Vísir - 18.09.1962, Síða 3
Þriðjudagur 18. september 1962.
V'ISIR
Móðirin hvetur son sinn til að koma út í öldumar og busla .Hann var tregur í fyrstu en
innan skamms var hann farinn að una sér vel í volgu vatninu.
/
Keisarafjölskylda
á baðströnd
Fyrir nokkrum dögum birt-
ust í Myndsjá Vísis nokkrar
myndir er sýndu hörmungar-
ástandið í jarðskjálftasvæðinu
I Persíu. Nú ætlum við aftur að
skreppa austur í Persíu, en að
þessu sinni birtast hér myndir
teknar á baðströnd við Kaspía-
hafið, sem sýna keisarafjöl-
skylduna að leik á ströndinni.
Þetta er lftil fjölskylda, en ham
ingjusöm, þó skugga hafi brugð
ið á gleði hennar vegna eyðing-
ar þeirrar og tjóns, sem skall
yfir landið.
★
Ljósgeislinn í lífi keisarahjón
anna er hinn tveggja ára gamli
sonur þeirra sem sést á mynd-
inni. Var það föður hans mikið
gleðiefni þegar hann eignaðist
son og gaf þjóð sinni þannig
ríkiserfingja. En nú eiga þau
von á öðru barni.
Hér leiðast faðir og sonur út í -öldurnar og alltaf er betra
og öruggara að halda í hendina á pabba. Þó hinn tveggja ára
drengur sé ríkiserfingi er e. t. v. vafasamt að hann verði
nokkumtíma þjóðhöfðingi í landi sínu. Framtíðin er ótrygg
tilraunir hafa verið gerðar til að steypa keisaranum úr stóli.
Rfkiserfinginn heitir Rezá
Ciro og skemmti hann sér við
að vaða í hlýjum öldum Kaspia
hafsins og fara f ýmsa leiki á
ströndinni, svo sem að sparka
fótbolta. Myndirnar eru teknar
á baðströnd f bænum Ramsar,
sem er örskammt frá rússnesku
landamærunum. Fer keisarinn
oft þangað til að hvila sig og
flýgur flugvél hans um tfma
meðfram landamærunum. Gæti
það farið illa, ef flugvélin villt-
ist og yrði að lenda handan
landamæranna, því að Rússar
eru engir vinir Persakeisara.
Era strangar varúðarráðstaf-
anir við hafðar, hvar sem Persa
keisari er á ferð. Áður en hann
kom fram á baðströndina, þar
sem myndimar vora teknar
komu öryggisverðir fram og
báðu alla baðgesti á ströndinni
að hafa sig á brott.
Farah Dibah drottning faðmar hinn tveggja ára son sinn að
sér. Þegar hún eignaðist son var staða hennar sem drottn-
ingar tryggð.
Keisarahjónin horfa á son sinn í boltaleik á ströndinni. Þau
ala barn sitt upp eftir nútíma uppeldisaðferðum, en hætt er
þó við að drengurinn verði stundum einmana, því að hann
á ekki marga Ieikfélaga.