Vísir - 20.09.1962, Side 11
KiRBYANPAN
/NTRUPERAT
THE APARTMENT
OF /NACE
MARSH RACE
TOWARC? THE
BRINK OF DEATh
‘ " ■ "r'y '
Fimmtudagur 20. sept. 1962.
VÍSlR
Frá <venfélagi Háteigssóknar:
Hin árlega kaffidrykkja félagsins
er á sunnudaginn kemur, 23. þ.m.
f Sjómannaskólanum. Þær k'onur
sem hafa hugsað sér að gefa kök-
ur eða annað til kaffiveitmpanna.
eru vinsamlega beðnar að koma
því í Sjómannaskólann á laugar-
dag k! 4-5 sfðdegis eða fyrir j
hádegi á sur.nudaginn. Upplýs-
ingar í síma 11834 og 17650 I
Slysavarðstofan i Heilsuverndar-
stöðinni er opin allan sólarhring
inn. — Næturlæknir kl 18—8.
sfmi 15030.
Neyðarvaktin, sfmi '1510, hveni
virkan dag, nema laugardaga. kl
13-17.
Næturlæknir vikunar 15—22.
september er í Vesturbæjarapóteki
IÍTVARPIÐ
Fastir liðir eins og venjulega.
18.30 Óperulög. 20.00 Tónleikar.
20.15 Vísað til vegar: Haldið I
Þykkvabæinn (Auðunn Bragi
Sveinsson skólastjóri). 20.35 Ein-
söngur: Mark Reizen syngur at-
riði Ur óperunni „Boris Godúnoff1
eftir Moussorgsky. 21.00 Ávextir:
III. erindi: Kirsuber, vínber, fíkjur
N.k. laugardag verður mið-
nætursýning á Rekkjunni í Aust'
urbæjarbíói og hefst sýningin I
kl. 11.30 um kvöldið. Þessi sýn-
ing verður á vegum Félags ís-1
lenzkra leikara og rennur allur
ágóði af sýningunni í styrktar-'
sjóð félagsins. Rekkjan hefur |
nú verið sýnd 85 sinnum hér á (
landi og er óhætt að fullyrða j
að fá leikrit hafa orðið jafn vin-
sæl. Leikurinn hefur verið sýnd I
ur í sumar í flestum samkomu-
húsum Iandsins við ágæta að- (
sókn. Þetta verður síðasta sýn-
ing ieiksins.
Myndin er af Gunnari Eyjólfs
syni og Herdísi Þorvaldsdóttur I
í hlutverkum sfnum.
Stjörnuspó
og Glifur (Sigurlaug Árnadóttir).
21.15 „Ameríkumaður í parls“,
hljómsveitarverk éftir Gershwin
21.35 Úr ýmsum áttum (Ævar R.
Kvaran). 22.10 Kvöldsagan: „1
sveita síns andlits" eftir Momku
Dickens; II. (Bríet Héðinsdóft.ir).
22.30 Djassþáttur (Jón Múli Árna-
son). 23.00 Dagskrálok.
Föstudagur 21. september. ,
Fastir liðir eins og venjulega.
18.30 Vmis þjóðlög. 20.00 Efst á
baugi (Björgvin Guðmundsson og
Tómas Karlsson). 20.30 Frægir
hljóðfæraleikarar: XV: Nathan
Milstein fiðluleikari. 21.00 Upplest
ur: Andrés Björnsson les kvæði
eftir Einar Halldórsson. 21.10 Tón
leikar. 21.30 Útvarpssagan: „Frá
vöggu til grafar“ eftir Guðmund
G. Hagalín; XIII. (Höfundur les).
22.10 Kvöldsagan: „I sveita síns
andlits“ III. (Bríet Héðinsdóttir).
22.30 Á síðkvöldi: Létt-klassísk
tónlist. 23.05 Dagskrálok.
ójq-i
-ðí9
Það er alveg hræðiiegt, að manni
skuli vera trúað fyrir slíku leyndar
máii. einmitt daginn, sem síminn
er bilaður.
Gullkorn
Eins og hindin, sem þráir vatns
lindir, þráir sál mín þig, ó Guð.
Sál mína þyrstir eftir Guði, hinum
lifandi Guði. Hvenær mun ég fá að
koma og birtast fyrir augliti Guðs.
Sálm 42. 2-3.
Te/c/ð á móti
tilkynningum í
bæjarfréttir kl.
