Vísir - 20.09.1962, Qupperneq 10
/
10
V’SIR
^LI u u
í hótel
Paul Getty bandaríski olíu-
kóngurinn sem búið hefur í
stórri höll í nágrenni Lundúna
neyddist fyrir nokkru til að
fiytja í Ritz-hótelið í borginni í
hálfsmánaðatíma. Ástaeðan fyr-
ir því var sú, að allt starfsfólk-
ið í höllinni fór samtímis í sum-
arfrí.
Geimfari hræddur
John Glenn, bandaríski geim-
farinp frægi fór fyrir skömmu
ásamt nokkrum vinum sínum i
stóran skemmtigarð, „Tivoli“ i
bænum Columbus í Ohio. Þeir
vinirnir skemmtu sér ágætlega
þar til að þvi kom að fara í
risastóra teinabraut eða rútse-
bane eins og þær eru kallaðar.
Þá neitaði Genn að fylgja með
og sagði: — Það kemur ekki
til mála, ég verð svo tauga-
veiklaður að fara í teinabraut-
Fer varlega
Franco einræðisherra á Spáni
hefur að undanförnu stefnt að
því að gera lífið í landinu frjáls-
Iegra en það hefur verið. Þó er
sýnilegt að hann vill fara hægt
í sakirnar, sem sést af eftir-
farandi ummælum hans: — Við
skulum byrja með því að leyfa
útgáfu dagblaðs í þeim aðal-
borgum héraðanna, sem ekkert
dagblað hafa.
hana langaði til að sjá hana, en
óskaði eftir því að það væri
tryggt að hún fengi að skoða
sýninguna í friði án ásóknar frá
öðrum gestum.
Sýningarstjórnin ákvað þeg-
ar að leyfa henni að ganga um
sýningarhöllina og fékk enginn
annar að koma inn á meðan svo
að Greta hafði sýninguna fyrir
sig eina. >
Aftur til Hollywood
Diane Varsi heitir 24 ára kvik-
myndaleikkona sem varð fræg
fyrir Ieik sinn í kvikmyndinni
Peyton Place fyrir þremur ár-
um. Eftir leikinn í þeirri kvik-
mynd fór hún frá Hollywood og
sagði að sig langaði ekki til að
koma aftur. Síðan hefur verið
lausung á henni og hefur hún
á þessum stutta tíma lent í tveim
ur hjónaskilnuðum, en er nú gift
iistamanninum Michael Haus-
mann. Fyrir nokkru sneri hún
aftur til Hollywood og er að
hefja leik í nýrri kvikmynd.
í Englandi fór nýlega fram
keppni meðal stangaveiðimanna
höfðu stolið um 500 þúsund kr.
úr skrifstofu verksmiðju einnar.
Þjófnaðaraðferðin var dálítið ó-
Ein á sýningu
Greta Garbo var einu sinni
frægasta leikkóna í heimi, en
æði langt er nú liðið síðan hún
Var upp á sitt bezta, því að það
var á árunum fyrir heimsstyrj-
öldina. Hún býr á Bláétröndinni
í Suður-Frakklandi og er enn
mikils metin eins og þessi smá-
saga sýnir.
í borginni Cannes var opnuð
tónlistarsýning og lét Greta
stjórn sýningarinnar vita, að
í ðnni Catmanhay. Ekki virðist
veiðin vera mikil á þessum slóð-
um, því það var 30 gramma
fiskur sem færði einum veiði-
manninum sigurinn. Það er eini
fiskurinn sem veiddist í keppn-
inni.
Slegizt með ólum
Jomo Kenyatta forsætisráð-
herra Kenía í Austur-Afríku hef-
'yr verið á ferðalagi um land
sitt og flutt pólitískar ræður.
Oft hefur verið æði róstusamt á
fundum hjá honum og hafa
menn einkum slegizt með mitt-
isólum sínum. Kenyatta tók þá
það ráð að láta safna saman
mittisólum allra, sem komu á
fund hjá honuni. Varð sá fund-
ur friðsamlegur, en hins vegar
hófust átök eftir á þegar búið
var að skila mönnum mittisól-
unum.
