Vísir - 27.08.1962, Blaðsíða 16
VISIR
Mánudagur 27. ágúst 1962.
Halldór G. Sigurðsson
Sviplegt
slys
Á öðrum stað í blaðinu I dag
er greint frá því, að Halidór
Gunnar Sigurðsson, einn af
starfsmönnum Vísis, hafi látizt
í gær af sárum þeim, er hann
hlaut í bifreiðasiysi aðfaranótt
sunnudags.
Halldór var sonur þeirra
Sigurrósar Jónsdóttur og Sig-
urðar Halldórssonar fyrrv. bæj-
arstjóra á Isafirði. Var hann að-
eins tuttugu og fimm ára að
aldri, kvæntur Önnu Sigurjóns-
dóttur.
Halldór var hinn bezti drcng-
ur og ágætur starfsmaður. Er
mikill harmur kveðinn að vanda
mönnum hans við hið sviplega
fráfall. Vfsir sendir eiginkonu
hans og venzlamönnum innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Bræla og lítilsíld-
veiði um helgina
Síldveiðin hefur að langinestu
Ieyti legið niðri um helgina, því
að um hádegið á Iaugardag byrjaði
að bræla og upp úr því fóru skipin
að leita vars, öll þau sem voru á
aðalveiðisvæðinu norðan Langa-
ness.
Ágæt veiði var síðdegis á föstu-
dag og fram á laugardagsmorgun.
Þann sólarhring veiddist tæplega
58 þús. mál og tunnur á 75 skip,
m.a. fengu 2 skip um 1600 mál
hvort, þ.e. Hafrún og Fákur og
mörg skip sem voru með frá 1000
og upp í 1500 mál hvert.
Fyrir og um hádegið á laugar-
daginn óð mikil síld á 'Ægisslóð og
mörg skip köstuðu þrátt fyrir ó-
hagstætt veður. Sum þeirra
sprengdu þó eða rifu nætur sínar
og brátt versnaði veður svo að
ekki varð lengur fengizt við veiðar
og flotinn hélt í var. Leituðu skip
in ýmist til Raufarhafnar, Siglu-
fjarðar eða undir Grímsey.
I morgun var veðrið tekið að
ganga niðui og enda þótt enn væri
ekki komið veiðiveður, voru skipin
samt byrjuð að halda út á miðin
í fþeirri von að það myndi lægja
með kvöldinu.
Féll úr stiga
I morgun um kl. 11 slasaðist einn
af starfsmönnum rafveitunnar,
Finnur Kjartansson, er hann var
að vinna við að setja upp Ijósa-
staura á Rauðalæk. Féll hann úr
háum stiga og mun m.a. hafa fót-
brotnað og skaddaðist meira.
Vaknaði ekki, þótt
ekið væri yfir hann
Sá undarlegi atburður skeði hér
í borg í fyrrinótt, að ekið var yfir
sofandi mann án þess að hann
rumskaði við yfirkeyrsluna. Lá
hann þó klemmdur milli hjóla bif-
reiðarinnar þegar að var komið og
varð að lyfta bifreiðinni upp til að
ná honum undan.
Þetta skeði laust eftir miðnætti
í fyrrinótt á bifreiðastæði B.S.R. í
Lækjargötu.
Beðið hafði verið um leigubíl af
stöðinni og þegar hann var í þann
veginn að leggja af stað — bifreið-
arstjórinn telur sig hafa verið ‘kom-
inn um það bii einn metra; þá hafi
hann orðið þess var að eitthvað
’varð fyrir bílnum, þannig að hann
lyftist upp og jafnframt heyrðist
honum eins og uml í manni.
Nú hafði bifreiðarstjórinn ekki
orðið nokkurs manns var þegar
hann ók af stað og skildi illa hvern
ig í þessu gat legið. Hann fór samt
út að sjálfsögðu og leit undir bíl-
inn og það var ekki um að villast,
að þar lá maður gjörsamlega hreyf-
ingarlaus, klemmdur milli fram-
hjólanna og gaf hvorki frá sér
stunu né hósta.
Taldi ökumaðurinn að hann hafi
Framhald á bls. 5.
Líggur með-
vitundarlaus
Það slys átti sér stað í gær-
kvöldi um kl. 10,30 að maður að
nafni Tómas Ásgrímsson féll aftur
á bak og fékk við það þungt höf-
uðhögg. Við fall þetta missti Tóm
as meðvitund og var þegar fluttur
á Slysavarðstofuna og þaðan í
Landsspítalann. í morgun var Tóm
as ekki kominn til meðvitundar.
