Tölvumál - 01.02.1995, Blaðsíða 12
Febrúar 1995
lönd varð eftir því. EARN (Euro-
pean Academic and Research
Network) netkerfið var sömuleiðis
stofnað árið 1983, en það vinnur
mjög svipað og BITNET skv.
forskriftum frá IBM. Ári síðar var
tölvunafnaþjónusta með Domain
Name Server (DNS) kynnt.
Nettengdar tölvur fóru yfir 1.000
árið 1984.
...og innanlands líka
Nú var skammt að bíða þess að
einhverjar sögur færu af netmálum
á íslandi. Árið 1986 var NSFNET
(National Science Foundation
NET) stofnað í Bandaríkjunum, og
tók það við hlutverki ARPANET
að úthluta netföngum. Network
News Transfer Protocol (NNTP)
forskrift var gerð til að auka afköst
Usenet ráðstefnukerfis. Mail Ex-
changer (MX) færslur voru
skilgreindar til póstskipta við
netkerfi án IP forskriftar. Og á
þessu sama ári gerist hvort tveggja
í senn, að Hafrannsóknastofnun
tekur í notkun UUCP tengingu við
EUnet (með mótaldi um Amster-
dam) undir hatti ICEUUG - Félags
Unix notenda á íslandi og forustu
Gunnars Stefánssonar, og Reikni-
stofnun Háskólans (RHI) setur upp
EARN samband og X.400 sam-
band.
Nokkur skriður var nú kominn
á þróun netmála og 1987 fara
nettengdar tölvur á Internet yfir
10.000. Tölvur tengdar BITNET
fara á sama ári yfir 1.000. Og
Einar J. Skúlason gefur Reikni-
stofnun sína fyrstu Unix vél.
Reiknistofnun tengist Hafrann-
sóknastofnun með UUCP. Og á
sama árinu eru Samtök um upp-
lýsinganet rannsóknaaðila á Islandi
(SURÍS) sett á fót, einkum til að
stuðla að notkun OSI staðla á
Islandi. ISnet er stofnað sem net
undir stjóm ICEUUG, félags Unix
notenda. Nafngiftum undir .is
svæðinu er úthlutað til SURÍS og
ISnet tekur upp svæðisnetföng (do-
main addressing).
Árið eftir, 1988, grefur Internet
ormurinn um sig, og hefur áhrif á
um 6.000 af um 60.000 tölvum á
Internet. Varnarmálaráðuneyti
Bandarfkjanna veðjar á OSI (Open
Systems Interconnect) samskipta-
staðla og lítur á TCP/IP sem
millibilsástand. Þáhefur ISnet 10
aðila tengda. Fyrstu IP netföngum
er úthlutað til SURÍS. Hafrann-
sóknastofnun og Reiknistofnun
Háskólans taka upp TCP/IP
staðal. Norræna rannsóknanetið
NORDUnet er sett á laggirnar með
styrk frá Norrænu ráðherra-
nefndinni. EARN sambandið, sem
byggst hafði á styrk og gjafatölvu
frá IBM, er lagt niður.
Árið 1989 fara nettengdar
tölvur á Internet yfir 100.000.
Grunntengingar á NFSNET fara í
1,5 Mbps bandvídd (Tl).
Evrópskir netþjónustuaðilar stofna
RIPE (Reseaux IP Europeens) til
að tryggja nauðsynlega sam-
ræmingu fyrir evrópskt IP netkerfi.
Fyrstu tengingarnar er settar upp
milli tölvupóstfyrirtækja á
viðskiptagrundvelli og Internets.
Tækni- og rannsóknanefndirnar
Internet Engineering Task Force
(IETF) og Internet Research Task
Force (IRTF) verða til undir Inter-
net Activities Board (IAB), til
frekari þróunar á netkerfinu.
CSNET og BITNET sameinast í
rannsókna- og menntanetinu
CREN. Á íslandi tekur Reikni-
stofnun Háskólans við rekstrinum
á ISnet undir hatti SURÍS og hættir
rekstri X.400 gáttar. Sama ár er
tölva SURÍS, isgate.is, sett upp
með styrk frá Rannsóknaráði.
Útlandasambandið er flutt frá
EUnet til NORDUnet (með IP yfir
X.25 um Kaupmannahöfn). ISnet
verður hluti af Internet. Grunn-
skólinn á Kópaskeri tengist við
ISnet. 40-60 tölvureru tengdar net-
inu á íslandi.
Ári síðar, eða 1990, er ARPA-
NET loks formlega lagt niður.
Archie og Hytelnet leitarforritin
verða til um þær mundir. Hér
heima er þjónusta fyrir tölvunöfn
(DNS) á .is svæðinu flutt á
isgate.is, tölvu SURÍS, og 9,6 kbps
föst lína til NORDUnet í Stokk-
hólmi tekin í notkun. SURÍS gefur
út handbók fyrir notendur.
Nú er að komast skriður á
notkun netsins í viðskiptalegum
tilgangi, og 1991 er fyrirtækið
Commercial Internet eXchange
(CIX) Association, Inc. stofnað af
fyrirtækjum bakvið viðskiptanetin
CERFnet, PSInet og AlterNet.
Wide Area Information Servers
(WAIS) og Gopher forritin verða
til. Á íslandi gerist það helst, að
Skrifstofa Alþingis tengist við
ISnet.
Árið 1992 er Internet Society
(ISOC) stofnað. Og hjá evrópsku
rannsóknastofnuninni CERN
kemur World-Wide Web, eða
Vefurinn, fram. Nettengdar tölvur
á Internet fara yfir 1.000.000.
Grunntengingar á bandaríska
vísindanetinu NFSNET fara í 45
Mbps bandvídd (T3). Fyrsta hljóð-
og myndfjölvarpið fer fram á
netinu. Netstjórnarnefndin Intemet
Activities Board breytist í Intemet
Architecture Board og fellur undir
Internet Society. Og á Islandi er
föst lína til NORDUnet í Stokk-
hólmi uppfærð í 56 kbps bandvídd.
Siðareglur (Acceptable Use
Policy) eru settar fram fyrir ISnet.
Enn færumst við fram um eitt
ár. 1993 stofnar Vísindaráð
Bandaríkjanna (NSF) þjónustu-
miðstöðina InterNIC til að veita
efnisskrár-, gagnagrunns-, skrán-
ingar- og upplýsingaþjónustu á
Internet. Sameinuðu þjóðirnar og
Alþjóðabankinn nettengjast. Mo-
saic forritið fer sem eldur um sinu
á Internetinu og veldur yfir
300.000 % aukningu á World-
Wide Web umferð á ársgrundvelli.
Samsvarandi aukning á Gopher
umferð er 1.000%. Hér heima
tengist Islenska menntanetið við
ISnet með fyrsta sambandinu um
Háhraðanet Pósts og síma.
Stjórnarráðið tengist við ISnet,
einnig um Háhraðanetið.
12 - Tölvumál