Vísir - 28.09.1962, Síða 6
6
VISIR
Föstudagur 28. september 1962.
Menn koma ao vísu oftast
til St. Augustine í nýtízku
farartækjum, eins og bifreið-
um, flugvélum og jámbraut-
ariestum, en það þykir líka
sjálfsagt að stíga upp i mið-
aldafarartæki“ eins og vagna
af því tagi, sem myndin sýn-
ir, þegar komið er á leiðar-
enda. Menn segja, að „róm-
antíkin“ lifi enn í þessari
borg vestan hafs, en víða
hefur hún ekki getað skotið
rótum, því að hún á svo fátt
sameiginlegt með vélamenn-
ingu nútímans.
St. AUGUSTINE
Elzta borgin í Banda-
ríkjunum, St. Augustine
í Florida, er nú að hefj-
ast handa um undirbún-
ing á að halda 400 ára
afmæli sitt hátíðlegt. —
Það ber upp á árið 1965.
Það voru spænskir landvinn-
ingamenn, sem stofnuðu borg-
ina 1565 — 42 árum áður en
Englendingar stofnuðu James-
town f Virginiunýlendunni, er
hélt í fyrra upp á 350 ára af-
mæli sitt. Spánverjar höfðu
raunar komið þarna miklu fyrr,
því að árið 1513 hafði land-
könnuðurinn Don Juan Ponce
de Leon siglt skipum sínum
þrem inn á höfn þá frá ná'tt-
úrunnar hendi, sem borgin
stendur enn við. Nýtur hún
skjóls af tveim töngum, sem
liggja samhliða frá landi.
Ponce de Leon hafði verið f’
föruneyti Kolumbusar á ann-
arri ferð hans vestur um haf,
en að þessu sinni stjórnaði
hann sjálfur leiðangri. Það var
löngunin í að finna gull og ger-
semar, sem var aðalhvati slíkra
ferða, en auk þess leitaði de
Leon sérstaklega að „æskulind-
inni“, uppsprettu eilífrar æsku.
Þegar hann gekk á land þarna,
gaf hann landinu nafn og kall-
aði „La Florida" (Blómalandið),
jafnframt því sem hann lýsti
yfir því, að hann slægi eign
sinni á það í nafni Spánarkon-
ungs.
En Ponce de Leon varð fyrir
vonbrigðum af komu sinni
þarna. Hann leitaði fimm daga
samfleytt að gulli og yngingar-
lindinni en fann hvorugt. Hann
hélt vonsvikinn á brott og kom
þarna aldrei framar. Röskri
hálfri öld síðar kom Don Pedro
Menendez de Aviles að landi
þarna og sló aftur eign sinni á
landið í nafni Spánarkonungs.
Þann 8. september 1565 stofn-
aði hann til byggðar á öðrum
tanganum og kallaði eftir heilög
um Ágústín, því að hann hafði
eygt landið á nafndegi þess dýr-
lings kaþólskra manná.
Fjölþætt saga.
Þegar Menendez lét úr höfn,
hafði Filippus 2. konungur sett
hann yfir flota, sem átti að
koma f veg fyrir, að aðrar þjóð-
ir gætu tekið land og setzt að í
Norður-Ameríku. Varð þess
vegna að víggirða bæinn, og
með tilliti til þess gat stað-
setning hans ekki verið heppi-;
legri, þar sem hann nýtur vernd
ar þriggja fljóta landmegin, en
fyrir innsiglingunni er lítil eyja,
sem heitir Anastasia. Spánverj-
ar treystu aðstöðu sína auk þess
með því að koma sér upp nokkr
um virkjum með ströndum
fram.
Fyrstu 300 árin var mjög tíð-
indasamt f St. Augustine, enda
oft róstusamt og hörð barátta
háð um hin nýju lönd, sem
fundizt höfðu vestan hafs. Var
oft barizt í borginni eða árásir
gerðar á hana, og voru þar bæði
Indíánar að verki og önnur Ev-
rópuríki, sem girntust Iandið.
Spánverjum tókst hins vegar að
halda borginni í 200 ár, en 1763
urðu þeir að láta hana af hendi
við Englendinga, sem voru þá
að verða voldugasta þjóð heims.
En St. Augustine var þó ekki
lengi undir brezkri stjórn, því
að 20 árum síðar fengu Spán-
verjar staðinn aftur, en tæpum
40 árum eftir það urðu Banda-
ríkjamenn þar húsbændur. En
friðúr færðist ekki endanlega
yfir, þótt nýir húsbændur væru
komnir, er bjuggu auk þess í
sömu álfu, því að St. Augustine
kom enn við sögu á tímum
borgarastyrjaldarinnar. Fyrstu
mánuði styrjaldarinnar var bær-
inn undir stjórn Suðurríkja-
manna, en 1862 komu herskip
að landi og þar voru norður-
ríkjamenn á ferð. Tóku þeir bæ-
inn eftir skamma viðureign, og
höfðu síðan setulið þar til árs-
ins 1865, þegar styrjöldin var
Ioks á enda kljáð með sigri
Norðurríkjanna.
