Tölvumál - 01.05.1996, Side 30
Maí 1996
Af CeBit 96
Eftir Einar H. Reynis
Mekka tölvumanna
Líkt og Múhameðstrúarmenn
verða að fara einu sinni á ævinni
til Mekka, verða tölvumenn að
fara að minnsta kosti einu sinni á
ævinni á CeBIT upplýsingatækni-
sýninguna í Hannover í Þýzka-
landi. Allir sem hafa farið minnast
á stærðina. Á CeBIT 96 var sýn-
ingin í einum 25 höllum og ein
þeirra sem ég ráfaði um var 14.500
fermetrar og síðan má bara marg-
falda út frá því. Það gefur því auga
leið að margt athyglisvert verður
útundan sama hversu mikið er
skoðað og því ekkert skrítið þótt
eitthvað vanti hér.
Sýningarsvæðinu var skipt í
þema og hægt að fara rakleitt
þangað sem til dæmis skrifstofu-
tækni var sýnd eða búnaður fyrir
banka, öryggi, rannsóknir og
tölvutækni í iðnaði (CIM) og því
óþarfi að ráfa mikið um hallirnar.
Af stakri nákvæmni var allt merkt
í bak og fyrir og mögulegt að fá
heilmikla handbók um sýninguna.
Fyrir utan sýninguna var í boði
fjöldinn allur af fyrirlestrum og
einnig voru mörg fyrirtæki með
reglulegar kynningar í eigin
básum.
Allt um
fjarskiptatækni
Ef stefnan er fyrst tekin á fjar-
skiptahallirnar voru stóru síma-
fyrirtækin öll með sýningarsvæði
og sýndu alla línu sína; notenda-
búnaður, símstöðvar af öllum
stærðum og langlínugræjur, bæði
fyrir þráð og án. Þráðlaus notenda-
búnaður var í sviðssljósinu og
stöðvar og símtæki fyrir DECT
(Digitally Enhanced Cordless Te-
lephony) áberandi. Núna er DECT
tæknin komin á það stig að símar
ganga á milli stöðva ólíkra fram-
leiðenda og Ericsson var að auki
með DECT tengingar við fartölvur
og sýndi video á 32.000 b/s á milli
þeirra. Myndin var nokkuð rykkj-
ótt en þetta eru samt tímamót og
bendir til þess að innan fáeinna ára
verði háhraða gagnaflutningur og
myndsendingar mögulegar beint
frá og til fartölva. Ericsson sýndi
einnig frumgerð af sambyggðum
GSM og DECT síma.
Á sýningarsvæði Siemens var
mikið af ýmsum tækjum og tólum
til símarekstrar en inn á milli tækj-
anna var merkilegt fyrirbæri. Þar
var uppsett kort af miðbæ Berlínar
og myndavél á stærð við eldstokk
í snúru. Til hliðar við kortið hafði
verið komið fyrir sjónvarpi og með
sérstökum gleraugum birtist mynd-
in á skjánum í þrívídd. Með því
að hreyfa myndavélina mátti fljúga
yfir borgina eða keyra eftirgötun-
um og sjá öll hús í þrívídd. Alveg
ótrúlega raunverulegt. Hápunkt-
urinn á þessu öllu var þó að keyra
upp að Reichstag þinghúsinu
gamla, „ganga“ upp tröppurnar,
fara inn í húsið og í gegnum þing-
salinn og út hinum megin.
Hug- og vélbúnaður
fyrir samnet
Hug- og vélbúnaður fyrir sam-
net er núna til frá fjöldamörgum
aðilum og fyrir ýmsar gerðir tölva
og stýrikerfa en Windows tölvur
hafa vinninginn í úrvali tækja og
tóla og á það reyndar við allt í hug-
búnaði þar sem NT trónir efst.
Núna er hægt að fá hugbúnaðar-
pakka á einmenningstölvur fyrir
sam-evrópskan skráarflutning sem
kallast Euro-Filetransfer. Það er
kannski tímanna tákn að íkonið
fyrir skráarflutninginn er blái
evrópufáninn.
Nokki'ir aðilar sýndu hugbúnað
fyrir CTI (Computer Telephony
Integration) en með þeirri tækni
má tengja saman símstöðvar og
tölvur þannig að gagnagrunnar eru
ræstir þegar skráðir aðilar hringja
í fyrirtæki. Líklegt er að slík tækni
verði í sviðsljósinu hérlendis á
komandi árum.
Geislatækni - miklir
möguleikar
CD tæknin breiðist hratt út með
nýjum búnaði og er að verða alls-
ráðandi sem miðill fyrir allt. CD-
R (recordable) tæknin er núna út-
breidd og telja margir að slíkur
búnaður muni koma í stað CD-
ROM sem staðalbúnaður í ein-
menningstölvum. Auk þessarar
þróunar í geislatækninni má nefna
svokallað DVD (Digital Video
Disk) ROM og DVD fyrir mynd-
efni. Fyrstu spilararnir fyrir DVD
Video eru að koma á markað og
jafnvel er talið að DVD Video
muni fara fram úr myndbanda-
spólum í sölu á fáeinum árum en
hver DVD diskur, sem er jafnstór
geislaplötum fyrir tónlist, tekur um
30 - Tölvumál