Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 34
Maí 1996
markað í Evrópu og hann vonar
að ekki komi upp fleiri vandamál
líkum þeim sem hann hefur gengið
í gegnum. Það er líklegt að Banda-
ríkin muni bráðlega aflétta tak-
mörkunum á dulmáls-hugbúnaði.
Allur tölvuiðnaðurinn er að vinna
að því að slíkum hömlum verði
aflétt því að fyrirtæki þarlendis
verða af viðskiptum vegna banns
við útflutningi hugbúnaðar sem
notar dulmál.
Zimmermann gefst
ekki upp
Sögulega er dulmál mest notað
í stjórnsýslu og í hernaði. Allir
hafa til dæmis heyrt um það hvem-
ig Enigma dulmál Þjóðverja var
ráðið af Bandamönnum í seinna
stríði. Tölvur voru í fyrstu risa-
stórar og fáar. Núna eru þær alls-
staðar af öllum stærðum og gerð-
um ásamt ýmsum fjarskipta-
tækjum og stafræn fjarskipti eru
núna notuð um allt. Núna er rétti
tíminn til að dulmál fari út úr hem-
aðargeiranum til almennings til
notkunar á Internetinu.
Zimmermann segir að þess sé
skammt að bíða að PGP verði hluti
af tölvupósthugbúnaði og einfalt í
notkun. Núna er hinsvegar vanda-
samt að nota PGP. Lögum sam-
kvæmt er mjög erfitt að hafa hug-
búnað þannig að hann noti dulmál
því að ekki nóg með það að út-
flutningur á dulmálshugbúnaði sé
bannaður heldur líka sá möguleiki
að hugbúnaður noti dulmál því
stjórnvöld í Bandaríkjunum fylgj-
ast mjög grannt með því að stóru
framleiðendurnir geri þetta ekki.
Zimmermann sagði að endingu að
hann myndi aldrei slaka á kröf-
unum.
Philip Zimmermann og
stjórnandi þáttarins I
sambandi, Guðmundur
Ragnarsson, veittu
góðfúslegt leyfi til birt-
ingar á þessum pistli.
Punktar...
Microsoft áfullri
ferð inn á Internet
Nýlega var grein í News-
week um markaðsbaráttuna
milli rápforritana (browsers)
Netscape Navigator frá Net-
scape og Internet Explorer frá
Microsoft. Þó staðan sé þannig
núna að Netscape hafi 85%
markaðshlutdeild og Micro-
soft einungis 7,5% kallar blað-
ið baráttuna á milli fyrir-
tækjanna toss-up, það vill
segja að ekki megi á milli sjá
hvor hafi betur á endanum.
Microsoft hefur alveg kú-
vent í afstöðu til Internet og
fjölgað starfsmönnum í deild-
inni sem vinna að Intemet hug-
búnaði úr fjórum í sex hundr-
uð, sem eru næstum jafnmargir
rnenn og allir starfsmenn Net-
scape. Microsoft rær að því
öllum árum að flétta saman
Windows og Intemet og höfuð-
áhersla er lögð á að fyrirtækið
verði ekki útundan á þessum
markaði enda miklir fjármunir
í húfi. Netscape menn bera sig
þó vel og telja víst að þeir muni
halda forystu því fyrirtækið
verði á undan öðrum með
nýjungar.
Önnur rápforrit skipta á
milli sín hinuin 7,5% af mark-
aðnum. Nýlega kom innslag
frá Apple þegar fyrirtækið
bauð beta-útgáfu af Internet
forritapakka sem kallaður er
Cyberdog og er þar á meðal
að finna rápforrit. Þó seppi sé
enn nokkuð óstöðugur á fót-
unum er það þess virði fyrir
makkanotendur að prófa for-
ritið og bera saman við Inter-
net Explorer og Netscape fyrir
Macintosh.
Stjómvöld víða um heim
hafa áhyggjur af því sem í boði
er á Internetinu og sum staðar
eru gerðar ráðstafanir til að
hafa hemil á því efni sem al-
menningur hefur aðgang að.
Innan Evrópusambandsins
hefur kviknað sú hugmynd að
skilgreina Intemet sem útsend-
ingarmiðil og þar með myndi
efnið á Netinu falla undir
samskonar lög og útvarp og
sjónvarp. Það skyldi aldrei
fara svo að einn daginn muni
liggja fyrir Alþingi frumvarp
til laga um Internet?
Háskólanetið við
rúmstokkinn
í norska Computer World
08.03.96 er sagt frá því að
hver einasta íbúð á stúdenta-
garði nokkrum í Osló sé með
tengingu við tölvunet há-
skólans. Þarna eru 496 íbúðir
í 8 blokkum og inni í hverja
einustu íbúð er lagður kapall
svo tengjast megi netinu. Talið
er að um 50 nemendur muni
nýta sér þessa þjónustu fyrsta
árið og eftir það er reiknað
með að allir nemendur búsettir
á þessum stútdentagarði muni
ferðast um netið staðsettir
heima í íbúð.
Þeir hljóta að gera ráð fyrir
því að allir nemendur eigi
tölvur. Þeir sem búa á þessum
stúdentagarði þurfa alla vega
ekki að hafa áhyggjur af því
að tölvuver háskólans séu upp-
tekin.
34 - Tölvumál