Vísir - 18.09.1962, Qupperneq 6
6
Þriðjudagur 18. september 1962
Vestur-Þjóðverjar keppa ákaft á sviði tízkunnar eins og fleiri svið-
um, og fyrir nokkru sendu þýzk fyrirtæki hóp sýningarkvenna í
sýningarför til ýmissa landa. Þær sýndu einungis alls konar flíkur
úr gerviefninu „draIon“, og voru flíkumar annað hvort eingöngu
úr því efni eða að þvi var blandað f önnur efni, svo sem ull. —
Efri myndin er af samkvæmiskjól úr „dralon“-flaueli, en hin sýnir
nokkrar sýningarstúlknanna,, sem voru af ýmsu þjóðemi (talið frá
vinstri): Kínversk, bandarísk, afrísk, sænsk og suður-afrísk. Mynd-
in er tekin, er þær voru að hefja ferðina frá flugvellinum við
, ( Frankfurt am Main.
Willy Breinholst vill
skrifa um ísland
Danski skopsagnahöfundurinn
Willy Breinholst kom hingað til
lands um helgina og mun dveljast
hér í um vikutíma til að viða að
.ér efni um ísland í gamansögur.
Sögur og bækur Breinholst hafa
fengið mjög mikla útbreiðslu.
Smásögur hans birtast í yfir 300
dagblöðum og vikublöðum í Evr-
ópu.
Þá hefur hann samið 28 bækur,
sem gefnar éru út í flestum lönd-
um. Eru þeirra á meðal ferðabæk-
ur, en allar eru þær í sama skop-
tóni og fylgja þeim margar teikn-
ingar.
En Breinholst finnst að einn
galli hafi verið við þessar bækur,
að þar er hvergi minnzt á ísland
og nú ætlar hann loksins að bæta
úr því.
Þá stendur til á næstunni að
gefa fyrstu bók Breinholst út í ís-
lenzkri þýðingu. Er það ein vin-
sælasta bók hans sem kallast á
dönsku „Kunsten at være Far“, en
í íslenzku þýðingunni: „Vandinn
að vera pabbi". Er það bókaútgáf-
an Fróði sem gefur hana út á
næstunni.
.4 Willy Breinholst.
_______ VISIR ______________
Funsflur rúðgjufu -
pngs Evrépn
í gær kom ráðgjafaþing Ev-
ruópuráðsins saman til fundar í
Strassborg og stendur fundurinn
tií 25. september. Fulltrúi íslands
á ráðgjafaþinginu verður Þorvald-
ur Garðar Kristjánsson.
Fyrstu tvo dagana verða haldn-
ir sameiginlegir fundir ráðgjafa-
þingsins og Evrópuþingsins svo-
nefnda, en á því eiga sæti þing-
menn frá þeim 6 ríkjum, sem eru
í Efnahagsbandalagi Evrópu.
Á dagskrá þingsins eru m. a. al-
mennar umræður um stjórnmála-
þróunina í Evrópu. Þá verður rætt
um efnahagssamvinnu ríkjanna í
Evrópu og Norður-Ameríku, um
orkumál og umferðarmál. Þá verð-
ur fjallað um starfsemi ýmissa
Evrópustofnana, um ástandið í
Albaníu, um flóttamannamál og
um lögfræðilega aðstoð við van-
þróuð lönd.
Viðskipfasamning-
ur við Pólland
Á grundvelli viðskiptasamn-
ings milli Islands og Póllands
frá 18. nóvember 1949, var und-
irritaður í Varsjá hinn 14. sept.
1962 samningur um viðskipti
milli landanna fyrir tímabilið 1.
október 1962 til 30. september
1963.
Gert er ráð fyrir að ísland
selji eins og áður frysta síld,
saltsíld, fiskimjöl, lýsi, saltaðar
gærur og auk þess fleiri vörur.
Frá Póllandi er meðal annars
gert ráð fyrir að kaupa kol,
timbur, járh ag'"Stálvörur, éfna-
vörur, vefnaðafv'drur,; véíar Ög
verkfæri, búsáhöld, skófatnað
og fleiri vörur.
Af Islands hálfu önnuðust
þessa samninga dr. Oddur Guð-
jónsson, ráðuneytisstjóri, Svan-
björn Frímannsson, bankastjóri,
Pétur Pétursson, forstjóri, Gunn
ar Flóvenz, forstjóri, og Árni
Finnbjörnsson, framkvæmdastj.
Á laugardaginn var undirritaður
kjarasamningur við ríkisstarfsmenn
; og var ákveðið. í honum, að þeir
; skyldu fá 7% launahækkun til við-
I bótar við þá 4% hækkun, seip þeir
Jfengu 1. júní s. 1. Hér er um að
; ræða fyrsta kjarasamninginn, sem
j gerður er milli ríkissjóðs og Banda
; lags starfsmanna ríkis og bæja
samkvæmt nýjum lögum um kjara-
samninga opinberra starfsmanna.
