Vísir - 19.10.1962, Blaðsíða 10
10
V1 SIR . Föstudagur 19. október 1962.
Bridgekeppni
á Akureyri
Akureyri í morgun.
Bridgefélag Akureyrar hóf vetr-
arstarfsemi sína með tvímennings
keppni, sem er nýlokið.
Þátttakendur voru 28 „pör“ og
spilaðar voru 3 umferðir. í fimm
efstu sætunum voru þessir tví-
menningar:
1. Jóhann Helgason, Karl Sig-
fússon 559 stig.
2. Ármann Helgason, Halldór
Helgason 548 stig.
3. -4. Jónas Stefánsson, Rútur
Otterstedt 540 stig.
3.—4. Jóhann Sigurðsson, Óðinn
Árnason 540 stig.
5. Jóhannes Kristjánsson, Þor-
steinn Svanlaugsson 518 st.
Núverandi formaður Bridgefél-
ags Akureyrar er Mikael Jónsson.
Unnið að undir-
buningi hafnar-
framkvæmda.
Unnið er stöðugt að undirbún-
ingi hinna miklu hafnarfram-
kvæmda í Þorlákshöfn. Ekki er
gert ráð fyrir að hafnarskilyrði þar
batni fyrir næstu vetrarvertíð, en
í vetur á að steypa 7 — 8 ker og
hafa þau tilbúin næsta vor til leng-
ingar hafnargarðanna. Næsta sum-
ar verður unnið með fullum krafti
að stækkun hafnarinnar þannig að
hafnargerðin verði komin að sem
allra mestu notum fyrir veturinn
1963—1964.
Fundu glös —
Framhald at bls. 1.
skúrnum tösku með 9 lyfjaglös-
um og lyfjasprautu, en enginn
mannanna vildi þá kannast við
töskuna og kváðu hana sér ó-
viðkomandi.
í morgun voru mennirnir
kvaddir til yfirheyrslu hjá rann
sóknarlögreglunnl og þá breytti
einn þeirra framburði sínum,
þannig að hann kvaðst geyma
töskuna fyrir 'r-nningja sinn,
sem væri fiá Norðfirði.
Lögreglan kvaðst ekki sjá að
í glösunum væri annað en mein
laus bætiefni. Þau eru öll merkt
Apóteki Neskaupstaðar og bera
nafn kvenmanns þar á staðn-
um.
Tryggingariðgjald -
Framhald at bls 1
maður bifreiðadeildar í einu
tryggingarfélaginu, „að þá
streymir inn á okkur tjónið.
Það hefur sín áhrif á aukningu
bótagreiðslna, svo að útlitið er
ekki hagstætt, eins og fyrr er
getið. Brjóstvitið segir, að ið-
gjöldin verði að hækka, því
miður," sagði þessi yfirmaður
bifreiðadeildar.
Heimdellingar
Þeim fækkar dögunum þang-
að til dregið verður i Skyndi-
'iappdrætti Sjálfstæðisflokks-
ins. Gerið því skil sem allra
fyrst. Komið í skrifstofur Sjálf-
stæðisflokksins við Austurvöll.
Dr. Finnur -
Framhaid at bls. 9
leggingum um svaninn er ekki úr
vegi að minnast lítillega á grá-
gæsirnar, sem halda sig á tjörn-
inni eða í grennd við hana. Þær
eru ails um 20—30 talsins og
eru oft á beit á grasflötunum í
Tjarnargarðinum. Þær eru allar
fullfleygar, en hafa þó vetrar-
dvöl hér, enda þótt villtar grá-
gæsir séu farfuglar hér á landi.
Fyrir grágæsunum er lítið haft,
þær valda engu tjóni eða truflun-
um á tjörninni, en eru fiestum,
sem fuglum unna, til mikillar á-
nægju.
