Vísir - 28.09.1962, Blaðsíða 11

Vísir - 28.09.1962, Blaðsíða 11
Föstudagur 28. september 1962. VISIR n Slysavarðstofan í Heilsuverndar- stöðinni er opin allan sólarhring- inn. — Næturlæknir kl. 18—8, sími 15030. Neyðarvaktin, sími 11510, hvern virkan dag ,nema laugardaga kl. 13—17. Næturvarsla vikunnar 22—29 september er i Ingólfsapóteki Holtsapótek og Garðsapótek eru opin virka daga kl. 9—7, iaugar- daga kl. 9 — 4, helgidaga kl. 1-4. Apótek Austurbæjar er opið virka daga kl. 9-7, laugardaga kl. 9-4 UTVARPIÐ Föstudagur 28. september. Fastir 'liðir eins og venjulega. 18.30 Ýmis þjóðlög. 20.00 Efst á baugi (Tómas Karlsson og Björgvin Guðmundsson) 20.30 Frægir hljóð færaleikarar. 21.00 Upplestur: Hulda Runólfsdóttir les kvæði eftir Einar Benediktsson. 21.10 Dansa- svíta eftir Béla Bartók. 21.30 Ot- varpssagan: „Frá vöggu til grafar“ eftir Guðmund G. Hagalín: XV. (Höfundur les). 22.10 Kvöldsagan: „í sveita síns andlits“ eftir Moniku Dickens: VI. (Bríet Héðinsdóttir). 22.30 Á síðkvöldi: Létt klassísk tónlist. 23.00 Dagskrálok. Laugardagur 29. september. Fastir liðir eins og venjulega 18.00 Söngvar f léttum tón. 18.30 Tómstundaþáttur barna og ung- linga (Jón Pálsson). 20.00 Hljóm- plöturabb (Þorsteinn Hannesson). 21.00 Leikrit: „Vöxtur bæjarins", brosmild satíra fyrir útvarp. Höf- undur: Bjarni Benediktsson frá Hofteigi. — Leikstjóri: Gfsli Hall- dórsson. 22.10 Danslög. 24.00 Dag- skrálok. Ýmislegt Kvenfék.g Hallgrimskirkju. — Kaffisala félagsins er á sunnudag- inn kemur, 30. þ. m.. í Silfurtungl- inu við Snorrabraut. Þær félags- og safnaðarkonur, I sem hafa hugsað sér að gefa kök ur eða annað til kaffiveitinganna, | eru vinsamlega beðnar að koma j því f Silfurtunglið fyrir hádegi á sunnudag. Treystum ykkur að gefa ; rausnarlega og hjálpa til við kaffi söluna eins og vant er. Kvenfélag Laugarnessóknar. Fyrsti fundur á haustinu verður mánudaginn 1. október kl. 8,30 í fundarsal félagsins í kirkjunni. j Konur, sem tóku band til að vinna úr fyrir bazarinn, eru sérstaklega beðnar að mæta. Félagskonur fjöl- mennið. SKIPDII Hafskip hf. Laxá er í Wuk. Rangá er í Reykjavík. Fr«x borgarráðs- fundi Á fundi borgarráðs, sem hald- inn var þriðjud. 25. sept. voru samþ. eftirfarandi tillögur: Tillaga rafmagnsstjóra um að Ellert Árna son verði ráðinn yfirvélstjóri við aflstöðvar Rafmagnsveitunnar og Sogsvirkjunarinnar. Tillaga raf- magnsstjóra um að Jón Ásgeirsson verði skipaður stöðvarstjóri að vatnsaflstöðinni við Elliðaár. Till. gjaldheimtustjóra um að Jakobína Jósefsdóttir verði ráðin gjaldkeri Við Gjaldheimtuna í Rvík. „Blöð og útvarp hafa mikið rætt um ávísanafals og gefið f skyn að nú væri farið að taka þá aðila föstum tökum sem voga sér að gefa út falska ávísun. En nú væri gaman að sýna lesendum svart á hvítu hvernig þessu er framfylgt. Og máli mínu til stuðnings læt ég fylgja með ávísun sem mér var fengin hjá fyrirtæki í sumar. Og auðvitað er fyrirtækið virðulegt og nýtur vafalaust trausts bankans. — Farið var með ávísunina í bankann fyrir mánuði, og þegar í afgreiðsluna kom, gerðist það markverðast að afgreiðslumaður tók ávísunina og stimplaði aftan á hana þau fallegu orð að ekki væri til inni fyrir henni. Svo líður mán- uður og ég rölti niður f banka og nú eru komnir tveir stirhplar á ávís unina. Ég spurði afgreiðslumann- inn hvað ég ætti að gera í mál- inu, en hann sagði mér að koma seinna. Nú bið ég Vísi að koma þessu á framfæri og jafnframt þeirri fyrirspurn til bankans hvers- vegna hann láti slfkt sem þetta við- gangast? Bankinn veit í þessu til- felli að gefin hefur verið út fölsk ávísun en lætur það afskiptalaust. En svo ef einhverjum einstakling verður það á að gefa út ávísun upp á nokkrar krónur sem ekki er til innstæða fyrir, þá vantar ekki rögg semina og mönnum jafnvel hótað fangelsi. Er eftirlit bankanna þá ekki meira en agspur eitt, með við- skiptavinum sínum?" Párið þakkar línurnar og vill að gefnu tilefni taka undir það að það eru því miður, þó nokkur þrögð af því að fyrirtæki gefi út ávfsanir sem engin innstæða er fyrir og væri gaman að fá að heyra hvernig slíkur atburður sem hér er talað um, getur átt sér stað. Þetta er kona forstjórans, svo að okkur er alveg óhætt að stinga af 1 verzlunarferð. Hjónabönd Nýlega voru gefin