Tölvumál - 01.02.1995, Page 11
Febrúar 1995
JP.-
This map may be obtained via anonymous ttp
(rom ftp.cs.wisc.edu, connectivity table directory
Copyright©1994
Larry Landweber
and the Internet Society.
Unlimited permission to
copy or use is hereby granted
subject to inclusion of
this copyright notice.
INTERNATIONAL CONNECTIVITY
Version 11 -7/11/94
[3 Internet
■ Bitnet but not Internet
□ EMail Only (UUCP, FidoNet, or OSI)
I J No Connectivity
V
J
tengingarnar við ARPANET, til
Englands og Noregs. Hjá
frændum okkar Norðmönnum var
tengingin hjá Kongsberg
Vápenfabrik, enda var hér enn utn
hernaðarlegt rannsóknarverkefni
að ræða.
Arið 1974 var forskrift sett
fram um gerð Transmission Con-
trol Program (TCP), stýriforrits
fyrir pakkasendingar. Bandarískt
fyrirtæki, sem unnið hafði að
rannsóknum fyrir ARPA (BBN),
stofnaði Telenet, viðskiptaútgáfu
af ARPANET, á því sama ári. Og
á árinu 1976 var UUCP forritið
(Unix-to-Unix CoPy) þróað hjá
AT&T og dreift með Unix stýri-
kerfinu ári seinna. Þremur árum
síðar var USENET ráðstefnu-
kerfinu komið á fót, og efninu
dreift með aðstoð UUCP. ARPA
stofnaði á því sama ári netstjórnar-
nefndina Internet Configuration
Control Board (ICCB).
Skammt var stórra högga á
milli, og í kringum 1980 sóttust
aðrir vísindamenn en þeir sem
stunduðu hernaðarrannsóknir
einnig eftir netsamskiptum. Árið
1981 voru BITNET (Because Its
Tinte NETwork) og CSNET
(Computer Science NETwork)
stofnuð til að þjóna vísinda-
mönnum við háskóla án ARPA-
NET aðgangs. BITNET notaði
RSCS forskriftir frá IBM og veitti
póst- og póstlistaþjónustu, en
CSNET notaði RFC forskriftirnar
frá ARPANET. Árið eftir, eða
1982, voru settir fram Internet-
staðlarnir Transmission Control
Protocol (TCP - sem breytir sendi-
skrá í straum af sendipökkum og
tengir viðtökupakka saman í
viðtökuskrá) og Internet Protocol
(IP - sem sér um að beina pökk-
unum rétta leið) og teknir upp á
ARPANET og hjá varnar-
málaráðuneti Bandaríkjanna.
Internet var þá skilgreint sem tengd
net er nota TCP/IP. Sama ár var
EUnet stofnað af EUUG (Euro-
pean Unix User Groups), Sam-
tökunum Unix notenda í Evrópu,
til að veita póst- og ráðstefnu-
þjónustu.
Árið 1983 var nafnaskrárþjónn
þróaður, og þar með var ekki
lengur nauðsynlegt að þekkja
nákvæma leið milli netkerfa, til að
koma boðum á milli. Gamli NCP
staðallinn var einnig endanlega
lagður af og eingöngu notað TCP/
IP. Brú var sett upp milli ARPA-
NET og CSNET, og MILNET
(lokað netkerfi hersins) klofið út úr
ARPANET. Sama ár sjá vinnu-
stöðvar dagsins ljós, og aðstæður
skapast fyrir staðarnet sem tengjast
beint sín á milli án milligöngu
stórtölva. Einnig var Internet Ac-
tivities Board (IAB) stofnað og
Berkeley háskóli gaf út BSD-Unix
útgáfu 4.2, sem innifól TCP/IP.
Hér var um ókeypis stýrikerfi að
ræða sem gekk á mörgum gerðum
tölva og útbreiðsla þess víða um
Tölvumál - 11