2—4 siödegis
mo
Hrúturinn, 21.marz til 20. apríl:
Dagurinn mjög hagstæður sér-
staklega að því er varðar heim-
ilislífið. Þú ættir að hafa teeki-
færi til að gera mikið í þágu heim
ilisins til bóta.
Nautið, 21. april til 21. maí: Þú
ættir nú að láta vini þína og
kunningja vita skoðanir þínar og
sjónarmið á hlutunum. Þeir munu
nú hafa fullan skilning á hags-
munamálum þínum. Smá ferðalag
er nú mjög líklegt.
Tvíburarnir, 22. maí til 21. júní:
Þú ættir nú að leitast við að ná
meiri tekjum út úr starfi þínu
heldur en þú hefur gert til þessa.
Nú ætti að vera auðvelt að tala
við yfirmanninn um einhverja
kauphækkun eða ívilnun í starf-
inu. Hann mun að öllum líkind-
um taka málaleitan þinni vel.
Krabbinn, 22. júni til 23. júlí: Þú
ert nú í sviðljósinu ef svo mætti
að orði kveða f þeim hópi manna,
sem þú umgengst. Þú ættir því
tr
Islenzk stefna
Félag Nýalssinna hefur að nýju
hafið útgáfu á tímaritinu íslenzk
stefna, sem byrjaði að koma út
fyrir 11 árum, en hefur að veru-
legu leyti legið niðri síðan. Nú
lofa útgefendur að ritið muni koma
út regiulega framvegis. Ritstjóri
er Þorsteinn Guðjónsson.
Félag Nýalssinna berst sem kunn
ugt er fyrir kenningum Dr. Helga
Pjeturss um framhald lífs á
öðrum hnöttum og mikilvægi
hugsanlegs sambands lífvera milli
jarðstjarna, í upphafi hins nýút-
komna heftis minnist Þorsteinn
Jónsson frá Úlfsstöðum Dr. Helga
Pjeturss, á þessu ári eru 90 ár
liðin frá fæðingu hans. Að öðru
leyti eru megin ritgerðir 1 heftinu
um sambandssálfræði eftir Þor-
stein Þorsteinsson, Lausn gátunnar
um líf og dauða eftir Þorstein Jóns
son og Endurholgun og líffræði
eftir Svein Þ. Víking. Ýmsar fleiri
greinar eru í heftinu þ.á.m. eftir
ritstjórann.
Skipin
Hafskip hf. Laxá er á Akranesi
Rangá er á leið til Islands.
að eiga auðvelt með að vera frum
legur í orði og athöfn við að
koma verkefnunum áfram.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Deginum væri bezt varið með því
að taka lífinu sem mest með ró
því þreyta leitar nú á þig. Sama
er að segja um kvöldið, að lestur
góðrar bókar heima fyrir væri
hentugastur.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Skemmtilegur dagur og kvöldið
í hópi vina og kunningja eða í
samfélagi við einhverja samkomu
til skemmtana eða fróðleiks. Þú
ættir að taka félaga eða maka
með.
Vogln, 24. sept. tii 23. okt.: Yfir-
maður á vinnust. mun taka mjög
vinsamlega afstöðu til gerða
þinna í dag og að öllum Iíkum
Iviina þér eitthvað fyrir vel unnin
störf.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Góð
ar fréttir gera sitt til að dagurinn
geti orðið sem ánægjulegastur.
Ferð á skemmtistaði I kvöld er
mjög líklegt með góðum árangri.
Bogamaðurinn, 23. nóv. tll 21.
des.: Fjármáiin virðast nú hafa
mjög heillarík áhrif á góðan anda
á heimilinu, þar eð samkomu-
lag ríkir um á hvern hátt hentug-
ast verði að prýkka það.
Steingeitin, 22. des. til 20. jan.:
Smá ferðalag með félaga eða
maka er mjög líklegt í dag. Hag-
stæðar afstöður til bókmennta-
legra kynna náms og fróðleiks-
leitar. Segðu fólkinu skoðanir
þínar.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.:
Þér ætti að bjóðast gott tækifæri
til að auka tekjur þfnar og jafn-
vel að sinna eignum þfnum ef
einhverjar eru þannig að til hag-
sældar stefni
Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz:
Það ætti að geta legið með betra
móti á þér undir þessum afstöð-
um, því margt gengur þér nú í
haginn. Skemmtiferð er mjög lík-
leg f kvöld á kvikmyndahús eða
danshús.
Kirby og hinn óboðni eestur
í íbúð Inace Marsh hlaupa fram á brún dauðans.