Fyrir allmörgum árum tók
hettumávar að venja komur sínar
á tjörnina, en hann er ein af
þeim tegundum, sem hafa numið
hér land eftir að veðurfar tók að
hlýna um og upp úr 1920. Nú er
svo komið, að stórhópar af hettu
mávum eru oft á tjörninni og
sækja þeir mjög í stóra tjarnar-
hólmann til varps. Ef ekkert
hefði verið að gert mundi hettu-
mávurinn eflaust vera búinn að
flæma kríuna burt úr hólmanum,
því að hann tekur að hreiðra um
sig áður en krían kemur á vorin.
Með því að steypa reglulega und-
an hettumávinum jafnóðum og
hann verpur, hefur þó tekizt að
varna þvf að svo færi. Auk hettu-
mávsins er oft slæðingur af síla-
máv og svartbak (veiðibjöllu) á
tjörninni. Báðar þessar tegundir
eru skæðir eggja- og unglinga-
ræningjar, sem sækja á tjörnina
til fanga en ekki til varps. Mest
bar á þessum vágestum á tjörn-
inni fyrstu árin eftir að sorphaug
arnir á Eiðisgranda voru lagðir
niður, en þar hafðist jafnan við
aragrúi af mávum á veturna.
Ollu þeir um skeið töluverðu
tjóni á fuglalífi tjarnarinnar, en
nú síðustu árin hefur þeim farið
fækkandi aftur. Um varptímann
er þó stöðugt höfð gát á þeim
og ef þeir koma inn á tjörnina eru
þeir kostir ef við verður komið.
Eins og sakir standa er tiltölu-
lega auðvelt að verjast ásóknum
þessara máva.
Framtíð tjarnarinnar.
Hér hefur verið rætt allræki-
lega um fuglalífið á Reykjavíkur-
tjörn, en nú langar mig til að
minnast lítið eitt á framtíð tjarn-
arinnar sjálfrar. Það fer ekki hjá
því að þeir, sem fylgzt hafa með
breytingunum, sem orðið hafa á
tjörninni á síðustu 40—50 árum,
öeyfilyF-
Fran.hald al bls. 1.
oft, eða viljum a. m. k. vita af
hverju viðkomandi maður hef-
ir þessi meðöl undir höndum
og til hvers honum hafa verið
gefin þau.
— Hverju svara læknarnir
til?
— Ýmsu.
Stundum sjá þeir aumur
á mönnum. Þeir bera sig
illa. Þurfa að fara á sjóinn eða
sinna áríðandi erindum en eru
niðurbrotnir eftir fyllirí og
þurfa á hressandi meðali að
halda. Eða þá að konur þeirra
eru að springa af offitu og
þurfa að megra sig til að halda
línunum. Ástæðurnar eru marg-
ir en hins vegar tími læknanna
oftast svo naumur að þeir hafa
ekki tíma til að kanna málið
ofan í kjölinn. Nenna heldur
ekki að standa í orðaskaki við
pillubeiðandann og þetta endar
venjulegast með því að hann
fer út með lyfseðilinn í hönd-
um.
Á margt fleira var
drepið í viðtalinu og
birtist það í heild í blað-
inu á morgun.
geri sér ljóst að dagar hennar
hljóta brátt að verða taldir, ef
ekki verður bráðlega hafizt handa
um að dýpka hana og auka
vatnsrennslið í gegnum hana.