—
Afmælishátíð Akureyrar Kafin
í gær hófust hátíðarköldin á Ak-
ureyri í sambandi við 100 ára af-
mæli kaupstaðarins. Hófust þau
(
Helga Sigurðar-
dóttir lótinn
Helga Sigurðardóttir, fyrrv.
skólastjóri Húsmæðrakennaraskóla
lslands, lézt í gær í Landsspítalan-
um eftir langvarandi vanheilsu.
með því að listsýning með mál-
verkum eftir Ásgrím Jónsson var
opnuð í bamaskólanum á Oddeyri
og bæjarkeppni var háð i knatt-
spyrnu milli Akureyrar og Reykja-
víkur, sem Iauk með sigri Akur-
eyrar. Þá var um leið opnuð íþrótta
bygging á íþróttavellinum. Á
morgun verður opnuð iðnsýning i
Amaro-húsinu við Hafnarstræti, en
sjálf aðalhátiðahöldin hefjast á
miðvikudaginn, á afmælisdegi Ak-
ureyrar.
Fyrsti liður hátíðahaldanna var
opnun listsýningarinnar í Oddeyr-
arskóla. Þar er um að ræða sýn-,
ingu á 50 málverkum eftir Ásgrím j
Jónsson, yfirlitssýning á verkum;
hans. Fengust þessar myndir norð- j
ur með sérstöku leyfi stjórnar Ás-
grímssafns og menntamálaráðherra.
Kristinn Jóhannsson listmálari
setti sýninguna upp, en Bjamveig
Bjarnadóttir forstöðumaður Ás-
grímssafns kom norður og var við-
stödd opnunina. Jón G. Sólnes bæj-
arstjóri flutti opnunarræðu. Á
Framhald á bls. 5.
Myndin var tekin í portinu við húsið Smiðjustígur 4,
en einmitt þar var „æfingarstöð“ Alberts, einmitt á þessu
þrönga svæði, sem á myndinni sést æfði hann upp Ieikni
sína.
Frá Smiðjustíg
til San Siro —
Albert farinn til Milano
í gærmorgun lagði Albert
Guðmundsson knattspyrnukappi
áleiðis til Milanó á Italiu, en
þar mun hann leika með gömlu
stjörnuliði gegn Rómarfélaginu
Inter. Albert lék með Milanó
við góðan orðstír í 2 ár og var
einn vinsælasti Ieikmanna liðs-
ins, eins og kunnugt er, og enn
þann dag í dag er nafn Alberts
þekkt meðal knattspyrnuáhuga-
manna á Ítalíu.
— Ég er hræddur um að ég
verði hálfgerður skussi gegn
gömlu félögunum, sagði Albert
nokkru áður en hann lagði af
stað, — flestir þeirra hafa við-
haldið þjálfun sinni, t. d. Gunn-
ar Gren og Gunnar Nordahl,
sem báðir eru enn starfandi
knattspyrnumenn.
Leikurinn á miðvikudags-
kvöld er leikinn á hinum ný-
tízkulega leikvelli Mílanóborgar
San Síro, og verður leikinn í
fióðljósum. Ágóðinn af leiknum
verður varið til styrktar bama-
verndarmálum borgarinnar.
Vísir fékk í morgun staðfest-
ingu á því hjá lögfræðiskrifstofu
Ragnars Ólafssonar að gengið hafi
verið sl. laugardagskvöld frá sölu
á hinu stóra og verðmæta bóka-
safni Þorsteins sýslumanns Þor-
j steinssonar.
Það var eirjstaklingur sem keypti
i Kári Borgfjörð t Helgason kaúp-
; maður, Hverfisgötu 43 í Reykja-
vík. Að því er Vísir hefur lauslega
fregnað mun hann hafa gert til-
boð í safnið er vitað var að ekki
varð að sölu til Stefáns Guðjóns-
i sonar fornbóksala. Ekki vildi Ragn
I ar Ólafsson láta neitt uopi um
i söluverð á safninu.
Þessa mynd tók ljósmyndari
Vísis B.G. og er hún að því
leyti sérstæð að á henni sjást
tvö hvolfþök, sennilega þau
einu sem til eru hér á landi Hús
ið til hægri er hús Ásmundar
Sveinssonar, listamanns, en hitt
húsið er hin glæsilega íþrótta-
og sýningarhöll sem nú er í
byggingu í Laugardal. Hvolf-
þök lík því og er á íþrótta- og
sýningarhöllinni hafa tfðkazt
mjög lengi.
■ i r 11 i (51 ► r M . 111
• ) I