeirri rannsókn lá ekki fyrir í
morgun.
Helgu Markúsdóttur og hefir þeim
orðið 5 bama auðið.
Vísir ámar Sveini Guðmunds-
syni allra heilla á þessum merku
tímamótum.
Týndist -
Framhald af bls. 1
dimmt náttmyrkur, þegar leitar
menn fundu þessa holu og lýstu
niður í hana. Er hægt að ímynda
sér, hve þeim létti, er þeir sáu
í ljósglampanum frá kastljósi,
litla hvíta barnshönd, sem
hreyfðist, þegar drengurinn
vaknaði.
Leitað á stóru svæði.
Drengurinn heitir sem fyrr
segir Sævar Pétursson og er
sonur Péturs Péturssonar. Það
var um fjögur leytið í gærdag
sem drengsins var saknað. í
fyrstu leitaði fólk frá Loran-
stöðinni hans en kl. 6 var hafin
skipulögð leit á stóra svæði. Var
leitað á öllu svæðinu milli
Hellissands og Loran-stöðvarinn
ar og að flugvellinum, en þegar
til kom hafði drengurinn farið
skammt, aðeins um 200 metra
frá þeim stað sem hann og tveir
aðrir drengir höfðu verið að
leika sér um daginn.
Tvísýn flugkeppni
Hátt á annað þúsund
manns fylgdust með flug-
keppni Flugmálafélagsins
er fram fór á Reykjavíkur-
flugvelli í gærdag í ágætis
veðri. Eftir harða keppni
sigraði Gunnar Arthúrs-
son, en aðstoðarmaður
hans var Karl Guðjónsson.
Keppnin fór mjög vel fram að
sögn stjómenda hennar og stóðust
flestir framkvæmdaliðir hennar.
Keppendur mættu nokkru fyrir
keppnina hjá keppnisstjórn og
voru þeir 20 talsins á 10 flugvél-
um. Hálfri klukkustund áður en
þeir lögðu í loftið fengu þeir af-
hent umslög með korti af flugleið-
inni, en síðan áttu þeir að gera
flugáætlun. Var hún stærsti liður
keppninnar. Kl. 14.15 hóf fyrsti
keppandinn sig á loft, var það
Sveinn Eiriksson flugmaður. Síð-
an hóf hver flugvélin sig eftir aðra
á loft. Flogið var í nokkurs konar
þríhyrning, fyrst að Selfossi, síð-
an að Brúsastöðum og þaðan til
Reykjavíkur. Á flugleiðinni voru
staðsettar tvær athugunarstöðvar,
á Sandskeiðinu og hjá Stardal.
Meðan á fluginu stóð áttu flug-
mennirnir að taka eftir sex kenni-
leitum, allt voru það nokkuð stór
ar léreftsveifur. Á fimm þeirra
voru skráðir stafir sem mynduðu
orðið ,,Shell“, en á einni stóð
Skeljungur.
Þegar til Reykjavíkur kom flugu
vélarnar yfir nýja flugturninn, en
þar var markið. Síðan flugu þær
hring yfir völlinn og hentu flug-
mennirnir kubb niður, átti hann
að lenda inn í eða sem næst hring
sem hafði 5 m radíus. Með þraut
þessa gekk yfirleitt flugmönnun-
um vel og hittu flestir mjög ná-
lægt hringnum, þó enginn inn í
hann. Þegar þessi þraut hafði
verið framkvæmd var keppendum
tilkynnt í gegnum sendi að þeir
ættu að fara upp í 1500 m hæð,
fljúga síðan yfir flugturninn og
framkvæma þar mótorbilun og
nauðlenda síðgn. Varð flugvélin
þvl næst að nauðlenda svokallaða
marklendingu. Að þv£ búnu voru
flugvélarnar látnar hefja sig á loft
aftur og lenda aðra marklendingu
með hreyfilinn í gangi, en hún
er í því fólgin að vélarnar eiga
að koma niður á ákveðna merkta
línu á flugbrautinni, eða sem næst
henni fyrir framan hana.
Fyrir keppnina voru gefin stig,
en henni var skipt í þrennt, flug-
áætlun, lendingar og sér þrautir.
Flest stig I keppninni hlutu þeir
félagar Gunnar Arthursson og
Karl Guðjónsson, næstir á eftir
þeim komu þeir Sveinn Eiríksson
og Vignir Norðdahl. Voru kepp-
endur mjög jafnir. Keppnisstjórn
skipuðu: Björn Jónsson, Þorsteinn
Jónsson, Hilmar Leósson. Kynnir
| var Arnór Hjálmarsson. Fonnaður
j vélflugsnefndar Flugmálafélagsins
er Skafti Þóroddsson. í sambandi
við flugkeppnina fór fram flug-
model-sýning sem vakti mikla at-
hygli áhorfenda. Á henni sýndu 15
drengir um 40 flugmodel.
