Vísir - 28.09.1962, Page 3
Föstudagur 28. september 1962.
V'ISIR
3
Rafstrengur
Draumur Vestmanna-
eyinga hefur rætzt. —
Margra ára baráttumál
þeirra er að komast í
framkvæmd með lagn-
ingu neðansjávarraf-
strengs úr landi til Eyja.
Það er um leið ein af
merkustu framkvæmd-
um hér á landi og nýjar
brautir ruddar með
henni.
Fyrir Vestmannaey-
inga þýðir hún meira
öryggj, en fram til þessa
hafa þeir orðið að fram-
leiða allt sitt rafmagn
með díselrafstöð- En
með því að tengjast raf-
orkukerfi Sogsins hlýtur
aðstaða þeirra að batna
og skapast betri undir-
staða fyrir ýmiss konar
iðnað.
Myndsjá Vísis birtir í dag
nokkrar myndir frá lagningu
rafstrengsins í Vestmannaeyj-
um. Hér var um erfitt verk að
ræða, þar sem eini staðurinn
til landtöku var norðan við hafn
armynnið hjá Yztakletti og
varð því að leiða strenginn um
háa og snarbratta kletta,
Á myndunum hér sést, hvern
ig háspennuvírarnir eru leiddir
á staurum upp eftir hiíðum
Heimakletts. /. eindálka mynd
er Árni B. Johnsen og heldur
um háspennuvírinn, sem notað-
ur er og sést þar gildleiki vírs-
ins. Þá koma tvær myndir, sem
sýna háspennuturnana þrjá
niðri á Skansinum, hinu forna
virki Vestmannaeyinga. Á ann-
arri myndinni er Heimakiettur f
baksýn, en á hinni má sjá stærð
turnanna af samanburði við
mennina.
Hér sjást fimm þeirra, sem hafa unnið við framkvæmdina,
en alls munu nær tuttugu hafa starfað við verkið þegar flest
var. Talið frá vinstri: Andrés Eyjólfssori, Jón Aðils, Sigur-
gcir Jónsson, Sigurgeir Jóelsson og Ingi Bóasson. Þeir hafa
verið duglegir við verkið, sem hefur verið erfitt, þar sem
þeir hafa m. a. orðið að klífa Heimaklett upp í 200 metra hæð.