í bráðabirgðaákvæði í þeim er
gert ráð fyrir að Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja geti krafizt
launahækkana af almennar og veru
legar kauphækkanir verða þar til
Skemmtiferðafólk er að mestu
hætt að koma í Mývatnssveit á
þessu sumri, enda engar áætlunar-
ferðir Iengur frá Akureyri.
Undanfarnar helgar hefur þó ver-
ið efnt til sérstakra hópferða til
Mývatns og má segja að það séu
einu ferðamennirnir, semleggjaorð
ið leið sína um Mývatnssveit.
Sjö manns' drukkna
Sjóslys hefir orðið á Svartahafi
við norðurströnd Tyrklands.
Sextlu lesta vélbátur var þar á
ferð, þegar skyndilega varð í hon-
um sprenging, svo að hann sökk á
fáeinum mínútum. Sjö manna, sem
voru með bátnum, er saknað og eru
þeir taldir af.
kjaraákvæði skv. lögum koma til
framkvæmda. Gerði bandalagið
kröfu um launabætur með bréfi
dagsettu 27. júní
Síðan stóðu yfir viðræður milli
samninganefndar af hálfu fjármála-
ráðherra annars vegar og kjara-
ráðs Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja hins vegar um launa-
bætur til samræmis við þær hækk
anir, se morðið hafa hjá öðrum
stéttum.
Launahækkun sú sem nú var
samið um gildir frá 1. júní og
verður greidd með októberlaunum.
Bæði þetta sumar og eins s.l.
sumar hafa verið óvenju köld og
sólarlítil og heyskapur erfiður. —
Seinni hluta júlímánaðar í sumar
var nokkuð sólrikt, en síðan ekki
söguna meir og fáir sólardagar
komið úr þvi.
Unnið er að því að leggja raf-
magn f Mývatnssveitina frá Laxár-
virkjuninni og cr vonazt til að það
verði sett í samband í haust.
■ Gjöf til Lang-
holtskirkju
Á kirkjudegi Langholtssafnaðar,
sem haldinn var í safnaðarheimil-
inu í gær, barst Langholtskirkju
höfðingleg gjöf, sem var altarissilf-
ur, að verðmæti um 50 þús. kr.
Gjöf þessi var að verulegu leyti
frá kvenfélagi safnaðarins, en að
hinu leytinu minningargjafir.
Kirkjudagar hafa undanfarið ver-
ið haldnir árlega í Langholtssókn
og jafnan við ágætar undirtektir.
í gær var fyrst guðsþjónusta og
síðan barnasamkoma, en í gær-
kvöldi skemmtun með fjölbreyttu
dagskrárefni, m. a. leikþáttum, ein-
söng, leik klassiskra tónverka á
saxófón með píanóundirleik o. fl.
Var aðsókn með þeim ágætum, að
tvífylla varð húsið.
Kvenfélag safnaðarins annaðist
kaffisölu allan daginn.
Kirkjudagar þessir eru helgaðir
kynningu á kirkjulffinu og eflingu
safnaðarstarfsins, jafnframt því
sem reynt er að afla fjár til kirkj-
unnar og kirkjustarfsins.
Niirnberg-knattspymufélagið þýzka hefir unnið bikarkeppnina
1 V.-Þýzkalandi þrisvar, og átta sinnum hefir það verið Þýzka-
iandsmeistari, síðast 1961, en tapaði í ár fyrir Köln. Myndin
er tekin, þegar Köln skoraði sigurmarkið — raunar eina mark-
ið, sem skorað var í úrslitaleiknum.
Ferðamannastraumur-
inn við Mývatn búinn
Norðurlandsborim byrjaður
Hinn stóri Norður-
landsbor er nú byrjað-
ur að bora á Norður-
landi og var fyrst haf-
izt handa á Ólafsfirði.
Mun hann verða þar
minnst einn til tvo mán-
uði, eftir þeim upplýs-
ingum, sem Vísir hefur
fengið hjá bæjarstjóran-
um þar.
Borunin hófst fyrir viku síð-
an og hafa verið boraðir um
tuttugu metrar, og hefur borun
gengið hálfskrykkjótt og mun
það stafa af því að borinn er
ekki kominn niður á fast. Einn-
ig eru jarðlög harðari þar en
syðra
Borað er á hitasvæði I Garðs-
dal, sem er um 4 km. frá bæn-
um og er það á svipuðum slóð-
um og íbúarnir fá heitt vatn
frá núna. Er ráðgert að bora
tvær holur, 300 og 500 metra
djúpar. Borað er allan sólar-
hringinn og vinna tveir menn
við borinn, sem ganga vaktir.
Dýpsta holan, sem Ólafsfirðing-
ar fá vatn úr núna, er um sjö-
tíu metrar á dýpt.