Mesti fjárdráttur
síðan Alberti leið
Undir lok síðast liðinnar viku
fór kunnur Kaupmannahafnar-
búi, Helmuth Bedehoff forstjóri,
á fund rannsóknarlögreglunnar
ásamt konu sinni og lögfræð-
ingi, og játaði á sig stórkost-
Iega fjárglæfra og svik. Hafði
hann komizt yfir 8-9 milljónir
danskra króna með misnotkun
nafns mágs sins Christian
Moltke Bregentveds markgreifa.
Badenhoff var úrskurðaður í
fjögurra vikna gæzluvarðhald.
Hann skrifaði nafn mágs síns
á skuldabréf. Sage er að um
keðjuviðskipti með slík skulda-
bréf hafi verið að ræða, en að-
eins eitt var þó komið í leit-
irnar sl. laugardag.
Arbejdernes Landsbank hafði
árangurslaust reynt að fá Baden
hoff til þess að leysa út skulda-
bréf, sem fallið var í gjalddaga,
en til þess hafði hann fengið
frest. Á þessu bréfi var nafn
lénsgreifans í heimildarleysi.
Þessi svik voru upp á 400.000
d. kr., og vissi Badenhoff, að
bankinn ætlaði að tilkynna rann
sóknarlögreglunni málið, ef
hann Ieysti ekki út bréfið, og
þvi fór hann á fund hennar, rétt
áður en hann vissi, að kæran
myndi berast henni, og játaði
því næst á sig fjársvik upp á
8—9 millj. danskra króna eins
og fyrr var sagt, eða hátt upp í
500 millj. fsl. króna.
ijargaði
Matsveinn og háseti
Vantar á dragnótabát. Uppl. í síma 10344.
KONUR
óskast til starfa í eldhúsi Hrafnistu í vetur.
Einnig konu til bökunarstarfa.
Framhald af bls. 1.
regluþjónninn kom vestur kl.
eitt um nóttina og fór strax
með Dúnu á staðinn. Hún virt-
ist brátt finna áttina, sem barnið
hafði farið í, þótt erfitt væri
um leit, þar sem jörðin hafði
rnikið verið troðin af leitarfólki.
Þegar sporhundurinn virtist
hafa fundið slóð barnsins vökn-
uðu að nýju vonir leitarfólksins
og það fór að Ieita i holum og
gjótum þar næst. Og ,ú leit bar
árangur.
Um fjögur ár eru síðar. Dúa
var flutt inn landið sem hvolp-
ur frá Ameríku. Hún er eign
Flugbjörgunarsveitarinnar, en
Carlsen minkabani hefur æft
hana í leit og gert það í algerri
sjálfboðavinnu.
i Waknaði ekki...
i Framh. af 16. síðu:
; þarna ekið yfir mann og jafnvel
! valdið banaslysi. Fékk hann menn
sér til aðstöðar við að lyfta bif-
reiðinni og ná manninum undan
henni. Hann var þá steinsofandi og
rumskaði ekki. Var hann fluttur I
slysavarðstofuna þar sem hann
kom til sjálfs sín andartak, teygði
úr öllum skönkum geispaði, valt
að því búnu steinsofandi út af aft-
ur og hraut ferlega allt til morg-
uns. Þá klæddi hann sig, tók hatt
sinn, kvaddi og hélt heimleiðis
alheill heilsu eins og ekkert hefði
í skorizt. Hann var örlítið hruflað-
ur í andliti og eitthvað lítilsháttar
kvartaði hann undan eymslum í
ökla. Það var allt og sumt.
En forsaga málsins er sú, að
maður þessi hafði fengið sér helzt
til mikið neðan í því á laugardags-
kvöldið og fann engan heppilegri
svefnstað heldur en fyrir framan
í eina stöðvarbifreiðina í portinu hjá
B.S.R. og þar sofnaði hann svefni
hinna réttlátu án nokkurra á-
hyggna út af umferð eða önnum
stöðvarinnar um nóttina.
Afmælishátíð
Framh. af 16. síðu:
fyrsta degi sýningarinnar skoðuðu
um 340 manns hana.
Þá var rétt á mörkunum, að
knattspyrnuliðið frá Reykjavík
; kæmist norður í tæka tíð, þvl að
flugskyggni var mjög slæmt. Þetta
tókst þó og fóru reykvísku leik-
mennirnir næstum beint af flug-
vellinum til keppni. Leikurinn var
prúðmannlegur og drengilegur og
auðvitað höfðu Akureyringar gam-
an af því á afmæli sínu, að sigra
Reykvíkinga.
Um kvöldið var íþróttamönnum
síðan boðið til kvöldverðar á Hótel
KEA. Tók þar til máls Hermann
Stefánsson framkvæmdastjóri há-
tíðarnefndar. Þakkaði hann báðum
liðum og afhenti leikmönnum há-
tíðarmerki Akureyrar til minningar