Lengsta baðströnd
í heimi.
Undir lok síðustu aldar kom
vellríkum iðjuhöldi, Henry M.
Flagler, í hug, að hægt mundi
að gera Florida að hinu fyrir
heitna landi ferðamanna. Sneri
hann sér þá fyrst og fremst að
St. Augustine og reisti þar.nokk
ur gistihús handa ferðamönn-
um. Einnig kom hann því svo
fyrir, að járnbraut var lögð
elzta borg Bandaríkjanna
Þetta hús er talið hið elzta
í St. Augustinc, og það er nú
byggðasafn borgarinnar. —
Allur búnaður þar er eins og
hann var endur fyrir Iöngu,
en úti fyrlr húsinu blakta
fjórir fánar — tákn þeirra
ríkisstjórna, sem þar hafa
sagt fyrir verkum. Fánarnii
eru þessir, taldir frá vinstri:
Fáni Bandaríkjanna, Suður-
rikjanna, Englands og Spán-
ar.
suður til borgarinnar, og síðar
var braut sú lengd, svo að hún
náði alla leið til suðurodda
Floridaskaga, Key West.
Þar með var komið upphaf
þess, að þarna mætti dafna
blómlegur rekstur gistihúsa, og
síðan hefur það orðið atvinna
Floridabúa í æ ríkara mæli að
taka á móti ferðamönnum frá
öllum hlutum heims og veita
þeim beina. íbúum hefur ekki
fjölgað neitt að ráði í St.
Augustine, þeir eru aðeins um
30.000, svo að borgin ber enn
svip hins forna tíma, þegar lífið
seig hægt fram eins og lygn
móða. En þangað koma þeim
mun fleiri til að sjá þessa elztu
byggð í Bandaríkjunum. Gestir
skipta þarna hundruðum þús-
unda á ári hverju. Aðeins sex
kílómetra frá borginni hefst 150
metra breið sandfjara, sem
teygir sig hvorki meira né
minna en 80 km. suður fyrir
borgina og er þarna lengsta
baðströnd, sem um er vitað í
heimi. Þar geta menn líka dorg-
að í brimgarðinum, og er bað
vinrœl íþrótt, eins og nærri má
geta, og loks eru skemmtisigl-
ingai algengar.
Eins og á dögum
Filippusar 2.
En menn vilja líka gjarnan
sjá bæinn sjálfan, þótt umhverf-
ið sé aðlaðandi, því að segja
má, að unnt hafi verið að við-
halda þeirri bæjarmynd, sem
var á tímum Filippusar II.
Spánarkonungs, er lét stofna
nýlenduna þarna, þrátt fyrir
hernað og alls kyns ákomur
Stjórnarskrártorg er enn hjarta
borgarinnar, og þar standa
margar fornar kirkjur, og að
auki embættisbústaður spænska
landstjórans, en sú breytirig
hefur þót verið gerð á þeirri
byggingu, að henni hefur verið
breytt í pósthús. En að ytra út-
liti er hún eins og fyrir fjórum
öldum, þegar henni var komið
upp.
Það er notalegur blær yfir
St. Augustine. Göturnar eru
þröngar og steinlagðar, eins og
tíðkaðist í bæjum og borgum
til forna, áður en malbik og
steinsteypa komu til sögunnar.
Gróður er mikill, fjölbreyttur
og fagur, eins og gefur að
skilja, og mörg hinna fornu
húsa eru vaxin vínviði að utan.
Og vínviðurinn er margra alda
gamall, og hann ber ávöxt á
hverju ári „börnum og hröfn-
um að leik“
Elzta hús í
Bandaríkjunum.
Hið opinbera leggur af mörk-
um mikið fé á hverju ári til
viðhalds fornum byggingum i
borginni. Meðal þeirra húsa,
sem mest er hugsað um, er
elzta hús í Bandaríkjunum. Eng-
inn býr i húsi þessu, en þó er
gestagangur þar meiri en víðast
annars staðar í borginni. Hús-
inu hefur nefnilega verið breytt
í safn til minningar um hina
elztu íbúa borgarinnar.
En það eru fleiri en Banda-
ríkjamenn sjálfir, sem hafa lagt
fé af mörkum til viðhalds
fornra bygginga í borginni
Spænsk stjórnarvöld hafa látið
í ljós lifandi áhuga á þvf, að
menjum frá tímum Spánverja
verði viðhaldið eftir mætti, og
einkum voru þau hjálpleg við
að ganga svo frá landstjórabú-
staðnum, að hann yrði að öllum
búnaði eins og tíðkaðist árið
1680, þegar hann var reistur
En þrátt fyrir virðulegan aldur.
meira en 280 ár, er þetta ekki
elzta húsið í borginni.
Framhald á bls. 13.