saman f hjóna band í Dómkirkjunni af séra Óskari J. Þoriákssyni ungfrú Hall- dóra Hafdís Hallgrímsdóttir Drápu hlfð 28 og Gunnar Blöndal Fló- ventsson bifreiðarstjóri frá Sauð- árkróki. Heimili þeirra er að Sauð árkróki. Nýlega voru gefin saman í hjóna band af séra Jakobi Jónssyni Margit Sofie Henriksen hjúkrunar- kona frá Nyborg Danmörku og Árni L. Jónsson húsgagnabólstrari. Heimili þeirra er að Nýbýlavegi 42 Kópavogi. Stjörnuspá morgundupsins E Hrúturinn, 21. marz til 20. apríl: Þú ættir að hitta félaga þína að máli eins og þú getur í dag þar eð hagstæðar afstöður eru til bollalegginga um sameiginleg vandamál. Nautið, 21. apríl til 21. maí: Dag- urinn getur orðið hinn ánægjuleg asti ef þú leitar eftir sámstarfi við meðbræður þína á vinnustað Nokkurrar fljótfærni og óþolin- mæði gætir hjá þér seinnihluta dagsins. Tvíburarnir, 22. maí til 21. júni: Bezti hluti sólarhringsins verður í kvöld en þá ættirðu að geta átt mjög ánægjulegar samræður við þér yngra fólk. Tómstunda- iðja er einnig undir góðum áhrif- um nú. Krabbin.., 22. júní til 23. júlí: Heimilislífið er nú undir sérstak- lega góðum afstöðum og sam- ræður á heimilinu í kvöld ættu að geta orðið mjög uppbyggi- legar. Ljónið, 24. júlf til 23. ágúst: Þú ættir að hafa gott tækifæri til að ræða við nágrannana í dag og kvöld. Einnig virðast ættingjar þfnir koma þó nokkuð við sögu í dag og það á hagstæðan hátt. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.: - Genglð 100 Dar.skar kr. 620,88 022,48 100 Norskai kr. 600,76 602,30 190 Sænskai kr. 835,20 837,35 100 Finnsk mörk 13.37 13.40 100 Franskir fr 876,40 878.64 100 Belgfskir fr. 86,28 86,50 100 Gyllini 1192,43 1195,49 100 Sviscneskir fr 993,12 995.67 00 Tékkneskar kr. 59C.4C 598,00 1000 V-þýzk mörk 1075,34 1078,10 S 1 Sterl.pund 120,38 120,68 1 Jan ríkjad 42,95 43,06 1 Kanadadollar 39,85 39,96 1000 Lfrur 69.20 89.38 Gullkorn Þér hafið ekki séð Hann (Jesú), en elskið Hann þó: þér hafið Hann ekki nú fyrir augum yðar, en trúið samt á hann: þér munuð fagna með óumræðanlegri og dýrlegri gleði: þegar þér náið takmarkinu fyrir trú yðar, frelsun sálar yðar. 1. Pét. 1. 6—8. Hagstætt væri fyrir þig að kaupa þér eitthvað í dag t.d. góða bók eða einhverja aðra uppbyggjandi Iesningu. Einnig gætu ýmsir list- rænir munir komið til greina t.d. úr silfri. Vqgin, 24. sept. til 23. okt.: Persónuleg málefni þín eru undir hagstæðum áhrifum í dag, og því væri hentugt fyrir þig að sinna þeim fremur heldur en mál efnum annarra, jafnvel þó slfkt kœmi þér við. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Þú ættir að heimsækja einhvern sjúkan eða einmana vin þinn í dag eða kvöld þar eð hann mundi vel kunna að meta tillit- semi þína.! Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Þú ættir að sjá eitthvað af vonum þínum og óskum rætast í dag eða kvöld. Félagslífið er undir góðum áhrifum, þar eð vel stendur nú yfirleitt á fyrir kunningjunum. Steingeitinn, 22. des. til 20. jan.: Þú ættir að liðsinna foreldrum þfnum eftir þvf, sem þú hefur aðstöðu til í dag eða þá einhverj um eldri manni eða konu, sem þú þekkir. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.: Fréttir utan af landi eða langt að munu létta skapið til muna f dag. Þú ættir að sinna ósvöruð um bréfskriftunr ef mögulegt er. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz: Ekki er ólíklegt að einhver draum ur næturinnar verði þér minni- stæður f dag og jafnvel að þig hafi beinlínis dreymt fyrir dag- látum. Annars er dagurinn hag- stæður fjárhagslega. Flugvélar Pan American flugvélar komu til Keflavíkurflugvallar f morgun frá New York og London og héldu áfram eftir skamma viðdvöl til þessara sömu þorga. n p K 2 b Carter Campell álítur sig hafa fundið lausnina: „Stella er betri en Inace Marsh og verður þvi í öllu falli stjarnan....“ rnmnnnnHnH You SAY X HAVE TO APP ANOTHER PERSOM TO THE OAST? WHOf Rip Kirby heldur líka að hann hafi fundið lausnina. „Á þessu hóteli er þér alveg óhætt, Inace. Fáðu þér nú blund, á neðan ég fer að tala við Victor Coren...“ „Þakka þér fyrir Rip“. „Þú segir, að ég verði að bæta öðrum manni'í hóp sýningarfólks ins, hverjum-" „Desmond, þjóninum mfnum‘*. M«>!WHBBairag~TO^.teWKgaBBI».«BMha»

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.