Tölvumál - 01.02.1995, Qupperneq 8
Febrúar 1995
Siðareglur Skýrslutæknifélags íslands
Góðir siðir teljast:
- að koma heiðarlega fram við viðskiptavin, seljanda búnaðar, vinnuveitanda,
launþega, keppinauta, samstarfsaðila, opinbera aðila eða almenning í landinu
og hvorki skaða viljandi né notanda vafasama starfshætti;
- að dreifa ekki upplýsingum sem veittar eru í trúnaði eða misnota þær;
- að virða höfundarétt, vörumerki, einkaleyfi og annan huglægan rétt;
- að upphefja ekki sjálfan sig á kostnað annarra og taka tillit til annarra;
- að beita ekki illkvittni eða röngum ásökunum;
- að hlíta lögum og reglum um viðskiptahætti;
- að taka ekki við þóknunum eða fríðindum frá þriðja aðila nema samþykki
verkkaupa komi til, þegar unnið er sem verktaki eða ráðgjafi.
Æskilegt er talið:
- að auka færni sína sem mest á hverjum tíma;
- að auka orðstír félagsins;
- að miðla af faglegri reynslu sinni á vettvangi félagsins.
Samþykkt á aðalfundi 1992
Ný stjórn Skýrslutæknifélags íslands
Aftari röð frá vinstri: Heimir Sigurðsson, varamaður; Bjarni Ómar Jónsson, féhirðir; Haukur
Oddsson, formaður; Þórður Kristjánsson, meðstjórnandi; GuðniB. Guðnason, varamaður. Fremri
röð frá vinstri: Svanhildur Jóhannesdóttir, framkvœmdastjóri; Laufey Erla Jóhannesdóttir,
skjalavörður; Laufey Asa Bjarnadóttir, varaformaður, Douglas Brotchie, ritari.
8 - Tölvumál