Orkomusvæði tjarnarinnar er
mjög lítið og að því hefur verið
þrengt mjög á síðari árum méð
byggingum, flugvallargerð og
holræsalagningu. Afleiðingin af
þessu eru síminnkandi vatns-
rennsli í gegnum tjörnina, en það
leiðir til stöðnunar og fúlnunar
vatnsins á stórum svæðum tjarn-
arinnar utan meginstraumlínu
hennar. Jafnframt grynnkar tjörn
in ört vegna áfoks og rotnandi
gróðrar og síðsumars vex þráð-
nykran, sem auk þörunga er meg-
ingróður tjarnarinnar, á æ stærri
svæðum upp úr .vatninu. Afleið-
ingin af þessu öllu verður sú, að
í hitum á sumrin leggur oft megn
daun frá tjörninni, því að hún er
á góðri Ieið með að verða ekki
an daun frá tjörninni, því hún er
aðeins að forarpolli heldur bein-
línis að opinni for. Og ekki bætir
það úr skák, að um stórstraums-
flóð fellur klóakafrennsli inn í
tjörnina um útfallið hjá Búnaðar-
félagshúsinu. Þó ekki væri nema
af heilbrigðisástæðum tel ég nauð
synlegt, að þetta mál verði tekið
til nánari athugunar, en úr öllu
þessu verður að sjálfsögðu ekki
bætt nema með dýpkun tjarnar-
innar og stórauknu vatnsrennsli
í gegnum hana. Ef ekki fæst nægi
legt vatnsmagn til þess úr vatns-
veitukerfi bæjarins, er vart um
annað að ræða en dæla sjó úr
Skerjafirði í gegnum tjörnina, að
minnsta kosti á sumrin, þegar á-
standið er sem verst.
Að Iokum skal hér drepið á
eitt atriði enn, sem stundum hef-
ur valdið örðugleikum í sambandi
við andaeldið á Þorfinnstjörn. Ég
á hér við olíubrák, sem stundum
hefur borizt inn á Þorfinnstjörn,
en olíubrák þessi mun sennilega
stafa af þvf, að afrennsli af Pfring-
brautinni milli Sóleyjargötu og
Bjarkargötu fe'ííur beint út í tjörn
ina en ekki í holræsi. Það er ekki
nema eðlilegt að afrennslisvatn
af jafn-mikilli umferðargötu og
Hringbrautin er geti stundum ver-
ið lítið eitt olíumengað. Ég vil
ekki láta hjá líða að vekja at-
hygli á þ_jsu, enda þótt vel megi
vera að örðugt sé að ráða bót á
þessu.“
Reykjavík, 13. ágúst 1962.
Finnur Guðmundsson.
Myndsjó —
Framhald at bls. 3.
hraði, sem hægt er að aka hana.
Samt er það furðulegt hve
gaman er að aka þessum litlu
verkfærum. Aksturseiginleikar
þeirra eru mjög svipaðir og bíla,
aðeins í smækkaðri mynd. Eftir
að hafa ekið þessum verkfærum
er okkur það efst f huga að fá
að prófa aftur.
Þó að hér sé um kappakstur
að ræða, er þetta að hetia má
hættulaust. Engin Ieið ei að
hvolfa þeim, því að þær snú-
ast í hringi áður en það skeour,
þar sem þyngdarpunkturinn er
svo neðarlega. Má teljast að
íþrótt þessi sé algerlega hættu-
laus, nema menn séu komnir
með kerrur, sem fara ofsalega
hratt.
Mjög mismunandi reglur
gilda um notkun þessara tækja
eftir löndum. Eru sums staðar
sett lágmarkstakmörk um ald-
ur, en ekki alls staðar.
1 Keflavík stunda menn þetta
ekki síður til að leyfa sonum
sínum að keppa en til að keppa
sjálfir. Er mikið kapp i ijem að
synirnir vinni, enda eru nargir
strákanna mjög flinkir að aka
kerrunum.
ÍfHÓttir —
Frarr’KaId á bls. 10.
upp úr þessu lamaðist annar fótur
barnsins.
Tvisvar í viku í tvö ár þurfti
móðir hennar að vefja hana teppi
og fara með hana til sjúkrahússins
í Nashville. Með góðri umönnun
læknanna tókst að gæða sjúka fót-
inn lífi og er hún var 6 ára gat
hún gengið um á sérlega smíðuð-
um skóm. Læknarnir, sem björg-
uðu heiisu Wilmu litlu vissu ekki
þá, að þeir höfðu bjargað fótum,
sem áttu eftir að afla landi þeirra
mikils sóma.