Barátta gegn sjónvarpi
Barry Goldwater heitir hægri-
sinnaður öldungadeildarþingmað
ur f Baiidaríkjunum, sem þekkt-
ur er m.a. fyrir árásir sínar á
Kennedy forseta. Hann hefur
nú fengið nýtt verkefni. Hefur
hann byrjað herferð gegn hinum
íélegu bandarísku sjónvarpskvik
myndum og krefst þess að tek-
ið verði í taumana og stöðvað-
ar hinar enídalausu sjónvarps-
sýningar á glæpamyndum og
öðru ómerkilegu og hættulegu
rusli í sjónvarpinu, sem hann
kallar mannskemmandi.
í Stockton, bæ í Englandi, voru
tveir þjófar teknir fastir. Þeir
venjuleg, þeir höfðu stungið ryk
sugupípu inn í loftræstingar-
leiðslu skrifstofunnar og látið
ryksuguna sjúga til sín pening- /
ana. |
í franskri kvikmynd ^
Hildegard Knef hin fræga
þýzka kvikmyndaleikkona er nú
að hefja leik í nýrri kvikmynd
fyrir franskt kvikmyndafélag.
Hér er um áð ræða spennandi
njósnakvikmynd og leikur Hilde
gard á móti Laurent Terzieff.
Litlar bætur
Nubar Gulbenkian heitir einn
auðugasti maður heims, sem á
mikinn hlut í olíulindum í Persíu
og í sumum stærstu olíufélög-
unum. Hann fór nýlega í meið-
yrðamál við brezka útvarpið
BBC og fékk grgj^dar í rrieið-
yrðabætur tvö sterlingspund
eða um 240 krónur. Málsóknin
hefur hins vegar kostað hann
um 50 þúsund krónur.
Rætt við ávaxtasala
Lyndon B. Johnson varaforseti
Bandaríkjanna var nýlega á ferð
í nálægum Austurlöndum. Hann
kom m.a. til Beirut höfuðborgar
Smárikisins Libanon. Þar bað
hann bílstjórann um að nema
staðar úti á götu og gekk til
ávaxtasala, sem var að selja
melónur við gangstéttina. Hann
ræddi við ávaxtasalann og lét
túlk sinn segja honum, að Banda
ríkin styddu sjálfstæði Libanon.
Prinsessa fæðist
Latifa drottning Marokko,
kona Hassans II konungs, eign-
aðist í Rómaborg dóttur, sem
var gefið nafnið Marjam.
í Ástralíu var inaður nokkur sem
kjörinn liafði verið bezti eigin-
maður ársins, I sjónvarpsþætti
einum handtekinn. Ástæðan var
sú, að kona ein i Englandi hafði
séð hinn ástralska þátt í sjón-
varpi í Englandi. Þekkti hún að
hinn hamingjusami eiginmaður
var hennar eiginmaður, sem
strokið hafði tii Ástralíu og
kvænzt annarri þar. Hefur mað-
urinn nú verið kærður fyrir tvi-
kvæni.
Fimmtudagur 20. sept. 1962.
Adenauer hótað
samstarfsslitum
Frjálsir demókratar í
Vestur-Þýzkalandi heimta
nú, að dr. Adenauer hverfi
úr embætti kanslara eigi
síðar en haustið 1963, ella
verði samvinna þeirra við
hann um stjórn landsins
úr sögunni.
Það er sjálfur foringi Frjálsra
demókrata, dr. Erich Mende, sem
skýrði svo frá s.l. mánud. að ráð-
herrar flokks hans, fimm talsins,
mundu fara úr stjórn dr. Adenau-
ers, ef hann drægi sig ekki i hlé
að ári liðnu. Dr. Mende sagði, að
ekki kæmi til mála, að gerður yrði
nýr samningur um samvinnu
flokkanna, svo að dr. Adenauer
gæti setið lengur í sæti kansl-
ara.
Eftir þingkosningarnar í septem-
ber á s.l. ári sagði dr. Mende —
en flokkur hans var í oddaaðstöðu
eftir kosningarnar —- að flokkur
hans mundi „aldrei“ fallast á
stjórnarsamvinnu undir forsæti dr.
