Vísir - 18.09.1962, Page 13
Þriðjudagur 18. septembar 1962.
VÍSIR
13
Úr ríki náttúrunnar:
örgæsir í kælt 'efum
í hverjum dýragarði-
er eitthvert dýr, sem
vekur sérstaka athygli
og aflar sér meiri vin-
sælda en öll önnur, sem
þar eru almenningi til
sýnis.
Á sumum stöðum eru það
apar, sem verða eftirlæti dýra-
garðsgesta, á öðrum stöðum
fílar, en hvarvetna þar sem
mörgæsir eru til sýni, eru þær
allra dýra vinsælastar. Menn
eiga yfirleitt erfitt með að reka
ekki upp hlátur, þegar þeir sjá
mörgæsirnar kjaga um eins og
virðulega borgara í „kjól og
hvítu“, uppblásna af vissunni
um eigið ágæti, og „gangandi
með hérðunum" eins og komizt
hefir verið að orði um slíkar
fígúrur.
Sálfræðingar hafa reynt að
gera sér þess grein, hvers vegna
mörgæsir eru svo vinsælar í
dýragörðum, og þeir hafa kom-
izt að því að sköpulag þeirra
eigi mestan þátt í því. Fætur
mörgæsanna eru nefnilega svo
aftarlega á skrokknum, að þær
verða að ganga alveg uppréttar,
og fyrir bragðið verða þær í
sem broslegar og virðulegar. En
þótt mörgæsirnar virðist ósköp
merkilegar með sig, eru þær
mjög vingjarnleg dýr og lifnað-
arhættir þeirra allir eru hinir
merkustu.
Sumar geta náð.
60 km. hraða. .
En mörgæsin getur ekki flog-
ið, eins og kunnugt er, og unir
sér bezt í sjónum. Þótt hún sé
klunnaleg í landi, er hún snör
í snúningum í sjónum, og hún
beitir fyrst og fremst vængjun-
um — ef vængi skyldi kalla —
til að koma sér áfram. Minnstu
mörgæsir geta náð 35 km. hraða
í kafi, en Adelie-mörgæsirnar,
sem eru mestu sundgarparnir,
ná hvorki meira né minna en
60 km. hraða. Teygja þær fæt-
urna beint aftur á sundinu, og
hreyfa þá aðeins til að breyta
stefnunni, nota þá sem eins-
konar stýri.
í beinum mörgæsa eru engin
loftho! eins og f beinum annarra
fugla, og þess vegna veitist
þeim auðvelt að kafa. Fitulag
er líka mikið á þeim, svo að
þeim verður ekki kalt, en það
er líka trygging gegn hungri,
því að á þeim tíma, þegar þær
fara úr fjöðrum, sem tekur
nokkrar vikur, geta þær ekki
aflað sér ætis. Annars hefir
Berlil'z-skólinn
tilkynnir
Tungumálanámskeið hefst í lok mánaðarins
og innritun er hafin.
Enska, þýzka, ítalska, franska.
8 manna flokkar og einkaflokkar.
Innritun daglega frá kl. 2—7.
ÖERLITZ-skólinn
Brautarholti 22 . Sími 1 29 46.
fiðrið breytzt um aldirnar og er
líkast hreistri.
Tegundimar
em alls 14.
Aðalheimkynni mörgæsanna
er Suðurskautslandið, og þar er
að finna stærstu mörgæsirnar,
keisara- og konungsmörgæsirn-
ar. Aðrar mörgæsategundir
hafa fylgt hinum köldu
straumum, sem liggja norður á
bóginn og haldið allt til suð-
vesturstrandar Afríku og Chile-
stranda j Suður-Ameríku. Hum-
bolds-mörgæsin, sem er frekar
Iítil, hefir heimkynni sitt undan
ströndum Peru og Chile, en
það em einmitt þær mörgæsir,
sem algengastar em í dýragörð-
um víða um heim, enda er auð-
veldast að handsama þær og
koma þeim til dýragarða, sem
hafa áhuga fyrir þeim. Alls eru
til 14 tegundir mörgæsa.
Þótt mörgæsir séu víða til í
dýragörðum, er mjög erfitt að
hafa sumar tegundir í slíkum
stofnunum. Það á einkum við
keisara- og konungsmörgæsim-
ar, sem geta ekki lifað til lengd-
ar nema í hinu kalda og tæra
lofti Suðurskautslandsins. 1
hlýrra loftslagi verður svo-
nefndur Aspergillus-sveppur,
sem sezt í öndunarfæri þeirra,
þeim fljótlega að aldurtila, því
að ekkert lyf hefir fundizt gegn
veiki þeirri, er hann veldur,
þrátt fyrir ærna leit.
Kælisallr em
mjög nauðsynlegir.
Til þess að hægt sé að halda
lífinu í þessum stóm mörgæs-
um, er nauðsynlegt að reisa
stóra kælisali, sem búnir eru
sérstökum loftsíum, svo að
hættulegir gerlar eða sveppir
komist þar ekki inn. Það var
dýragarðurinn í Berlín, sem
varð fyrstur til að koma upp
slíkum, kældum sal, svo að al-
menningi gæfist Jcostur á að sjá
og kynnast stóm mörgæsunum.
Annars er það eitt helzta
einkenni mörgæsa, að þær em
mjög félagslyndar. Þær em
helzt saman í gríðarstórum
hópum, einkum um varptímann
og meðan þær eru að koma ung-
um sfnum upp. í rauninni þykir
Framhald á bls. 10.
SÝNIN G
á Taylorix-bókhaldsvélum og
vörum tilheyrandi bókhaldi
haldinn í Sýningar-
skálanum, Kirkjustræti 10,
dagana 18.-23. þ. m.
Sýningin er opin daglega frá
13.30-19.
HINIR ÞEKKTU
Telpnaskór
NÝKOMNIR.
LÁRUS G. LÚÐVlKSSON SKÓV. BANKASTR. 5.
Tökum upp í dag rykfrakka, þýzka og íslenzka
Nýtt snið.
Laugaveg 66. Sími 11616.
Röskur
sendisveinn óskast. Vinnutími 8,30 til 12 f. h.
Upplýsingar í prentsmiðjunni Laugaveg 178.
Oogbloðið Vísir