Þegar Wilma varð 11 ára var
hún farin að hafa mikinn áhuga á
íþróttum, enda var hún nú búin
að öðlast fulla heilsu aftur. Það
var einkum körfuknattleikurinn,
sem fangaði hug hennar og úti á
baklóðinni lék hún körfubolta með
bræðrum sínum hvenær sem færi
gafst.
803 stig í 25 ieikum.
í framhaldsskóla ákvað Wilma
að vinna sæti í körfuknattlciksliði
skólans, en hún var langt frá að
vera góður leikmaður í fyrstunni.
„En hún var samt mikils virði“,
sagði þjálfarinn C. C. Gray síðar.
„Það var í að halda uppi rétta
andanum innan liðsins. Á ferðalög-
um sat Wilma oftast í aftursætipu
og sagði skrítlur". Annað árið varð
Wilma hins vegar mjög góð í
körfuknattleiknum og var aðal-
stjarna liðsins og skoraði 803 stig
£ 25 leikum, skólamet!
„Skemmtilegra að
hlaupa‘£.
Eftir þetta skólaár kom Gray
þjálfari að máli við Wilmu og
spurði hana hvort hún vildi ekki
reyna sig í frjálsíþróttum... og
þar með var bálið tendrað. Wilma
sagði síðar, að hún hafi uppgötv-
að, að það væri skemmtilegra að
hlaupa en kasta £ körfu, og á 3
árum £ framhaldsskólum tapaði hún
ekki einu einasta hlaupi.
Árið 1957 fór Wilma £ Tenn-
essee A and I University í Nash-
ville. Þar fékk hún hinn snjalla
kvennaþjálfara Edward Temple og
þar er Wilma enn við nám. Hún
þjálfar £ tvo tfma á dag eftir
kennsluti'ma. Venjulegt „prógram"
er eitthvað á þessa Ieið: 40 mín.
i uppmýkingaræfingar, 30 mi'n. i
boðhlaupsskiptingar og 50 min. £
spretti frá 50—200 metra löngum,
en alls eru sprettirnir um 5 kiló-
metra langir £ allt.
Wilma er ágætis nemandi og hef-
ur „Average B“ £ einkunn, en hún
lærir barnakennslu. Auk námsins
og þjálfunarinnar vinnur hún 4
tíma á dag á skrifstofu skólans.
Wilma hefur hlotið miklar vin-
sældir bæði af nemendum og öll-
um þeim, sem hafa kynnzt henni
á iþróttasviðinu. „Ég vil vera vin-
sæl vegna persónuleika mins en
ekki spretthörkunnar,” segir þessi
drottning hlaupabrautarinnar. Bráð
lega útskrifast Wilma sem barna-
kennari en þá segist hún annað
hvort taka til við húsmóðurstörfin
eða þá að hún fer að kenna við
barnaskóla um nokkra hríð og jafn
framt halda áfram á hlaupabraut-
inni, sem er von ráðamanna í frjáls
íþróttaheimi Bandaríkjanna, sem
vilja að hún verði með í OL-liðinu
í Tokyo’ 1964.
FILMÍA
| Ársskírteini verða afhent í Tjarnarbæ kl.
5-7 í dag.
^ Nýjum félagsmönnum bætt við.
t Sýningar hefjast í kvöld kl. 19 með búlg-
örsku myndinni STJÖRNUR. (Verðlaun í
Cannes).
$ Sýndar verða 10 myndir í vetur á föstu-
dagskvöldum og síðdegis á laugardögum.
| TRYGGIÐ YÐUR SKÍRTEINI í DAG.
VERKAMENN
Verkamenn óskast, langur vinnutími, hús-
næði á sama stað. — Uppl. hjá verkstjóra.
JÓN LOFTSSON h.f.
Hringbraut 121
RAFGEYMAR
6 /olt 70, 75, 90 og 120
impt.
u «folt 60 ampt.
i .augaveg] 170 — Simi ,22 60.