Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 13

Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 13
Maí 1996 skeytamiðlarar. Þar eru einnig þjónustustöðvar sem notendur geta hringt í allan sólahringinn. Kerfisstjórar fylgjast með öllum hnútum netsins. Þeir sjá sérstaklega um aðgang notenda að netinu. Þeir dreifa nýjum hugbún- aði til annara hnúta netsins. Kerfis- stjórar koma ekki nálægt þeim skeytum sem send eru. Skeytamiðlarar sjá um að koma skeytum til skila á milli pósthólfa, einnig að taka af þeim afrit. Skeytamiðlarar eru nokkurs- konar beinar (routers). Þeir sjá um ýmisskonar skýrslugerð, t.d. skýrslu sem lætur notanda vita ef einhver skeyti sem hann sendi hafa ekki komist til skila. Þeir geyma einnig upplýsingar sem eru notaðar til að rukka eftir. Talað er um að skeytamiðlari eigi ákveðna notendur. Svæðisstjórar sjá um að taka við og senda skeyti. Þeir sjá um villuleit á innkomnum skeytum. Þessi villuleit felst í því að athuga vartölu skeytanna (checksums) og hvort þau koma inn í réttri röð. Einnig sjá þeir um að staðfesta móttöku eða hafna móttöku á skeytum. Samskiptatölvurnar sjá síðan um tengingar notenda við netið. Tenging við netið Til að tengjast netinu þarf að skrá sig á það og gefa upp not- endaheiti. Notendaheitið er ein- kvæmt heiti sem viðkomandi banki velur sér eftir ákveðnum reglum. Þessi heiti eru ISO staðall sem S WIFT hefur tekið að sér að halda utan um. Nefnast þessi heiti BIC- kódar eða Bank Identifier Code. Heiti Seðlabankanns er t.d. SISL ISRE Tengin samanstendur af tveim skrefum; fyrsta lagi að tengjast viðfangastjóra (Application Con- trol) og í öðru lagi að velja viðfang. í dag nota allir eitt viðfang sem heitir FIN (Financial Application). Fyrra skrefið kallast tenging (login) en það seinna val (select). Þegar notandi tengist netinu þarf hann að gefa upp 2 lykla, slembilykil (random key) og svarlykil (responce key) ásamt viðeigandi raðnúmeri tengingar (login sequence number). Slembi- lykilinn er notaður til þess að reikna út vartölu(checksum eða Message Authentication Code MAC) á tengiskeytið (login mes- sage). Vartalan er sent með skeyt- inu en lykillinn ekki. Þegar SWIFT fær tengiskey tið reiknar það einnig út vartölu en notar til þess sitt eigið afrit af slembilyklinum. Sé vartala sú sama og notandinn sendi þá fær hann aðgang að netinu annars ekki. Tengiskeytinu er svarað með stað- festingar- eða höfnunar-skeyti. Swift reiknar síðan vartölu svar- skeytisins og notar til þess sitt eigið afrit af svarlyklinum. Vartalan er send með svarskeytinu. Notandinn getur þá sannreynt vartöluna, eins og áður var lýst, til að vera viss um að hann er að tala við SWIFT. Swift athugar hvort að raðnúmerið sé rétt og passi miðað við síðasta númer sem notað var. Slembilykillinn og svarlykillinn breytast í hvert skipti sem tengst er SWIFT. Fyrir 2 árum voru þessir lyklar sendir út frá SWIFT á pappírstöflum ekki ósvipað og pin-númer eru send út frá kredit- kortafyrirtækjum. Nú hafa sérstakir kortalesarar og tölvukort (smartcard) leyst pappírstöflumai'af hólmi. Notand- inn setur kortið sitt í lesarann, slær inn 6 stafa pin númer og biður lesarann að reikna út nýja svar- og slembilykla. Lyklana má síðan lesa af skjá kortalesarans og slá inn handvirkt í tölvukerfið sem notað er til að tengjast SWIFT, eða tölvukerfið les sjálft lyklana úr lesaranum. Sama aðferð er notuð við valið (select), þ.e. raðnúmer og slembi- og svarlyklar eru gefnir upp sér- staklega. Notendur tengjast SWIFT að öllu jöfnu með leigðum símalínum. Tölvumál - 13

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.