Adenauers. Frjálsir demókratar
sáu sig þó um hönd, þegar „sá
gamli“ ritaði þeim bréf, þar sem
hann kvaðst mundu víkja fyrir nýj-
um manni fyrir kosningarnar 1965.
Adenauer vildi hins vegar ekki á-
kveða dag varðandi afsögn sína,
þótt dr. Mende legði fast að hon-
um.
Mende lét þess einnig getið í
sambandi við þessi ummæli sín
um dr. Adenauer, að flokkur hans
mundi styðja dr. Ludvig Erhard,
efnahagsmálaráðherra Þýzkalands, t
sem næsta kanslara.
Hafnarskilyrði í
Bolungarvík bætt
Nýlega iauk framkvæmdum við
brimbrjótinn í Bolungarvík, en unn
ið var að endurbótum á honum í
allt sumar. — Hefur hann verið
breikkaður talsvert, rammað niður
með honum um 70. metra langt
stálþil og dýpkað meðfram garð-
inum.
Enn fremur hefur verið byggður
hér nýr varnargarður utanvert við
brimbrjótinn í stað þess er brotn-
aði í aftaka brimi síðastliðinn vet-
ur.
Alls hafa þessar framkvæmdir í
sumar kostað 6 milljónir króna, en
með þessum aðgerðum hefur öll
aðstaða fyrir skip og báta til að
athafna sig við brimbrjótinn batn-
að að miklum mun.
Verkfræðingur hafnarinnar er
Guðmundur Gunnarsson, en yfir-
verkstjóri Sverrir Björnsgon.
Skólastjórar vilja
bætt launakjör
Aðalfundur Skólastjóraféiags
íslands var haldinn laugardag-
inn 15. sept. 1962 í Mýrarhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi. Mættir
voru skólustjórar viðs vegar að
af Iandinu. Fundurinn ræddi
m.a. launamál skólastjóra, er-
indisbréf og ýmis félagsmál.
Gerð var eftirfarandi áiyktun
um launamál:
Aðalfundur Skólastjórafélags Is-
lands haldinn 15. sept. 1962 telur
launakjör skólastjóra almennt í
landinu algerlega óviðunandi. Bend
ir fundurinn á, að launakjör ís-
lenzkra skólastjðra séu meira en
helmingi lægri en starísbræðra
þeirra á Norðurlöndum og miklu
lægri en í flestum öðrum menn-
ingarlöndum heims. Væntir fund-
urinn þess eindregið, að leiðrétt-
ing á þessu fáist, þegar ný launa-
lög verða sett, en jafnframt felur
fundurinn stjórn félagsins að vinna
að því, að skólastjórar fái sann-
gjarnar launauppbætur nú þegar
Fundurinn vill í þessu sambandi
minna á, að þá sjaldan sem kenn-
arar hafa fengið einhverjar launa-
bætur, hafa skólastjórar gleynizt,
og nú sé því þannig komið málum
að sáralítill og sums staðar enginn
launamunur er á skólastjórum og
kennurum. Virðist nú svo, að
ábyrgð og skyldur skólastjóra séu
að engu metnar.
Þá vili fundurinn enn fremur
vekja athygli fræðslumálastjómar-
innar á hinum erfiða og langa
starfsdegi skóiastjóra í heimavist-
arskolum landsins og hve launa-
kjör og starfsskilyrði þeirra eru
bágborin. Telur fundurinn að heppi
legt væri, að sérstaklcga þjálfaðir
kennarar i æskulýðs- og tómstunda
störfum tækju við gæzlu og eftirllti
nemenda, begar daglegri kennslu
ei Iokið.
Þá ræddi fundurinn enn fremur
kennaraskortinn og staðaruppbæt-
ur til kennara í ýmsum byggðar-
lögum landsins.
Taldi fundurinn ekki nema eðli-
legt að sveitar- og bæjarfélög færu
þessa Ieið, til þess að fá hæfa
starfskrafta, til kennslu í skólum
Iandsins, en skoraði hins vegar á
fræðslumálastjórn að vinna að þvi,
að þeim kennurum, sem enn halda
tryggð sinni við skóla og heima-
byggð, verði bættur upp launamis-
munur, sem skapast vegna kapp-
hlaupsins um kennara.
/